Fréttir

Leiðbeiningar um notkun tölvuskýja hjá hinu opinbera

Norrænn vinnuhópur um tölvuský hefur unnið að gerð leiðbeininga á vegum upplýsingatækninefndar Norrænu ráðherranefndarinnar um notkun tölvuskýja hjá hinu opinbera.

6.2.2014

Norrænn vinnuhópur um tölvuský hefur unnið að gerð leiðbeininga á vegum upplýsingatækninefndar Norrænu ráðherranefndarinnar um notkun tölvuskýja hjá hinu opinbera.
Hinn 19. desember 2013 var vinnuskjalið „Leiðbeiningar um notkun tölvuskýja hjá hinu opinbera“  birt á vefsíðu Norrænu ráðherranefndarinnar, www.norden.org. Frá árinu 2012 hefur Norrænn vinnuhópur um tölvuský, n.t.t. lagahópur hópsins, unnið að gerð þessara leiðbeininga á vegum upplýsingatækninefndar Norrænu ráðherranefndarinnar. Lögfræðingur hjá Persónuvernd er fulltrúi Íslands í áðurnefndum lagahópi.

Markmið þessara leiðbeininga er að veita almenna yfirsýn yfir þau helstu lagalegu atriði sem huga þarf að í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga þegar opinberir aðilar á Norðurlöndunum fyrirhuga að nýta sér þjónustu tölvuskýja. Er þar einkum fjallað um skyldur ábyrgðaraðila, þ.á m. gerð áhættumats og val á öryggisráðstöfunum, sem og gerð vinnslusamnings við tölvuskýjaveitanda.

„Leiðbeiningar um notkun tölvuskýja hjá hinu opinbera“   má finna á eftirfarandi tengli: http://www.norden.org/is/utgafa/utgefid-efni/2013-933.



Var efnið hjálplegt? Nei