Umsagnir 2008
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga
Með bréfi, dags. 1. febrúar sl., óskaði félags- og tryggingamálanefndar Alþingis eftir umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um atvinnuréttindi útlendinga o.fl., 338. mál, tegundir atvinnuleyfa, EES-reglur o.fl.
Helstu ábendingar Persónuverndar voru eftirfarandi:
-
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að Vinnumálastofnun og lögreglu verði heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal þeirra sem viðkvæmar geta talist, að því marki sem slík vinnsla telst nauðsynleg við framkvæmd laganna. Persónuvernd telur þetta ákvæði of víðtækt og óskýrt og lagði til að annað hvort yrði ákvæðið fellt niður eða, ef reynslan hefði leitt í ljós að valdheimildir Vinnumálastofnunar og lögreglu væru ófullnægjandi, að vegið yrði og metið hvaða tilteknu heimildir þeim væru nauðsynlegar og þær síðan færðar í lög með skýrari hætti.
-
Í frumvarpinu er lagt til að, að því marki sem nauðsynlegt er til að tryggja að útlendingar dvelji og starfi löglega hér á landi, verði heimilt að samkeyra upplýsingar Vinnumálastofnunar, Útlendingastofnunar, lögreglu, skattyfirvalda og Þjóðskrár. Slíkar samkeyrslur skuli gerðar án þess að upplýsingar úr skrám einstakra stofnana verði sendar öðrum stofnunum umfram það sem nauðsynlegt sé til skoðunar á fyrirfram skilgreindu athugunarefni. Persónuvernd telur ákvæðið skýrara og í betri samræmi við meginreglur persónuupplýsingaréttarins en ákvæði gildandi laga, en benti þó á að taka mætti sérstaklega fram í ákvæðinu sjálfu að leit í skrám annarra stjórnvalda með samkeyrslu ætti einungis að skila jákvæðri eða neikvæðri niðurstöðu um það, hvort tiltekinn einstaklings sé að finna í skrám hins stjórnvaldsins.

