Sjúkraskrár og dánarvottorð

Eiga aðstandendur rétt á aðgangi að sjúkraskýrslum og dánarvottorðum látins einstaklings?

Eiga aðstandendur rétt á aðgangi að sjúkraskýrslum og dánarvottorðum látins einstaklings?

1. Afhending upplýsinga úr sjúkraskrám til aðstandanda látins einstaklings

 

Lög nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, gilda um sérhverja rafræna vinnslu persónuupplýsinga og um handvirka vinnslu persónuupplýsinga sem eru eða eiga að verða hluti af skrá, sbr. 3. gr. laganna. Í framkvæmd hefur ákvæðið verið skýrt svo að það taki m.a. til meðferðar upplýsinga úr sjúkraskrám. Að auki er sérstaklega kveðið á um meðferð upplýsinga í sjúkraskrá í ákvæðum laga nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga og reglugerð nr. 227/1991 um sjúkraskrár og skýrslugerð varðandi heilbrigðismál.

 

Upplýsingar um heilsuhagi teljast til viðkvæmra persónuupplýsinga í skilningi laga nr. 77/2000, sbr. c-lið 8. tölul. 2. gr. laganna. Til þess að vinnsla slíkra upplýsinga sé heimil verður eitthvert af skilyrðum 1. mgr. 8. gr., og ennfremur eitthvert af skilyrðum 1. mgr. 9. gr. laganna að vera uppfyllt.

 

Telja má líklegt að ástæða þess að vandamaður óskar eftir aðgangi að sjúkraskrá látins einstaklings sé löngun til að fá skýringu á aðdraganda eða kringumstæðum við andlát, eða vegna einhver konar kröfu, s.s. vegna grunsemda um læknamistök. Ef ekki er til staðar upplýst samþykki sjúklings fyrir aðgangi tiltekins vandamanns að sjúkraskrá sinni virðast því skilyrði 2. og 7. tölul. 1. mgr. 9. gr. helst koma til greina í þeim tilvikum sem hér um ræðir.

 

Í 2. tölul. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 77/2000, er kveðið á um að vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga sé heimil standi sérstök heimild til hennar samkvæmt öðrum lögum. Slík sérlagaákvæði er að finna í lögum nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga. Í 2. mgr. 14. gr. þeirra laga er kveðið á um skyldu læknis og annarra sem færa sjúkraskrá til að sýna hana sjúklingi eða umboðsmanni hans, í heild eða að hluta, og afhenda þeim afrit skrárinnar sé þess óskað. Sama gildir um opinbera aðila sem lögum samkvæmt athuga kæru sjúklings eða umboðsmanns vegna meðferðar.

 

Hugtakið umboðsmaður er ekki skilgreint í lögum nr. 74/1997. Með hliðsjón af markmiðum laganna, sem eru m.a. þau að styðja trúnaðarsambandið sem ríkja ber milli sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna, almennum ákvæðum þessara laga og annarra um þagnarskyldu heilbrigðisstarfsmanna og í samræmi við almennan málskilning verður að telja að sá einn geti talist umboðsmaður sjúklings sem hefur til þess sérstaka, ótvíræða og skýrlega afmarkaða heimild sem sjúklingur hefur veitt honum í lifanda lífi.

 

Í ljósi framangreinds verður ekki talið að aðstandandi látins einstaklings verði sjálfkrafa réttmætur umboðsaðili hins látna í því tilliti að geta óskað eftir afriti af sjúkraskrá eða einstökum hlutum hennar. Þá er hvergi í lögum að finna sérstaka heimild til handa ættingjum eða mökum látinna til aðgangs að sjúkraskrám þeirra.

 

Hins vegar skal tekið fram Persónuvernd hefur fullan skilning á því að við sérstakar eða óvenjulegar aðstæður kunni nánustu vandamenn að finna hjá sér þörf eða löngun til að afla upplýsinga um hinn látna og þær aðstæður sem leiddu til andláts hans. Því skal bent á að löggjafinn hefur komið til móts við þessar þarfir með 12. gr. laga nr. 74/1997, en þar  er kveðið á um að heilbrigðisstarfsmaður geti, mæli ríkar ástæður með því, látið í té upplýsingar með hliðsjón af vilja hins látna og hagsmunum hlutaðeigandi. Sé starfsmaður í vafa getur hann borið málið undir landlækni, en er það þó ekki skylt. Með hliðsjón af ákvæðum 14. gr. laga nr. 74/1997 verður ekki talið að þetta ákvæði nái til þess að afhenda afrit af sjúkraskrá í heild eða að hluta, heldur fremur að heilbrigðisstarsfmaður veiti munnlegar upplýsingar eða skrifleg vottorð um tiltekin atriði.

 

Í 7. tölul. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 77/2000, er kveðið á um að vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga sé heimil ef hún er nauðsynleg til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ákvæðið tekur til hvers konar kröfu sem hægt er að fá aðstoð dómtóls eða annars úrskurðaraðila til að framfylgja. Vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga í þessum tilgangi telst hins vegar því aðeins vera lögleg að krafan verði hvorki afmörkuð né staðreynd með öðrum hætti. Þá leiða almennar lögskýringarreglur til þess að ákvæði sérlaga sem banna vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga eða setja henni viðbótarskilyrði ganga framar almennum ákvæðum laga nr. 77/2000.

 

Sé tilefni beiðni um aðgang að sjúkraskrá grunsemdir um að meðferð hafi ekki verið sem skyldi skal bent á að landlæknisembættið sinnir slíkum kvörtunum, sbr. 28. gr. laga nr. 74/1997, sbr. 5. mgr. 3. gr. laga nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu, og hefur rétt til aðgangs að sjúkraskrá samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga nr. 74/1997 í þágu rannsóknar á slíkum málum. Slíkum kvörtunum er því unnt að sinna án þess að afhenda vandamönnum hins látna afrit af sjúkraskrá í heild eða að hluta. Af því leiðir að vart verður séð að vandamaður geti byggt rétt til að fá í hendur sjúkraskrá látins einstaklings á 7. tölul. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 77/2000.

 

2. Afhending upplýsinga úr dánarvottorðum

 

Dánarvottorð teljast ekki til sjúkraskráa í lagalegum skilningi en um slík vottorð gilda sérlög, þ.e. lög nr. 61/1998 um dánarvottorð, krufningar o.fl. þar sem skýrt kemur fram að um slík vottorð gilda önnur sjónarmið en um sjúkraskráruppýsingar. Í 1. og. 2. mgr. 10. gr. laganna kemur fram að dánarvottorð skuli afhent venslamanni hins látna en venslamaður afhendir dánarvottorð svo til sýslumanns sem sendir vottorðið til Hagstofu Íslands. Í lögunum er ekki fjallað um aðgengi venslamanna að upplýsingum úr dánarvottorðum eftir að þau eru komin til Hagstofu Íslands. Hagstofa Íslands hefur, í framkvæmd, unnið eftir því verklagi að líta á dánarvottorð sem trúnaðargögn en þrátt fyrir trúnað við hinn látna lítur Hagstofan svo á að ekki skuli halda dánarorsök leyndri fyrir nánaustu ættingjum en stofnunin metur það í hverju tilviki hvort veita eigi þessar upplýsingar. Ættingjar hafa þó ekki verið taldir eiga rétt á því að fá afrit af dánarvottorðum.