Íðorðasafn

Ábyrgðaraðili

Sá aðili sem ákveður tilgang vinnslu persónuupplýsinga, þann búnað sem notaður er, aðferð við vinnsluna og aðra ráðstöfun upplýsinganna

Sá sem vinnur með persónuupplýsingar er yfirleitt sá sem ber ábyrgð á því að unnið sé með þær í samræmi við lög og reglur. Oft getur verið vandasamt að ákvarða hver telst ábyrgðaraðili tiltekinnar vinnslu, en í slíkum tilvikum getur verið til leiðbeiningar að hann ákveði tilgang vinnslunnar, þann búnað sem notaður er og ráðstöfun upplýsinganna. Ábyrgðaraðilar geta hugsanlega verið fleiri en einn.