Innbrot í tölvupóst
Ég held að það hafi verið brotist inn í tölvupóstinn minn, getur Persónuvernd gert eitthvað í því?
Í 1. mgr. 228. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 kemur fram að ef maður hnýsist í bréf, skjöl, dagbækur eða önnur slík gögn, sem hafa að geyma upplýsingar um einkamál annars manns, og hann hefur komist yfir gögnin með brögðum, opnað bréf, farið í læsta hirslu eða beitt annarri áþekkri aðferð, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 1 ári. Þá kemur einnig fram að sá skal sæta sömu refsingu sem á ólögmætan hátt verður sér úti um aðgang að gögnum eða forritum annarra sem geymd eru á tölvutæku formi.
Af ákvæðinu má ráða að hugsanlega geti það brot sem þú lýsir í fyrirspurn þinni varðað við hegningalög en ef þú telur svo vera myndi ég ráðleggja þér að hafa samband við lögreglu.
