Bein markaðssókn og bannskrá Þjóðskrár

Má nota lista með nöfnum, símanúmerum, heimilisföngum og netföngum í markaðsstarfsemi?

Þeir sem starfa í beinni markaðssókn og þeir sem nota skrá með nöfnum, heimilisföngum, netföngum, símanúmerum og þess háttar, eða miðla þeim til þriðja aðila í tengslum við slíka starfsemi, skulu áður en slík skrá er notuð í slíkum tilgangi, bera hana saman við skrá Þjóðskrár yfir þá sem andmælt hafa því að nöfn þeirra séu notuð í markaðssetningarstarfsemi, þ.e. svonefnda "bannskrá Þjóðskrár", sbr. 28. gr. laga nr. 77/2000.

Hægt er að beina erindum til Þjóðskrár með tölvupósti.

Skyldan um samkeyrslu við bannskrá Þjóðskrár getur þó ekki átt við ef eingöngu er notast við netföng, sbr. engin sérstök skráning fer fram hjá Þjóðskrá um netföng einstaklinga. Einnig er rétt að taka fram að Persónuvernd getur, í sérstökum tilvikum, heimilað undanþágu frá þeirri skyldu að samkeyra slíka lista við bannskrá Þjóðskrár.

Þeir sem notast við framangreindar skrár í beinni markaðssókn þurfa þó ávallt að virða andmæli einstaklinga sem hafa fengið markpóst-/símtal og þurfa halda til haga skráningu um það ef viðkomandi vill framvegis ekki fá markpóst-/símtal frá þeim aðila.

 

Hér má nálgast frekari fróðleik og upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga í markaðssetningarstarfsemi.