Heimasíður fyrirtækja
Fyrirtækið mitt er að opna nýja heimasíðu og ég hafði hugsað mér að birta þar lista með nöfnum og netföngum starfsmanna til þess að viðskiptavinir geti snúið sér beint til þeirra. Þarf ég að fá sérstaka heimild frá hverjum einasta starfsmanni til þess?
Að meginstefnu til hefur ekki verið talin þörf á að fá heimild starfsmanns til að birta nafn hans, vinnusímanúmer og vinnunetfang á heimasíðu vinnuveitanda í þessu skyni. Hins vegar geta verið uppi sérstakar aðstæður, s.s. vegna persónulegra haga starfsmannsins, sem leiða til undantekninga frá þessari meginreglu. Þess vegna er vinnuveitandanum rétt að upplýsa starfsmenn um að nöfn þeirra kunni að vera birt á vefsíðunni áður en það er gert.
