Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna flutnings á þjóðskrá og almannaskráningu frá Hagstofu Íslands til dómsmálaráðuneytisins
Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna flutnings á þjóðskrá og almannaskráningu frá Hagstofu Íslands til dómsmálaráðuneytisins
Persónuvernd vísar til bréfs allsherjarnefndar, dags. 27. mars sl., þar sem óskað er umsagnar Persónuverndar um frumvarp til laga um flutning þjóðskrár og almannaskráningar frá Hagstofu Íslands til dómsmálaráðuneytis, 567. mál, (þskj. 822, 132. löggjafarþing).
Persónuvernd gerir ekki athugasemdir við flutning þjóðskrár frá Hagstofu Íslands til dómsmálaráðuneytisins en vill koma eftirfarandi ábendingum á framfæri:
1.
Í VIII. kafla frumvarpsins, 22. gr., eru lagðar til breytingar á 14. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga í þá veru að í stað þess að tala um „skrá Hagstofu Íslands," þ.e. bannskrá, verði talað um „bannskrá Þjóðskrár."
Þrátt fyrir að ákvæði 22. gr. frumvarps þessa sé eingöngu ætlað að færa orðalag húsgöngu- og fjarsölulaga til samræmis við fyrirhugaðan flutnings þjóðskrár til dómsmálaráðuneytisins þykir Persónuvernd rétt að benda á að:
Ákvæði 2. mgr. 14. gr. húsgöngu- og fjarsölulaga hefur ekki sjálfstæða þýðingu, þar sem skylda þeirra sem starfa í beinni markaðssókn til að taka tillit til skráninga í bannskrá leiðir af almennum lagaákvæðum þar að lútandi
Ákvæði 1. og 3. mgr. 14. gr. húsgöngu- og fjarsölulaga eru í ósamræmi við yngri ákvæði 46. gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003. Slíkt getur leitt til réttaróvissu og leitt til lakari verndar hinna skráðu.
Með vísan til framangreinds telur Persónuvernd æskilegt að með 22. gr. frumvarps þess sem hér er til umsagnar verði 14. gr. húsgöngu- og fjarsölulaga annað hvort felld brott, eða breytt á þá leið að hún feli eingöngu í sér tilvísun í lagaákvæði um bannskrá Þjóðskrár og ákvæði fjarskiptalaga.
2.
Í IX. kafla, 23. gr., eru lagðar til breytingar á 28. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Ætlunin er færa orðalag ákvæðisins til samræmis við fyrirhugaðan flutnings þjóðskrár til dómsmálaráðuneytisins.
Persónuvernd gerir ekki athugasemdir við þetta ákvæði, en vill þó koma því á framfæri að hún telur þörf á frekari breytingum á ákvæði 28. gr. laga nr. 77/2000, fyrst og fremst til að gera það skýrara, og hefur þegar unnið drög að tillögum þar að lútandi. Stofnunin gerir sér þó grein fyrir því að til slíkra breytinga vinnst ekki tími í þetta sinn og mun því ekki leggja tillögurnar fram að svo stöddu.
Að öðru leyti verða ekki gerðar athugasemdir við frumvarp þetta.

