Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn Fjármálaeftirlitsins um skuldbindingarskrá. Í svarinu er m.a. útskýrt að Fjármálaeftirlitið þurfi að lögum bæði að hafa heimild til safna persónuupplýsingum á umrædda skrá og til að miðla þeim til Seðlabankans eða annarra. Lesa meira
Persónuvernd barst kvörtun föður yfir markaðskönnun fyrirtækis, en hringt hafði verið í 12 ára dóttur hans að kvöldi til. Við rannsókn málsins kom ekki í ljós að fram hefði farið vinnsla persónuupplýsinga um barnið. Var málið þá fellt niður.
Persónuvernd hefur svarað fyrirspurnum einstaklinga sem telja vera ósamræmi í afgreiðslum hennar, annars vegar varðandi tilkynningarlínu einkafyrirækis og hins vegar varðandi nafnlausar ábendingar á vefsíðum stjórnvalda. Þar sem nokkrar slíkar fyrirspurnir hafa borist hefur, til almennrar leiðbeiningar, verið ákveðið að birta eftirfarandi svar við einni fyrirspurn. Lesa meira
Persónuvernd barst erindi frá LSH varðandi gagnagrunn með persónuupplýsingum um sjúklinga með skorpulifur og lifrarsjúkdóm á lokastigi. Persónuvernd telur ekki vera fyrir hendi fullnægjandi heimild fyrir gerð og rekstri slíks gagnagrunns. Lesa meira