Efst á baugi - Úrskurðir o.fl.

Upplýsingar um fjárhagsmálefni lögaðila. Nýtt leyfi fyrir Lánstraust

21.12.2009

Lánstrausti (CreditInfo) hefur verið veitt nýtt leyfi til að vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust lögaðila.

Orðalagi í lið a.1 greinar 3.1 hefur verið breytt. Ákvæði sem áður var í f-lið 3. greinar er nú í 4. gr. Þessar breytingar hafa það að markmiði að gera texta leyfisins skýrari en fela ekki í sér efnislegar breytingar.

Starfsleyfið gildir til 1. desember árið 2010.

Starfsleyfið má finna hér.