Notkun kennitölu
Er notkun kennitölu ekki bönnuð án leyfis Persónuverndar?
Nei, notkun kennitölu er ekki bönnuð og almennt þarf ekki sérstakt leyfi Persónuverndar þegar kennitala er notuð. Hins vegar er notkun hennar háð því að uppfyllt séu skilyrði 10. gr. laga nr. 77/2000. Samkvæmt þessu lagaákvæði þarf notkun kennitölu að eiga sér málefnalegan tilgang og vera nauðsynleg til að tryggja örugga persónugreiningu. Við mat á málefnalegum tilgangi ber m.a. að líta til þess hvort örugg persónugreining sé mikilvæg fyrir hinn skráða, fyrir ábyrgðaraðila eða vegna almannahagsmuna.
Notkun kennitölu getur því verið nauðsynleg til að tryggja að upplýsingum einstaklinga sé ekki ruglað saman og getur slík notkun þannig stuðlað að því að upplýsingar séu öruggar og áreiðanlegar.

