Undanþágur frá skyldu til að virða bannmerkingar í Þjóðskrá
Ég er bannmerktur í Þjóðskrá en fékk engu að síður upphringingu frá aðila sem sagði Persónuvernd hafa veitt sér undanþágu frá skyldu til að virða bannmerkinguna. Er algengt að slíkar undanþágur séu veittar og í hvaða tilvikum er það einkum gert?
Nei, það er ekki algengt.
Kveðið er á um skyldu til að virða bannmerkingu í 28. gr. laga um persónuvernd. Það ákvæði var fyrst og fremst sett til þess að fólk ætti kost á að andmæla því að nöfn þeirra séu notuð við markaðssetningu eða sölu á vöru og þjónustu í tekjuöflunarskyni. Undanþága eru einkum veitt þegar ekki verður ráðið af því lögum eða lögskýringargögnum að vilji löggjafans hafi staðið til þess að takmarka tilteknar útsendingar eða úthringingar.
Persónuvernd hefur t.d. veitt undanþágu vegna útsendinga eða -hringinga vegna
- forvarnarverkefna
- upplýsinga sem framhaldsskólar senda 10. bekkingum
- dreifingar reiðhjólahjálma til barna
- orkuátaks Latabæjar
