Leyfisveitingar í janúarmánuði 2006
Í janúarmánuði gaf Persónuvernd út 8 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga.
2005/709 - Magnús Gottfreðsson, sérfræðingur í smitsjúkdómum við lyflækningadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss og dósents við læknadeild Háskóla Íslands fékk leyfi til aðgangs að sjúkraskrám vegna rannsóknar sem ber yfirskriftina „Alvarlegar sýkingar eftir opnar hjartaskurðaðgerðir."
2005/697 - Urður, Verðandi, Skuld ehf. (UVS) fékk leyfi til aðgangs að lífsýnasafni Íslenskrar erfðagreiningar ehf. (ÍE) vegna vísindarannsókna á heilbrigðissviði, nánar tiltekið rannsókna á erfðum krabbameinssjúkdóma.
og
Íslensk erfðagreining ehf. (ÍE) fékk leyfi til aðgangs að lífsýnasafni Urðar, Verðandi, Skuldar ehf. (UVS) vegna vísindarannsókna á heilbrigðissviði, nánar tiltekið rannsókna á erfðum krabbameinssjúkdóma.
2005/698 - Íslensk erfðagreining ehf. (ÍE) og Urður, Verðandi, Skuld ehf. (UVS) fengu leyfi til samkeyrslu skráa með persónuupplýsingum um fólk sem tekið hefur þátt í krabbameinsrannsóknum á þeirra vegum. Nánar til tekið er átt við skrár sem hafa að geyma dulkóðaðar heilsufarsupplýsingar, lífsýnaupplýsingar, ættfræðiupplýsingar, erfðaupplýsingar og mæliniðurstöður úr tilteknum rannsóknum.
2005/650 - Eiríkur Örn Arnarson, forstöðusálfræðingur og Sigurður Örn Hektorsson, læknir og sérfræðingurfengu leyfi til aðgangs að sjúkraskrám vegna rannsóknar sem ber yfirskriftina: „Heilsa og líðan fólks sem greinst hefur með krabbamein. Þreifirannsókn við Landspítala-Háskólasjúkrahús".
2005/719 - Karl Andersen, hjartalæknir, fékk heimild til vinnslu persónuupplýsinga vegna rannsóknar sem ber yfirskriftina „Horfur og meðferð sjúklinga með bráða kransæðastíflu (PASTRAMI rannsóknin)."
2006/24 - Pétur Lúðvígsson barnalæknir fékk leyfi til aðgangs að sjúkraskrám vegna rannsóknar sem ber yfirskriftina „Heilabólgufaraldur á Íslandi 1992-1994 af völdum rauðra hunda (rubella encephalitis). Eftirfylgdarrannsókn."
2006/34 - Tómas Guðbjartsson, sérfræðingur á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss, fékk leyfi til aðgangs að sjúkraskrám vegna rannsóknar sem ber yfirskriftina „Notkun recombinant factor VII til að stöðva blæðingu í opnum hjartaaðgerðum."

