Veikindaforföll
Má birta á vinnustaðnum mínum tilkynningu um það að ég sé veikur og eðli veikindanna?
Gildissvið laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77/2000, kemur fram í 3. gr. laganna en þar segir að þau gildi um sérhverja rafræna vinnslu persónuupplýsinga, sem og handvirka vinnslu persónuupplýsinga sem eru eða eiga að verða hluti af skrá. Má telja sem svo að skjal sem útlistar hver sé veikur og eðli veikindanna geti fallið undir þetta ákvæði. Við meðferð þeirra upplýsinga sem eru á umræddu skjali þarf því að fara að lögum nr. 77/2000.
Það felur það í sér, m.a., að meðferð upplýsinganna þarf að vera heimil samkvæmt einhverju af ákvæðum 8. gr. laganna. Þar sem um er að ræða viðkvæmar persónuupplýsingar, þ.e. um heilsuhagi, sbr. c-lið 8. tölul. 2. gr., þarf einnig að vera fullnægt einhverju af skilyrðum 9. gr. laganna.
Meðal heimilda til vinnslu persónuupplýsinga í 8. gr. er að hinn skráði, þ.e. sá sem upplýsingar lúta að, hafi samþykkt vinnsluna og að vinnslan sé nauðsynleg til að gæta lögmætra hagsmuna nema grundvallarréttindi hins skráða vegi þyngra. Þá er m.a. heimilt, samkvæmt 9. gr., að vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar hafi hinn skráði veitt upplýst samþykki sitt fyrir vinnslunni.
Þetta eru einkum þau ákvæði sem geta átt við umrædda meðferð persónuupplýsinga. Við mat á því hvort umrædd ákvæði heimili vinnsluna verður að líta til þess að hér er um heilsufarsupplýsingar að ræða og er það því sérstakt álitaefni hvort hagsmunir vinnuveitenda, í tengslum við viðkomandi vinnslu, geti vegið þyngra en hagsmunir hinna skráðu af friðhelgi um einkalíf sitt. Jafnframt ber að líta til þess sérstæða sambands sem vinnuveitandi og starfsmaður eru í. Starfsmanni er almennt ekki stætt á að hlýða ekki fyrirmælum vinnuveitanda og því verður að meta samþykki starfsmanns fyrir vinnslu persónuupplýsinga í því ljósi.
Samkvæmt framangreindu er það því álitamál hvort umrædd vinnsla persónuupplýsinga standist lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

