Mega félagasamtök birta lista yfir félagsmenn og aðgreina þá sem hafa ekki greitt félagsgjöld?
Vinnsla þeirra persónuupplýsinga sem hér um ræðir, þ. á m. birting þeirra á vefsíðum, er aðeins heimil að eitthvert skilyrða 8. gr. laga um persónuvernd sé uppfyllt. Skilyrðin eru eftirfarandi:
1. hinn skráði hafi ótvírætt samþykkt vinnsluna eða veitt samþykki skv. 7. tölul. 2. gr. laganna
2. vinnslan sé nauðsynleg til að efna samning sem hinn skráði er aðili að eða til að gera ráðstafanir að beiðni hins skráða áður en samningur er gerður;
3. vinnslan sé nauðsynleg til að fullnægja lagaskyldu sem hvílir á ábyrgðaraðila;
4. vinnslan sé nauðsynleg til að vernda brýna hagsmuni hins skráða;
5. vinnslan sé nauðsynleg vegna verks sem unnið er í þágu almannahagsmuna;
6. vinnslan sé nauðsynleg við beitingu opinbers valds sem ábyrgðaraðili, eða þriðji maður sem upplýsingum er miðlað til, fer með;
7. vinnslan sé nauðsynleg til að ábyrgðaraðili, eða þriðji maður eða aðilar sem upplýsingum er miðlað til, geti gætt lögmætra hagsmuna nema grundvallarréttindi og frelsi hins skráða sem vernda ber samkvæmt lögum vegi þyngra.
Það sem kemur einkum til greina er 1. tl. en þá þarf hinn skráði að hafa ótvírætt samþykkt vinnsluna eða veitt samþykki sitt samkvæmt 7. tl. 2. gr. laganna en þar segir að samþykki sé: "Sérstök, ótvíræð yfirlýsing sem einstaklingur gefur af fúsum og frjálsum vilja um að hann sé samþykkur vinnslu tiltekinna upplýsinga um sig og að honum sé kunnugt um tilgang hennar, hvernig hún fari fram, hvernig persónuvernd verði tryggð, um að honum sé heimilt að afturkalla samþykki sitt o.s.frv."
Ef slíkt samþykki er ekki til staðar má líta svo á að umrædd vinnsla persónuupplýsinga verði að uppfylla einhver af hinum skilyrðum 8. gr. til að vinnslan teljist lögleg
