Valdheimildir Persónuverndar
Hvað getur Persónuvernd gert þegar vinnsla persónuupplýsinga telst ólögmæt?
Samkvæmt lögum nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, getur Persónuvernd mælt fyrir um stöðvun vinnslu persónuupplýsinga, þar á meðal getur hún stöðvað söfnun, skráningu eða miðlun upplýsinga. Persónuvernd getur einnig mælt fyrir um að persónuupplýsingum verði eytt, í heild eða að hluta, bannað frekari notkun upplýsinga eða lagt fyrir ábyrgðaraðila að viðhafa ráðstafanir sem tryggja lögmæti vinnslunnar.
Komi í ljós að fram fari ólögmæt notkun persónuupplýsinga getur Persónuvernd falið lögreglustjóra að stöðva starfsemi viðkomandi og innsigla starfsstöð þegar í stað. Sinni aðili ekki fyrirmælum Persónuverndar, getur hún afturkallað leyfi sem hún hefur veitt - þar til úr hefur verið bætt að hennar mati. Að auki getur stofnunin knúið viðkomandi til að hlíta fyrirmælum með dagsektum.
Framangreindum úrræðum getur Persónuvernd beitt að undangengnum úrskurði stjórnar stofnunarinnar þar sem komist er að niðurstöðu um ólögmæta vinnslu persónuupplýsinga.
Dómstólar geta einnig dæmt þann sem brýtur gegn ákvæðum laganna til að sæta fangelsisrefsingu eða fésektum.
