2
29. gr. starfshópurinn
29. gr. starfshópurinn sinnir ráðgjafarhlutverki um persónuverndarmálefni í EB og hefur m.a. það hlutverk að stuðla að samræmingu í framkvæmd persónuverndarlöggjafar í Evrópu.
meira..
Á
Ábyrgðaraðili
Sá aðili sem ákveður tilgang vinnslu persónuupplýsinga, þann búnað sem notaður er, aðferð við vinnsluna og aðra ráðstöfun upplýsinganna
meira..
E
EDPS
EDPS - (e. European Data Protection Supervisor) Evrópska persónuverndarstofnunin er sjálfstæð stofnun sem hefur eftirlit með vinnslu persónuupplýsinga af hálfu stofnana ESB.
meira..
J
JSA
JSA (e. The Schengen Joint Supervisory Authority) - Sameiginlega Schengen eftirlitsstofnunin annast eftirlit með tæknilegri stoðeiningu (C.SIS) Schengen-upplýsingakerfisins og er samráðsvettvangur þeirra innlendu stofnana sem hafa eftirlit með vinnslu persónuupplýsinga í kerfinu.
P
Persónuupplýsingar
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar, þ.e. upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings, látins eða lifandi.
meira..
R
Rafræn vöktun
Rafræn vöktun felur í sér viðvarandi og reglubundið eftirlit með rafrænum búnaði, fjarstýrðum eða sjálfvirkum.
meira..
S
Samþykki
Sérstök, ótvíræð yfirlýsing sem einstaklingur gefur af fúsum og frjálsum vilja um að hann sé samþykkur vinnslu tiltekinna upplýsinga um sig og að honum sé kunnugt um tilgang hennar, hvernig hún fari fram, hvernig persónuvernd verði tryggð, um að honum sé heimilt að afturkalla samþykki sitt o.s.frv.
meira..
V
Vinnsla
Vinnsla er sérhver aðgerð eða röð aðgerða þar sem unnið er með persónuupplýsingar, hvort heldur sem vinnslan er handvirk eða rafræn.
meira..
Vinnsluaðili
Sá sem vinnur persónuupplýsingar á vegum ábyrgðaraðila.
meira..
