Atvinnulífið

Sakavottorð vegna starfsumsókna

22.10.2007

Ég hef umsjón með barna- og ungmennastarfi og er að ráða til mín nýtt starfsfólk. Má ég óska eftir sakavottorði umsækjenda?

Almennt er talið málefnalegt að óska eftir sakavottorði þeirra sem starfa með börnum en hins vegar verður að gæta þess mjög vel að þeim sem sækjast eftir stöðunni sé það fyrirfram ljóst. Að öðrum kosti kynni upplýsingaöflunin að brjóta í bága við sanngirniskröfur laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þetta má t.d. tryggja með því að taka fram í starfsauglýsingu eða með sambærilegum hætti að óskað verði eftir sakavottorði.

Einnig ber að hafa í huga að upplýsingar á sakavottorði teljast viðkvæmar í skilningi laga um persónuvernd. Því verður að huga að því hvernig farið er með vottorðin þegar ákvörðun um ráðningu eða val á leiðbeinanda liggur fyrir. T.d. getur komið til greina að umsækjandi sýni sakavottorð en haldi því eftir sjálfur og þú punktir hjá þér hvort hann standist gerðar kröfur eða ekki. Ef vottorðin eru hins vegar lögð fram verður að huga að því að óviðkomandi aðilar hafi ekki aðgang að þeim og að ráðningu lokinni verður að farga þeim með öruggum hætti







Þetta vefsvæði byggir á Eplica