2003

Umfjöllun um morðmál í dagblaði

Þess var óskað að Persónuvernd fjallaði um lögmæti umfjöllunar um morðmál sem birtist í dagblaði.

Í umfjölluninni var fullyrt að morðinginn og hin látna hafi haft samfarir, þrátt fyrir að það hafi verið dregið í efa í héraðsdómi og dómi Hæstaréttar. Þessi fullyrðing var talin brjóta í bága við þær kröfur laganna að sýna verði hæfilega nærgætni þegar fjallað er um jafn viðkvæm mál og það sem um ræddi, sem og þá kröfu um að þess skuli gætt að persónuupplýsingar séu áreiðanlegar.

Álitið er birt hér.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica