Lífsýnasöfn
Er það í verkahring Persónuverndar að veita leyfi til starfrækslu lífsýnasafns?
Rétt er að benda á að skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 110/2000 um lífsýnasöfn er stofnun og starfræksla lífsýnasafns, þ.e. söfnun, varsla, meðferð, nýting og vistun lífsýna háð því skilyrði að viðkomandi aðili hafi fengið leyfi heilbrigðisráðherra samkvæmt lögunum og að fenginni umögn landlæknis og vísindasiðanefndar. Persónuvernd hefur því ekki það hlutverk að lögum að veita heimild til stofnunar og starfrækslu lífsýnasafns skv. framangreindu.
Í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 110/2000 kemur fram að ekki sé heimilt að veita aðgang að lífsýnum til vísindarannsókna fyrr en aflað hefur verið leyfis Persónuverndar samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og fyrir liggur rannsóknaáætlun samþykkt af vísindasiðanefnd eða siðanefnd viðkomandi heilbrigðisstofnunar.

