Fréttir
Franska Persónuverndarstofnunin sektar Google
Franska persónuverndarstofnunin (CNIL) hefur sektað fyrirtækið Google um 100.000 evrur vegna upplýsingasöfnunar fyrirtækisins.
Franska persónuverndarstofnunin (CNIL) hefur komist að þeirri niðurstöðu að Google hafi í nokkur ár safnað bæði tæknilegum upplýsingum og persónuupplýsingum án vitundar hinna skráðu í gegnum Wifi-kerfi notenda. Aflaði Google upplýsinganna meðal annars með sk. Google-bílum en þeir hafa það hlutverk að mynda umhverfi sitt og þannig búa til t.d. Google Street View. Var tilgangurinn sagður vera að veita þjónustu á grundvelli staðsetningar, s.s. með Google Maps, Street View og Latitude. Var niðurstaða stofnunarinnar sú að Google skyldi sektað um 100.000 evrur vegna ólögmætrar upplýsingasöfnunar fyrirtækisins.
Niðurstaða CNIL.