2012
Eyðing upplýsinga úr Eurodac-gagnagrunni
Persónuvernd hefur lagt fyrir ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun að móta verklag sem tryggir að fari verði að fyrirmælum reglugerðar um eyðingu upplýsinga sem færðar eru í s.k. Eurodoc-gagnagrunn. Upplýsingum í grunninum, sem varðveittar eru án heimildar, skal eytt. Um er að ræða fingraför hælisleitenda, ólöglegra innflytjenda og þeirra sem handteknir eru í tengslum við ólöglega för yfir ytri landamæri Schengen en hafa fengið dvalarleyfi eða ríkisborgararétt.
Fyrirmæli
Persónuverndar.

