Spurningar og svör

Eftirlitsstofnun Schengen (JSA)

Hvað er eftirlitsstofnun Schengen og Schengen-upplýsingakerfið?

JSA er sameiginleg eftirlitsstofnun aðildarríkja Schengen-samstarfsins. Hún starfar á grundvelli 1. mgr. 115. gr. Schengen-samningsins. Hún er sjálfstæð í störfum sínum og hefur með höndum ráðgjöf og eftirlit varðandi öryggi persónupplýsinga í Schengen-upplýsingakerfinu (SIS).


SIS er sameiginlegt upplýsingakerfi sem á að gera yfirvöldum mögulegt með aðstoð tölvu að hafa aðgang að upplýsingum um fólk og hluti:

1. Vegna landamæravörslu og annarrar lög- og tollgæslu,

2. Vegna útgáfu vegabréfsáritana og dvalarleyfa.


Yfirvöld í aðildarlöndunum sameinast um rekstur kerfisins og hafa öll aðgang að því. Í kerfinu eru upplýsingar um einstaklinga sem yfirvöld vilja hafa upp á, um óæskilega einstaklinga (menn sem á að hindra að komi inn á Schengen svæðið) og um hluti sem hugsanlega tengjast afbrotum. Yfirvöld sem eru ábyrg fyrir lögreglumálum, landamæravörslu, tollamálum, vegabréfsáritunum og dvalarleyfum hafa aðgang að kerfinu.


Upplýsingakerfið er sérstakt og eitt hið fyrsta sinnar tegundar. Það er sameiginlegt upplýsingakerfi til löggæslu- og landamæravörslu með miðlægum gagnagrunni. Stofnunin er skipuð tveimur fulltrúum frá hverri persónuverndarstofnun - í þeim ríkjum sem nú taka þátt í samstarfinu (þau eru: Austurríki, Belgía, Danmörk, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Grikkland, Ísland, Ítalía, Luxembourg, Holland, Noregur, Portúgal, Spánn og Svíþjóð). Þessi ríki leggja upplýsingar í kerfið. Írland og Bretland eru enn ekki farin að leggja inn upplýsingar, en tveir fulltrúar frá hvoru ríki eiga sæti í JSA sem áheyrnaraðilar. Eftir að Amsterdamsáttmálinn tók gildi var JSA innlimað í stofnanakerfi ESB en þó fól það ekki í sér nokkra breytingu á hlutverki JSA. Verkefni JSA eru m.a. þau að hafa eftirlit með öryggismálum við rekstur hins miðlæga hluta upplýsingakerfisins (C.SIS), að gefa álit og samræma innlenda lagaframkvæmd og lagatúlkun í málum er upp koma vegna Schengen-upplýsingakerfisins, þ. á m. að tryggja samræmi við samning Evrópuráðsins nr. 108 frá 28. janúar 1981 um vernd einstaklinga varðandi vélræna vinnslu persónuupplýsinga. JSA hefur haft frumkvæði að ýmsum aðgerðum til að auka þekkingu almennings á Schengen samstarfinu, m.a. með upplýsingaherferð sem hófst á árinu 1999. Nýlega hófst útgáfa fréttabréfs en auk þess hefur verið gefinn út nýr almennur upplýsingabæklingur sem dreifa á í aðildarríkjunum, einkum á landamærum þeirra. Þá hefur verið opnuð heimasíða JSA, en þar er m.a. að finna álit stofnunarinnar og leiðbeiningar fyrir þegna aðildarríkjanna um rétt þeirra til að fá að vita hvort skráðar séu upplýsingar um þá í Schengen-upplýsingakerfinu o.fl.


Veffang heimasíðu JSA







Þetta vefsvæði byggir á Eplica