Málafjöldi á árinu 2014
Árið 2014 var ekki frábrugðið fyrri árum að því er varðar innsend erindi en málafjöldi stofnunarinnar hefur stöðugt aukist síðustu ár. Aukning nýskráðra mála á árinu 2014 var 8,5% frá fyrra ári. Ný skráð mál á árinu 2014 voru samtals 1.778 en á árinu voru einnig til afgreiðslu 230 óafgreidd erindi frá fyrra ári. Alls hafði stofnunin því til meðferðar 2.008 mál. Þar af höfðu 1.801 mál verið afgreidd við árslok.

Á árinu 2014 bárust Persónuvernd 613 tilkynningar um vinnslu persónuupplýsinga. Eru þær allar birtar á heimasíðu stofnunarinnar. Eftirfarandi tafla sýnir tegundir nýskráðra mála 2014 og fjölda þeirra:
Tegundir | Fjöldi |
Erlent samstarf | 92 |
Frumkvæðismál | 15 |
Fyrirspurnir/umsagnir/álit | 573 |
Innri mál | 30 |
Kvartanir/kærur/úrskurðir | 87 |
Kynningar/námskeið/fyrirlestrar | 30 |
Leyfisumsóknir | 121 |
Mál vegna tilkynninga | 613 |
Smíði stjórnvaldsreglna | 56 |
Úttektarmál | 2 |
Veitt leyfi | 139 |
Annað | 20 |
Samtals | 1778 |