2007

Álit á túlkun 15. gr. reglugerðar nr. 569/1999 um sakaskrá ríkisins

Hinn 11. janúar sl. veitti Persónuvernd ríkissaksóknara álit sitt á túlkun 15. gr. reglugerðar um sakaskrá ríkisins, en sú grein fjallar um afhendingu upplýsinga úr sakaskrá til einkaaðila.

Persónuvernd hafði borist erindi ríkissaksóknara þar sem fram kom að hjá embættinu lægju fyrir til afgreiðslu tvær beiðnir þar sem leitað væri upplýsinga úr sakaskrá varðandi tiltekna einstaklinga. Í erindinu var óskað álits á því hvort ríkissaksóknara væri heimilt að verða við umræddum beiðnum, annarri eða báðum, og/eða ábendinga Persónuverndar um hvernig standa ber að því hagsmunamati sem er forsenda þess að upplýsingar verði veittar úr sakaskrá samkvæmt 15. gr. reglugerðar nr. 569/1999 um sakaskrá ríkisins.

Annars vegar var um að ræða beiðni vátryggingafélags í tengslum við bótakröfu. Hins vegar var um að ræða beiðni fyrirsvarsmanns leigubifreiðastöðvar. Álit Persónuverndar felur í sér almenna túlkun stofnunarinnar á því hvernig fara ber með beiðnir um afhendingu upplýsinga úr sakaskrá í slíkum tilvikum. Ekki var tekið mið af efnisatriðum þeirra tilteknu beiðna sem lágu fyrir hjá ríkissaksóknara.

 

Álit Persónuverndar.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica