Eyðing gagna
Má grunnskóli eyða gögnum um nemendur?
Um eyðingu gagna um nemendur í grunnskólum gilda lög nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands. Af lögunum má ráða eftirfarandi:
Grunnskólar mega ekki eyða neinum skjölum í skjalasöfnum sínum nema með sérstakri heimild frá Þjóðskjalasafninu (7. gr.). Grunnskólar þurfa að skila skjölum sínum til viðkomandi héraðsskjalasafns eða til Þjóðskjalasafns Íslands áður en gögnin ná 30 ára aldri (5. og 6. gr.). Þetta gildir um öll gögn sem verða til hjá viðkomandi skóla, þ.e. hvers konar gögn, jafnt rituð sem í öðru formi, er hafa að geyma upplýsingar og orðið hafa til við starfsemi á vegum stofnunar (2. gr.)
