Íðorðasafn

Persónuupplýsingar

Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar, þ.e. upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings, látins eða lifandi.

Það þýðir að lögin taka til upplýsinga um fólk, en t.d. ekki til upplýsinga um fyrirtæki og dýr. Eina undantekningin frá því er sú að lögin taka til upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust lögaðila. Upplýsingarnar verða að vera nógu nákvæmar til að hægt sé að sjá hvaða einstaklingi þær tilheyra. Hér getur t.d. verið um að ræða nöfn, kennitölur, heimilisföng eða önnur einkenni tiltekins einstaklings. Þetta verður að meta hverju sinni með hliðsjón af því hvaða upplýsingar unnið er með. Sem dæmi má nefna að viðhorfskönnun þar sem engum upplýsingum um þátttakendur er safnað, nema e.t.v. upplýsingum um aldursbil (20-30 ára) og kyn, telst ekki vera söfnun persónuupplýsinga. Ef hópurinn sem tekur þátt í könnuninni er hins vegar þannig samansettur, að mjög fáir einstaklingar eru á tilteknum aldri eða af öðru hvoru kyninu getur verið um persónuupplýsingar að ræða.