Bannskrá og vísindarannsóknir

Ég er á bannskrá Þjóðskrár. Engu að síður barst mér bréf í pósti þar sem mér var boðið að taka þátt í vísindarannsókn, hvernig stendur á því?

Samkvæmt 28. gr. laga nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, með síðari breytingum, skal Þjóðskrá halda skrá yfir þá sem ekki vilja að nöfn þeirra séu notuð við dreifingu markpósts. Síðan segir að ábyrgðaraðilar sem starfa í beinni markaðssókn og þeir sem nota skrá með nöfnum, heimilisföngum, netföngum, símanúmerum og þess háttar eða miðla þeim til þriðja aðila í tengslum við slíka starfsemi skulu, áður en slík skrá er notuð í slíkum tilgangi, bera hana saman við skrá Þjóðskrár til að koma í veg fyrir að markpóstur verði sendur eða hringt verði til einstaklinga sem hafa andmælt slíku." Að lokum er tiltekið að "Persónuvernd geti heimilað undanþágu frá þessari skyldu í sérstökum tilvikum. Í 7. mgr. þessarar greinar segir einnig að Persónuvernd megi undanþiggja vísindarannsóknir og hliðstæðar rannsóknir þessari takmörkun enda þyki ljóst að slíkt geti skert til muna áreiðanleika niðurstöðu rannsóknarinnar.

Því getur farið svo að þótt þú sért á bannskrá Þjóðskrár berist þér beiðni um taka þátt í vísindarannsókn. Eftir sem áður er þér í sjálfsvald sett að neita því að taka þátt í rannsókninni.


Til skýringar má geta þess að slíkt ákvæði var ekki í því frumvarpi til laga um persónuupplýsingar sem lagt var fyrir Alþingi (á 125. löggjafarþingi) heldur kom ákvæðið inn í meðförum Alþingis. Allsherjarnefnd lagði þetta til og tók í áliti sínu fram að Persónuvernd mætti undanþiggja vísindarannsóknir og hliðstæðar rannsóknir, en með því væri t.d. átt við neyslu- og markaðskannanir Hagstofunnar og aðrar kannanir sem eru grundvöllur að vísitöluútreikningum og byggjast á lagaákvæðum eða leiða af opinberri starfsemi. Sagði og að við mat Persónuverndar á því hvort rannsókn mætti ná til einstaklinga á bannskrá ætti að taka mið af því það gæti skekkt niðurstöður rannsóknarinnar ef þeir væru ekki með í rannsókninni.

 

 




RSS