Íðorðasafn
29. gr. starfshópurinn
29. gr. starfshópurinn sinnir ráðgjafarhlutverki um persónuverndarmálefni í ESB og hefur m.a. það hlutverk að stuðla að samræmingu í framkvæmd persónuverndarlöggjafar í Evrópu.
Hópurinn starfar sjálfstætt og er skipaður fulltrúum eftirlitsstofnana í aðildarríkjum ESB, fulltrúum Evrópsku persónuverndarstofnunarinnar (EDPS)og fulltrúum framkvæmdastjórnar ESB. Persónuvernd situr fundi starfshópsins sem áheyrnarfulltrúi.
Starfshópurinn fjallar um mál sem formaður hans tekur á dagskrá, annaðhvort að eigin frumkvæði eða að beiðni fulltrúa eftirlitsstofnana eða framkvæmdastjórnarinnar.