Kennitölur

Bloggsíður

Er hægt að krefja bloggara um að skrá kennitölu sína fyrir bloggsíðu?

26.10.2007

Í 10. gr. laga nr. 77/2000 segir að notkun kennitölu sé heimil eigi hún sér málefnalegan tilgang og sé nauðsynleg til að tryggja örugga persónugreiningu. Í þessu felst að notkun kennitölu þarf að uppfylla tvö skilyrði, annars vegar að tilgangur hennar sé málefnalegur og hins vegar að hún sé nauðsynleg til þess að tryggja rétta persónugreiningu. Persónuvernd hefur ekki gert athugasemdir við notkun kennitölu við gerð samninga annarra en einstakra neytendakaupa. Örugg persónugreining aðila samnings getur verið nauðsynleg með hagsmuni viðskiptalífsins í huga t.d. rétt persónugreining viðsemjenda bloggþjónustu, einkum með tilliti til þess að enn er margt óskýrt hvað varðar ábyrgð á birtu efni á netinu







Þetta vefsvæði byggir á Eplica