Miðlun starfsmanna banka á upplýsingum um fjárhagsmálefni

Er starfsmanni í viðskiptabanka mínum heimilt að veita upplýsingar um stöðu á reikningi mínum til utanaðkomandi aðila? Einstaklingur mér nákominn kom í bankann minn og fékk þessar upplýsingar.

Af málavaxtalýsingu þinni að dæma er hugsanlegt að ákvæði laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki eigi við, en þar er m.a. fjallað um þagnarskyldu og miðlun trúnaðarupplýsinga hjá fjármálafyrirtækjum.

Í 58. gr. laganna kemur fram að stjórnarmenn fjármálafyrirtækis, framkvæmdastjórar, endurskoðendur, starfsmenn og hverjir þeir sem taka að sér verk í þágu fyrirtækisins eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns og varðar viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna þess, nema skylt sé að veita upplýsingar samkvæmt lögum. Þá kemur m.a. fram í 60. gr. laganna að heimilt sé að miðla til utanaðkomandi aðila þeim upplýsingum um viðskiptamenn sem um getur í 58. gr. að fengnu skriflegu samþykki þess sem í hlut á.

Rétt er að geta þess að það er Fjármálaeftirlitið sem hefur eftirlit með lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og getur þú því beint erindi þínu til þeirrar stofnunar ef þú óskar eftir frekari upplýsingum vegna málsins.

Að lokum má til fróðleiks benda á tvo úrskurði Persónuverndar þar sem m.a. er fjallað um miðlun banka á upplýsingum um fjárhagsmálefni.

Úrskurður um miðlun upplýsinga til fjármálafyrirtækja um framvísun falsaðrar bankaábyrgðar og handtöku

Úrskurður um aðgang að atburðaskrám viðskiptabanka.