Viðhorfskönnun
Ég ætla að gera könnun á viðhorfi hóps fólks til ákveðins málefnis. Þarf ég leyfi frá Persónuvernd til að framkvæma slíka könnun? Ber mér að tilkynna um gerð hennar til Persónuverndar?
Það þarf ekki leyfi Persónuverndar til að framkvæma könnunina ef þátttaka svarenda byggist á samþykki þeirra. Er þá miðað við að áður en menn svari fái þeir upplýsingar um hvernig svörin verði notuð og að þeim sé ekki skylt að svara. Hins vegar getur þurft að tilkynna Persónuvernd um könnunina tímanlega og ekki síðar en 15 dögum áður en hún hefst.
Hér er hægt að nálgast upplýsingar um það hvenær vinnsla persónuupplýsinga er tilkynningarskyld.
