Umsagnir 2011

Umsögn um frumvarpsdrög varðandi þvinganir á fötluðum

Persónuvernd hefur veitt umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindagæslu fatlaðra. Í drögunum var gert ráð fyrir rafrænni vöktun sem þvingunaraðgerð. Að mati stofnunarinnar fela drögin í sér umtalsverða íhlutun í stjórnarskrárvarin réttindi um friðhelgi einkalífs, auk þess sem þau gangi töluvert lengra heldur en samsvarandi ákvæði í norskum og dönskum lögum.

Lesa meira
 

Umsögn um verklagsreglur

Póst- og fjarskiptastofnun óskaði svara Persónuverndar um verklagsreglur Símans hf. Persónuvernd taldi verklagsreglur Símans hf. ekki nægilega skýrar að því er varðar varðveislutíma persónuupplýsinga um fjarskiptanotkun einstaklinga þannig að af mætti ráða hvort Síminn hf. ynni í samræmi við ákvæði fjarskiptalaga.
Lesa meira
 

Umsögn um tillögu Stjórnlagaráðs

Persónuvernd hefur gefið umsögn um drög Stjórnlagaráðs að breyttum stjórnarskrárákvæðum um notkun upplýsinga. Að mati Persónuverndar þarf að ígrunda vandlega hvort að ákvæði 7. gr. í drögum ráðsins fái örugglega samrýmst tilskipun sem Ísland er bundið af eða sé of fortakslaus því frjáls söfnun persónuupplýsinga sé hvergi heimil í hinum vestræna heimi.

Lesa meira
 

Tölvunotkunarreglur Akureyrarbæjar

Persónuvernd samþykkti umsögn um tölvunotkunarreglur Akureyrarbæjar. Í umsögninni kemur m.a fram að bænum sé óheimilt að skoða gögn um netnotkun einstakra starfsmanna sinna nema fyrir liggi rökstuddur grunur um misnotkun.
Lesa meira
 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica