Rafræn vöktun á heimavist
25. janúar
Í ákvörðun um lögmæti rafrænnar vöktunar á heimavist taldi Persónuvernd heimilt að nota sjö myndavélar, þ.e. þrjár myndavélar sem voru staðsettar utanhúss, eina myndavél í aðalanddyri, eina myndavél í tölvuveri, eina myndavél í þvottahúsi og eina myndavél sem ætlað var að vakta hliðarinngang sem notaður er um helgar. Síðasttöldu myndavélinni skyldi þó snúið að innganginum.
Önnur rafræn vökun sem fór fram á heimavistinni var talin óheimil og var lagt fyrir skólayfirvöld að stöðva hana áður en nemendur koma á heimavist skólans haustið 2006
Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

