Umsagnir 2012

Umsögn um frumvarp til sjúkratryggingalaga og lyfjalaga

Persónuvernd hefur veitt umsögn um frumvarp til breytinga á sjúkratryggingalögum og lyfjalögum. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir auknum aðgangi að lyfjagagnagrunni landlæknis, til m.a. Sjúkratrygginga Íslands og til heimilislækna í tengslum við meðferð sjúklings. Persónuvernd leggst gegn því að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Til að unnt sé að samþykkja frumvarpið þurfi, að mati stofnunarinnar, að afmarka í því með mun skýrari hætti  hvernig skuli staðið að allri ráðstöfun viðkvæmra persónupplýsinga sem er í grunninum. Að öðrum kosti sé hætt við að í framkvæmd fari menn fram úr lögunum og að til verði gagnagrunnur sem ekki fái samrýmst stjórnarskrá og öðrum lögum.

Umsögn Persónuverndar.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica