Efst á baugi - Úrskurðir o.fl.

Máli gegn Persónuvernd vísað frá í héraði - 6.2.2012

Í gær var kveðinn upp dómur í máli sem höfðað var gegn Persónuvernd. Málið varðari heimildir Seðlabanka Íslands til vinnslu persónuupplýsinga í þágu gjaldeyriseftirlits. Af hálfu stefnda Persónuverndar var bent á að hún hafði ekki gefið út neitt leyfi til Seðlabanka Íslands heldur byggðist heimild bankans á ákvæðum settra laga. Auk þess ætti stefnandi ekki aðild þar sem hann hefði ekki sérstakra, verulegra og lögvarinna hagsmuna að gæta. Á það var fallist og málinu því vísað frá dómi. Var stefnanda gert að greiða málskostnað.

Lesa meira
 

Skoðun á tölvupósti fyrrverandi starfsmanns - 6.2.2012

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli einstaklings varðandi skoðun vinnuveitanda á tölvupósti. Taldi Persónuvernd að vinnuveitandanum hefði verið heimilt að skoða tölvupóstinn í þeim tilgangi að kanna hvort ólögmætir viðskiptahættir hafi átt sér stað. Þó var lagt fyrir hann að setja starfsreglur um meðferð tölvupósts við starfslok eða veita starfsfólki með öðrum hætti fræðslu til samræmis við ákvæði reglna um rafræna vöktun.

Lesa meira
 

Áframsending verkbeiðni - 6.2.2012

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns sem kvartaði yfir að tölvupóstur sem honum var sendur í vinnunni hafi verið lesinn af samstarfsmönnum. Nánar tiltekið var um að ræða rafræna verkbeiðni. Í vettvangsskoðun Persónuverndar kom ekkert fram sem benti til þess að umrædd verkbeiðni hefði misfarist vegna ákvarðana fyrirtæksins eða af ástæðum sem rekja mætti til mistaka eða vanrækslu. Persónuvernd taldi fyrirtækið ekki hafa brotið gegn ákvæðum laga um persónuvernd með þeim afleiðingum að verkbeiðnir misfórust í póskerfi fyrirtækisins.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar og tilkynningar í janúar 2012 - 3.2.2012

Í janúar 2012 voru samtals veitt 14 leyfi í tengslum við rannsóknir og verkefni. Einnig bárust stofnuninni 50 tilkynningar um vinnslu persónuupplýsinga.

Lesa meira
 

Evrópski persónuverndardagurinn 2012 - 31.1.2012

Evrópski persónuverndardagurinn var haldinn 28. janúar síðastliðinn í sjötta skipti. Dagurinn er haldinn hátíðlegur þennan dag þar sem Evrópuráðssamningur um vernd einstaklinga varðandi vélræna vinnslu persónupplýsinga var gerður þennan dag árið 1981. Ætlunin með Persónuverndardeginum er að vekja athygli almennings á réttinum til persónuverndar og friðhelgi einkalífs. Í tilefni dagsins sótti forstjóri Persónuverndar ráðstefnu hjá dönsku persónuverndarstofnuninni. Þá gaf Persónuvernd einnig út leiðbeiningar um hvernig stjórna skuli friðhelgisstillingum á samfélagsvefsíðunni Facebook.

Lesa meira
 

Umsögn um frumvarp til sjúkratryggingalaga og lyfjalaga - 25.1.2012

Persónuvernd hefur veitt umsögn um frumvarp til breytinga á sjúkratryggingalögum og lyfjalögum. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir auknum aðgangi að lyfjagagnagrunni landlæknis, til m.a. Sjúkratrygginga Íslands og til heimilislækna í tengslum við meðferð sjúklings. Persónuvernd leggst gegn því að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Lesa meira
 

Umsögn um frumvarp til fjarskiptalaga - 25.1.2012

Persónuvernd hefur veitt umsögn um frumvarp til laga um breytingu á fjarskiptalögum. Í frumvarpinu er m.a. gert ráð fyrir að starfræktur verði starfshópur (CERT-ÍS) sem myndi hafa víðtækar heimildir til að skoða samskipti á Netinu án dómsúrskurðar. Persónuvernd telur að ávallt skuli afla dómsúrskurðar áður en slík skoðun fer fram. Þá telur hún of margt óljóst varðandi hina tæknilegu framkvæmd, og að í þeim efnum þarfnist frumvarpið frekari skoðunar.

Lesa meira
 

Birting úrskurðar siðanefndar - 24.1.2012

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns, sem kvartaði yfir því að tiltekinn úrskurður var birtur í Læknablaðinu og á vefsíðu. Persónuvernd taldi að siðanefndinni hefði verið óheimilt að birta úrskurðinn með þeim hætti sem gert var. Lesa meira
 

Eyðing upplýsinga úr Eurodac-gagnagrunni - 20.1.2012

Persónuvernd hefur lagt fyrir ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun að móta verklag sem tryggir að fari verði að fyrirmælum reglugerðar um eyðingu upplýsinga sem færðar eru í s.k. Eurodoc-gagnagrunn. Upplýsingum í grunninum, sem varðveittar eru án heimildar, skal eytt. Um  er að ræða fingraför hælisleitenda, ólöglegra innflytjenda og þeirra sem handteknir eru í tengslum við ólöglega för yfir ytri landamæri Schengen en hafa fengið dvalarleyfi eða ríkisborgararétt.
Lesa meira
 

Miðlun vegna manntals - 20.1.2012

Persónuvernd hefur veitt umsögn um heimild Fangelsismálastofnunar til að miðla upplýsingum um fangelsisvist einstaklinga vegna töku manntals hjá Hagstofu. Það er niðurstaða Persónuverndar að Hagstofa hafi heimild til að krefja Fangelsismálastofnun um persónuupplýsingar, sem nauðsynlegar eru vegna manntals, á grundvelli lagaheimildar.

Lesa meira
 

Undirritun á kvittun við gjaldeyriskaup - 20.1.2012

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns varðandi heimild fjármálafyritækis til að krefjast undirskriftar á kvittun við gjaldeyriskaup. Af hálfu fyrirtækisins kom fram að ekki væri hægt að leita í kvittunum eftir nafni eða kennitölu. Persónuvernd taldi að fjármálafyrirtækið hefði af því lögmæta hagsmuni að gera kröfu um undirritun á kvittun við gjaldeyriskaup og því væri hún heimil, að teknu tilliti til þeirrar aðferðar sem viðhöfð var.

Lesa meira
 

Skuldbindingarskrá fjármálafyrirtækja - 12.1.2012

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn Fjármálaeftirlitsins um skuldbindingarskrá. Í svarinu er m.a. útskýrt að Fjármálaeftirlitið þurfi að lögum bæði að hafa heimild til safna persónuupplýsingum á umrædda skrá og til að miðla þeim til Seðlabankans eða annarra.
Lesa meira
 

Markaðsrannsókn á börnum - 12.1.2012

Persónuvernd barst kvörtun föður yfir markaðskönnun fyrirtækis, en hringt hafði verið í 12 ára dóttur hans að kvöldi til. Við rannsókn málsins kom ekki í ljós að fram hefði farið vinnsla persónuupplýsinga um barnið. Var málið þá fellt niður.

Lesa meira
 

Fyrirspurn um ósamræmi í afgreiðslu - 12.1.2012

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurnum einstaklinga sem telja vera ósamræmi í afgreiðslum hennar, annars vegar varðandi tilkynningarlínu einkafyrirækis og hins vegar varðandi nafnlausar ábendingar á vefsíðum stjórnvalda. Þar sem nokkrar slíkar fyrirspurnir hafa borist hefur, til almennrar leiðbeiningar, verið ákveðið að birta eftirfarandi svar við einni fyrirspurn.
Lesa meira
 

Gagnagrunnur um fólk með lokastigslifrarsjúkdóma - 5.1.2012

Persónuvernd barst erindi frá LSH varðandi gagnagrunn með persónuupplýsingum um sjúklinga með skorpulifur og lifrarsjúkdóm á lokastigi. Persónuvernd telur ekki vera fyrir hendi fullnægjandi heimild fyrir gerð og rekstri slíks gagnagrunns.
Lesa meira
 

Samþykki í gegnum heimabanka - 5.1.2012

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn um hvort það nægi að menn gefi samþykki sitt í gegnum heimabankakerfi. Persónuvernd telur svo vera, svo fremi um sé að ræða upplýst samþykki, frjálst og ótvírætt. Lesa meira
 

Aukning á málafjölda á milli ára hjá Persónuvernd - 3.1.2012

Stöðug aukning hefur orðið í fjölda innkominna erinda hjá Persónuvernd, en á árinu 2011 voru nýskráð mál alls 1397 talsins. Þá voru til afgreiðslu 190 óafgreidd erindi frá fyrra ári. Alls hafði stofnunin því til meðferðar 1587 mál á árinu. Höfðu 1307 mál verið afgreidd við árslok. Til samanburðar voru nýskráð mál á árinu 2010 alls 1207. Það er tæplega 16% (15,74) aukning á milli ára. Lesa meira
 

Leyfisveitingar og tilkynningar í desember 2011 - 3.1.2012

Í desember voru samtals veitt 3 leyfi í tengslum við rannsóknir og verkefni. Einnig bárust stofnuninni 31 tilkynning um vinnslu persónuupplýsinga.

Lesa meira
 

Viðbrögð við fréttum um gagnagrunn FME - 28.12.2011

Persónuvernd hafa borist fyrirspurnir vegna fréttaumfjöllunar um gagnagrunn Fjármálaeftirlitsins um verðbréfaviðskipti. Hefur því verið haldið fram að hann hafi ekki komið að notum þar sem Persónuvernd hafi lagst gegn því að leitað yrði eftir kennitölum fyrirtækja. Af því tilefni vill Persónuvernd koma upplýsingum á framfæri.

Lesa meira
 

Aðgangur að sjúkraskrá í tengslum við rekstur matsmáls fyrir héraðsdómi - 28.12.2011

Persónuvernd barst kvörtun manns yfir því að starfsmenn LSH hefðu farið í sjúkraskrá hans í tengslum við rekstur dómsmáls milli mannsins og spítalans.  Yfirstjórn LSH hafði lagt fyrir starfsmennina að skoða umræddar upplýsingar. Persónuvernd taldi LSH hafa verið þetta heimilt til að verjast í því máli sem maðurinn hafði höfðað gegn spítalanum.

Lesa meira
 

Undanþága frá því að virða bannmerkingu í Þjóðskrá - 28.12.2011

Persónuvernd barst umsókn styrktarfélags um undanþágu frá því að virða bannmerkingar í Þjóðskrá við áritun og útsendingu happdrættismiða. Persónuvernd ákvað að synja umsókninni þar sem ekki væri um að ræða sérstakt tilvik í skilningi 2. mgr. 28. gr. laga nr. 77/2000. Lesa meira
 

Dagbók grunnskólanemanda - 28.12.2011

Persónuvernd barst kvörtun móður yfir því að skólastjóri hafi fengið í hendur rafræna dagbók dóttur sinnar, en dóttirin er nemandi við viðkomandi grunnskóla. Var málið fellt niður þar sem málið sætir nú áfrýjun til Hæstaréttar. Lesa meira
 

Niðurfelling máls varðandi Umferðarstofu - 20.12.2011

Persónuvernd bárust ábendingar vegna blaðagreinar sem bar með sér að sektarlistar lögreglu hefðu verið samkeyrðir við óskalista um hraðahindranir. Umferðarstofa kvað greinina hafa verið villandi. Samkeyrslan hafði aldrei farið fram. Málið var fellt niður.

Lesa meira
 

Vöktun við Hvalfjarðargöng - 20.12.2011

Persónuvernd hefur fjallað um lögmæti rafrænnar vöktunar í og við Hvalfjarðargöng á vegum Spalar ehf. Í kjölfar vettvangskönnunar, og eftir úrbætur sem fyrirtækið gerði á fræðslu til ökumanna, taldi stofnunin að vöktunin uppfyllti skilyrði 24. gr. laga nr. 77/2000.

Lesa meira
 

Persónuvernd kallar eftir skýringum - 9.12.2011

Persónuvernd hefur ákveðið að kalla eftir skýringum Landspítala - Háskólasjúkrahúss af tilefni ábendinga og kvartana yfir meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga um 158 einstaklinga í tengslum við rannsókn á ofbeldi í nánum samböndum. Mun upplýsingum um þá hafa verið miðað frá LSH og dreift með tölvupósti.

Lesa meira
 

Birting úrskurða og álita endurskoðendaráðs - 9.12.2011

Persónuvernd hefur fjallað um birtingu niðurstaðna hjá endurskoðendaráði. Taldi stofnunin að almenn lagaheimild stæði til birtingar úrskurða og rökstuddra ákvarðana um að vísa málum til opinberrar rannsóknar, en slík heimild stæði ekki til að birta áminningar þess og tillögur.

Lesa meira
 

Umsögn um frumvarpsdrög varðandi þvinganir á fötluðum - 9.12.2011

Persónuvernd hefur veitt umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindagæslu fatlaðra. Í drögunum var gert ráð fyrir rafrænni vöktun sem þvingunaraðgerð. Að mati stofnunarinnar fela drögin í sér umtalsverða íhlutun í stjórnarskrárvarin réttindi um friðhelgi einkalífs, auk þess sem þau gangi töluvert lengra heldur en samsvarandi ákvæði í norskum og dönskum lögum.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar og tilkynningar í nóvember 2011 - 5.12.2011

Í nóvember voru samtals veitt 10 leyfi í tengslum við rannsóknir og verkefni. Einnig bárust stofnuninni 38 tilkynningar um vinnslu persónuupplýsinga. Lesa meira
 

Um valdmörk og lagaskil - 30.11.2011

Persónuvernd hefur svarað þremur erindum sem öll varða skýringu á valdmörkum Persónuverndar og lagaskilum persónuverndarlöggjafar.

- Í fyrsta tilvikinu var um að ræða miðlun persónuupplýsinga frá þýsku fyrirtæki til Seðlabanka Íslands. Persónuvernd vakti athygli þýsku stofnunarinnar á því.

- Í öðru tilviki var um að ræða birtingu upplýsinga tengdar ferðum skipa á grískri vefsíðu. Persónuvernd vakti athygli grísku stofnunarinnar á því.

- Þriðja málið varðaði söfnun persónuupplýsinga í gegnum tölvuleik á Netinu. Persónuvernd úrskýrði helstu sjónarmið, en tók ekki efnislega afstöðu til lögmætis vinnslunnar.

Lesa meira
 

Markpóstur sendur sambýliskonu - 21.11.2011

Persónuvernd barst kvörtun yfir markpósti frá Frumherja. Notaðar voru upplýsingar um sambýliskonu kvartanda, en það var ekki hún sjálf sem kvartaði. Í ljós kom að kvartandi hafði ekki umboð hennar til að fara með málið fyrir hennar hönd. Var það þá fellt niður. Lesa meira
 

Ferilvöktun í strætisvögnum - 15.11.2011

Úrskurðað hefur verið í ágreiningsmáli um lögmæti ferilvöktunarkerfis hjá Strætó bs. Í úrskurði er litið til þess að starfsmenn aka vögnum fyrirtækisins eingöngu við vinnu en ekki við athafnir sem tilheyra heimilum þeirra eða einkalífi að öðru leyfi. Þá er litið til þeirra hagsmuna sem Strætó bs. hafði vísað til.  Vöktunin var talin heimil, en annmarkar taldir hafa verið á fræðslu til starfsmanna.

Lesa meira
 

Miðlun persónuupplýsinga um fanga - 15.11.2011

Persónuvernd barst kvörtun fanga vegna miðlunar persónuupplýsinga um hann frá Fangelsismálastofnun til Tryggingarstofnunar. Miðlunin fór fram í tengslum við ákvörðun um greiðslu vasapeninga. Að mati Persónuverndar var hún liður í því að Tryggingastofnun gæti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og þar með heimil.

Lesa meira
 

Upplýsingar um greiðsluaðlögun - 15.11.2011

Persónuvernd barst ábending um að aðili sem selur mat í grunnskólum krefði upplýsinga um greiðsluaðlögun viðskiptavina. Í kjölfar útskýringa frá Umboðsmanni skuldara, og lögmanni fyrirtækisins, var tekin ákvörðun um að fella málið niður.
Lesa meira
 

Persónuupplýsingar úr tölvuleik fluttar út fyrir EES - 8.11.2011

Persónuvernd fékk kvörtun frá manni sem hafði tekið þátt í tölvuleik á netinu. Hann kvartaði yfir því að CCP hefði flutt persónuupplýsingar um sig til landa sem ekki veittu þeim fullnægjandi vernd. Persónuvernd taldi að hvorki lægi fyrir samþykki kvartanda, né að umræddur flutningur hefði verið nauðsynlegur - í skilningi laganna - til að efna samning við hann. Því var flutningur upplýsinganna ekki talinn heimill.

Lesa meira
 

Miðlun upplýsinga frá tannlæknum til kortafyrirtækis - 8.11.2011

Tannlæknafélag Íslands spurði hvort tannlæknar mættu afhenda kortafyrirtæki upplýsingar um kortalán vegna læknismeðferðar, og afrit vörureikninga. Var það álit Persónuverndar að ekki mætti veita fyrirtækinu upplýsingar um tegund veittrar læknismeðferðar. Lesa meira
 

Leyfisveitingar og tilkynningar í september og október 2011 - 8.11.2011

Í september og október 2011 voru samtals veitt 8 leyfi í tengslum við rannsóknir og verkefni. Þá var veitt eitt leyfi til flutnings persónuupplýsinga úr landi. Einnig bárust stofnuninni 91 tilkynning um vinnslu persónuupplýsinga. Lesa meira
 

Birting Kópavogsbæjar á teikningum af húsum og tengdum upplýsingum - 1.11.2011

Persónuvernd hefur fjallað um birtingu Kópavogsbæjar á teikningum af húsum og tengdum upplýsingum á vefsíðu bæjarins.

Lesa meira
 

Verklagsreglur um varðveislutíma fjarskiptaupplýsinga - 28.10.2011

Persónuvernd hefur fjallað um verklagsreglur Símans um varðveislutíma fjarskiptaupplýsinga og talið þær ekki vera nægilega skýrar.

Lesa meira
 

Kennitölur í fundargerðum byggingafulltrúa Reykjavíkur - 28.10.2011

Persónuvernd fékk kvörtun yfir birtingu kennitalna í fundargerðum byggingafulltrúa Reykjavíkurborgar. Fallið var frá slíkri birtingu og var málið þá fellt niður.

Lesa meira
 

Upplýsingar um einstaklinga í greiðsluaðlögun - 26.10.2011

Persónuvernd hefur fjallað um skráningu banka á persónuupplýsingum um einstaklinga í greiðsluaðlögun.Skráning úr Lögbirtingablaðinu, til innanhússnota, var talin vera heimil.

Lesa meira
 

Sala Creditinfo á upplýsingum um áhættumat á einstaklingum - 21.10.2011

Persónuvernd hefur talið vinnslu Creditinfo á upplýsingum um áhættumat á einstaklingum, geta samrýmst lögum um meðferð persónuupplýsinga.

Lesa meira
 

Persónuupplýsingar úr tilkynningalínu Alcan fluttar úr landi - 21.10.2011

Persónuvernd hefur veitt Alcan leyfi til flutnings persónuupplýsinga úr landi, þ.e. til aðila (InTouch) í Bandaríkjunum og til Ástralíu, í tengslum við kerfi fyrir uppljóstrarnir frá starfsmönnum.

Lesa meira
 

Kennitöluskráning við skil á vöru - 12.10.2011

A kvartaði yfir að verslun hafi gert það að skilyrði að kennitala dóttur hans, B, yrði skráð þegar hún skilaði vöru fyrir A. Varan var ógölluð. Persónuvernd taldi að versluninni hafi verið heimilt að skrá kennitölu B, en veitt var meiri þjónusta en lögskylt er.

Lesa meira
 

Mál til meðferðar hjá annarri stofnun (PFS) - 12.10.2011

A kvartaði yfir því að vinnuveitandi hafi skoðað tölvupósthólf hennar. Lögmaður hennar gerði þá kröfu að Persónuvernd tæki málið til efnislegrar meðferðar þótt að það væri til meðferðar hjá Póst- og fjarskiptastofnun (PFS). Var niðurstaða Persónuverndar sú að málið yrði ekki tekið til meðferðar meðan það væri hjá PFS, m.a. í ljósi skörunar á verksviðum þessara stofnana. Að lokinni umfjöllun PFS myndi Persónuvernd eftir atvikum taka það til úrskurðar.

Lesa meira
 

Umsögn um verklagsreglur - 12.10.2011

Póst- og fjarskiptastofnun óskaði svara Persónuverndar um verklagsreglur Símans hf. Persónuvernd taldi verklagsreglur Símans hf. ekki nægilega skýrar að því er varðar varðveislutíma persónuupplýsinga um fjarskiptanotkun einstaklinga þannig að af mætti ráða hvort Síminn hf. ynni í samræmi við ákvæði fjarskiptalaga.
Lesa meira
 

Upplýsingar um fyrnda kröfu - 7.10.2011

Maður kvartaði yfir varðveislu fjarskiptafyrirtækis á persónuupplýsingum um fyrnda kröfu á hendur sér. Fyrir lá bréf frá Póst- og fjarskiptastofnun. Í fjarskiptalögum er ekki sérregla um bann við slíkri varðveislu. Persónuvernd leit m.a. til hagsmuna fyrirtækis af því að hafa yfirsýn yfir eigin fjármál og viðskiptasögu - og taldi hagsmuni hins skráða, af því að upplýsingunum yrði eytt, ekki vega þyngra. Ekki var tekin afstaða til þess hvernig fjarskiptafyrirtækið mætti nota upplýsingarnar.

Lesa meira
 

Birting lista yfir hundaeigendur - 7.10.2011

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn Reykjavíkurborgar um hvort henni sé heimilt að birta lista yfir hundaeigendur. Í svarinu kemur fram að ákvæði upplýsingalaga, um rétt almennings til aðgangs að gögnum hjá stjórnvöldum sem varða tiltekið mál, eigi ekki við um skrá yfir þá sem fengið hafa leyfi til hundahalds. Er Reykjavíkurborg leiðbeint um að meta hvort skilyrði 8. gr. pvl. séu uppfyllt.

Lesa meira
 

Gildi tveggja ákvarðana tölvunefndar - 7.10.2011

Persónuvernd svaraði fyrirspurn slitastjórnar varðandi efni og gildi tveggja ákvarðana tölvunefndar, þ.e. hvort þær hafi áhrif á heimildir Þjóðskrár Íslands og Umferðarstofu til að miðla tilteknum persónuupplýsingum til slitastjórnarinnar. Í svarinu segir að umræddar stofnanir hafi sömu heimildir til að miðla upplýsingum til slitastjórnar og þær hafa til að miðla upplýsingum til skiptastjóra samkvæmt gjaldþrotaskiptalögum.

Lesa meira
 

Spurningalisti Vinnumálastofnunar - 4.10.2011

Kona, sem hafði þegið atvinnuleysisbætur, kvartaði yfir söfnun viðkvæmra persónuupplýsinga á námskeiði Vinnumálastofnunar. Spurningalisti hafi verið lagður fyrir hana en hún hafi í raun ekki átt neitt val um að svara honum ekki. Persónuvernd taldi vinnsluna ekki hafa verið heimila.

Lesa meira
 

Varðveisla lögreglu á persónuupplýsingum - 4.10.2011

Persónuvernd hefur svarað kvörtun manns yfir varðveislu persónuupplýsinga hjá Lögreglunni á Suðurnesjum. Um var að ræða upplýsingar um slys. Persónuvernd taldi að á lögreglu hvíldi skylda til að varðveita slík gögn og því bæri henni að varðveita þá skýrslu sem erindið laut að. Lesa meira
 

Persónuupplýsingar bornar í hús - 4.10.2011

Persónuvernd barst kvörtun A yfir því að maður dreifði í hús miðum sem á voru rituð ókvæðisorð í garð A, mynd af honum og hlekkur inn á dóm Hæstaréttar varðandi brot A. Fyrir lá að málið var þegar á borði lögreglu og því var ekki fjallað um það frekar.

Lesa meira
 

Umsögn um tillögu Stjórnlagaráðs - 28.9.2011

Persónuvernd hefur gefið umsögn um drög Stjórnlagaráðs að breyttum stjórnarskrárákvæðum um notkun upplýsinga. Að mati Persónuverndar þarf að ígrunda vandlega hvort að ákvæði 7. gr. í drögum ráðsins fái örugglega samrýmst tilskipun sem Ísland er bundið af eða sé of fortakslaus því frjáls söfnun persónuupplýsinga sé hvergi heimil í hinum vestræna heimi.

Lesa meira
 

Vinnsla persónuupplýsinga um dagforeldra - 28.9.2011

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn Barnavistunar (félags dagforeldra) um það hvort Reykjavíkurborg megi vinna fjárhagsupplýsingar um dagforeldra. Persónuvernd telur Reykjavíkurborg vera heimilt að óska eftir kvittunum og reikningum frá dagforeldrum.

Lesa meira
 

Mál vegna markaðssetningar fellt niður - 28.9.2011

Póst- og fjarskiptastofnun sendi til Persónuverndar kvörtun manns yfir því að hafa fengið óumbeðinn tölvupóst frá frambjóðanda til stjórnlagaþings. Persónuvernd taldi ekki vera tilefni til að taka málið upp sem frumkvæðismál. Var það fellt niður.
Lesa meira
 

Ársskýrsla Persónuverndar 2010 komin út - 27.9.2011

Ársskýrsla Persónuverndar fyrir árið 2010 er komin út. Þar eru birtar almennar upplýsingar um stofnunina og starfsemi hennar, helstu álit og úrskurðir, yfirlit yfir útgefin leyfi og úttektarverkefni, samantekt um erlent samstarf, lög og reglur og yfirlit yfir rekstrarreikning.

Lesa meira
 

Nýr formaður stjórnar Persónuverndar skipaður - 21.9.2011

Innanríkisráðherra hefur skipað Björgu Thorarensen, lagaprófessor við lagadeild Háskóla Íslands, nýjan formann stjórnar Persónuverndar. Verður hún þá annar formaður stjórnarinnar. Tekur hún við af Páli Hreinssyni, hæstaréttardómara, en hann hefur tekið við starfi dómara hjá EFTA-dómstólnum í Lúxemborg.

Lesa meira
 

Upplýsingar um vanskil á umslagi bréfs - 20.9.2011

Maður kvartaði yfir umslagi sem Orkubú Vestfjarða notaði fyrir áminningarbréf. Á umslaginu var áritun sem bar með sér að viðtakandi þess væri í vanskilum. Var það niðurstaða Persónuverndar að þetta fæli í sér miðlun upplýsinga sem ekki væri heimil.

Lesa meira
 

Fræðsla í tengslum við spurningalista skólahjúkrunarfræðings - 20.9.2011

Foreldri kvartaði yfir upplýsingasöfnun skólahjúkrunarfræðings. Gert var ráð fyrir að foreldrar samþykktu söfnun heilsufarsupplýsinga um börnin sín en kvartanda þótti hann ekki hafa fengið næga fræðslu. Til dæmis hefði ekki komið fram hvað yrði um upplýsingarnar og hver væri ábyrgðaraðili. Það var niðurstaða Persónuverndar að fræðslan hefði verið ófullnægjandi. Lesa meira
 

Upplýsingar úr starfsmannaviðtölum - 20.9.2011

Maður kvartaði yfir því að yfirmaður hans hefði skilið möppu, með upplýsingum úr starfsmannasamtölum, eftir á borði í starfsmannarými. Þar hefðu aðrir getað skoðað möppuna og það sem í henni var. Persónuvernd lagði fyrir ábyrgðaraðila að fara yfir starfsreglur sínar um meðferð trúnaðarupplýsinga. Lesa meira
 

Upplýsingar um innbústryggingar til Viðlagatryggingar - 13.9.2011

Persónuvernd hefur svarað erindi tryggingarfélags um heimild til að afhenda upplýsingar um innbústryggingar til Viðlagatryggingar Íslands. Tilgangurinn var að áætla hugsanlegar bótagreiðslur Viðlagatryggingar vegna tjóns á vátryggðu lausafé. Persónuvernd taldi að afhendingin væri heimil. Lesa meira
 

Markaðssetningarherferð Kreditkorta - 13.9.2011

Neytendasamtökin óskuðu álits á lögmæti markaðssetningaraðferðar Kreditkorta. Hún gerðist með sendingu tölvupósta. Vegna skörunar við valdmörk við Póst- og fjarskiptastofnun var málinu vísað frá.
Lesa meira
 

Upplýsingaréttur tengdur þátttöku í tölvuleik á netinu - 13.9.2011

Maður kvartaði yfir því að CCP hefði ekki virt upplýsingarétt sinn. Persónuvernd taldi að umrædd vinnsla hafi verið CCP heimil og að fyrirtækið hefði veitt kvartanda þá vitneskju sem því bar, að virtum atvikum máls. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í ágúst 2011 - 7.9.2011

Í ágúst voru gefin út alls 6 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni. Lesa meira
 

Óheimil krafa TR um fjárhagsupplýsingar - 5.9.2011

Kona kvartaði til Persónuverndar yfir Tryggingastofnun ríkisins. Hún hafði sótt um að fá örorkuskírteini frá stofnuninni, en réttur til að fá slíkt skírteini ræðst af örorku og er óháður tekjum. Persónuvernd taldi að ekki hafi verið til staðar þörf hjá TR, og þar með heimild, til að gera kröfu um að fá fjárhagsupplýsingar um konuna.

Lesa meira
 

Útsending tölvupósts um meintan þjófnað starfsmanns - 5.9.2011

Persónuvernd hefur fjallað um kvörtun manns yfir því að forstjóri á hans fyrri vinnustað sendi tölvupósta til allra starfsmanna fyrirtækisins, um meintan þjófnað mannsins. Persónuvernd taldi að sú aðgerð hafi verið óheimil.
Lesa meira
 

Tölvunotkunarreglur Akureyrarbæjar - 5.9.2011

Persónuvernd samþykkti umsögn um tölvunotkunarreglur Akureyrarbæjar. Í umsögninni kemur m.a fram að bænum sé óheimilt að skoða gögn um netnotkun einstakra starfsmanna sinna nema fyrir liggi rökstuddur grunur um misnotkun.
Lesa meira
 

Óheimil miðlun persónuupplýsinga frá Barnavernd - 30.8.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað um kvörtun konu yfir miðlun upplýsinga frá Barnavernd Reykjavíkur. Miðlunin var í þágu nemendaverkefnis við HÍ. Um var að ræða upplýsingar um félagsleg vandamál. Persónuvernd taldi miðlunina hafa verið óheimila, m.a. að virtum ákvæðum barnaverndarlaga.

Lesa meira
 

Kvörtun yfir spurningalistakönnun í grunnskóla - 30.8.2011

Persónuvernd hefur fjallað um kvörtun manns yfir rannsókninni „Ungt fólk 2011.“ Að mati Persónuverndar var ekki unnt að rekja svör til svarenda. Því voru ekki lagaskilyrði til þess að hún legði úrskurð á hvort heimilt hefði verið að leggja umrædda könnun fyrir nemendur án samþykkis foreldra.  Varð því að vísa málinu frá.
Lesa meira
 

Kvörtun yfir markaðssetningarstarfsemi. - 30.8.2011

Persónuvernd hefur fjallað um kvörtun manns yfir því að hringt var í hann vegna markaðssetningarstarfsemi. Í fjarskiptalögum er bann við því að við beina markaðssetningu sé hringt í menn án þeirra samþykkis. Það er ekki Persónuvernd sem hefur eftirlit með þeim lögum heldur Póst- og fjarskiptastofnun. Afskiptum Persónuverndar af málinu er lokið.

Lesa meira
 

Skilaboð stjórnvalda um nafnlausar ábendingar - 24.8.2011

Persónuvernd hefur fjallað um hnappa, sem sum stjórnvöld setja á vefsíður sínar, fyrir nafnlausar ábendingar um meint svik o.þ.h. Niðurstaða Persónuverndar er sú að það samrýmist ekki grundvallarreglum um vandaða vinnsluhætti að stjórnvöld hvetji menn með þeim hætti til að koma sín persónuupplýsingum í skjóli nafnleyndar.

Lesa meira
 

Leiðbeinandi tilmæli FME nr. 3/2010 - 12.8.2011

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn fjármálafyrirtækis um hvort vinnsla fjármálafyrirtækja með upplýsingar um fjárhagsmálefni starfsmanna - sem fram fer samkvæmt tilmælum FME - samræmist lögum um persónuvernd. Þá var spurt hvort starfsmenn gætu neitað að afhenda upplýsingarnar.
Lesa meira
 

Miðlun upplýsinga hjá Fæðingarskrá Íslands - 12.8.2011

Persónuvernd hefur gefið út álit varðandi miðlun landlæknis til Hagstofu Íslands á persónuupplýsingum úr fæðingarskrá. Var miðlunin talin heimil en lagt fyrir þessar stofnanir að senda Persónuvernd lýsingu á öryggisráðstöfunum sínum til að hindra aðgang óviðkomandi að upplýsingunum - og til að verja þær að öðru leyti.

Lesa meira
 

Afhending nafnalista hjá stéttarfélagi - 8.8.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað um afhendingu nafnalista yfir félagsmenn VR til frambjóðenda í kjöri til formanns og stjórnar félagsins. Persónuvernd taldi að afhendingin væri heimil þar sem hún var liður í lögmætri starfsemi samtakanna og tók aðeins til félagsmanna.

Lesa meira
 

Ákvörðun um leyfisskyldu vegna rannsóknar - 8.8.2011

Persónuvernd barst umsókn um leyfi til aðgangs að sjúkraskrám vegna rannsóknarinnar „Stunguóhöpp og líkamsvessamengun hjá starfsfólki Landspítalans á árunum 1986-2011“. Svar Persónuverndar hefur að geyma leiðsögn um hvenær ekki þarf að sækja um slíkt leyfi - þótt um sjúkraupplýsingar sé að ræða - enda séu þær ekki sóttar í sjúkraskrár.

Lesa meira
 

Álit á miðlun kennitalna - 5.8.2011

Persónuvernd hefur gefið út álit varðandi heimild Þjóðskrár Íslands til að miðla kennitölum úr þjóðskrá símleiðis. Hvorki í lögum um þjóðskrá og almannaskráningu, né í reglum settum á grundvelli þeirra, er gert ráð fyrir slíkri miðlun.

Lesa meira
 

Birting farþegalista á netinu - 5.8.2011

Persónuvernd hefur tekið ákvörðun í máli Icelandair varðandi birtingu farþegalista á netinu. Meðal annars var lagt fyrir Icelandair að gera breytingar á innritunarkerfi sínu þannig að upplýsingar um vegabréfsnúmer farþega birtist ekki öðrum farþegum í sama flugi, hvort sem þeir bóka ferð á sama bókunarnúmeri eða ekki.

Lesa meira
 

Umsögn um reglugerð mennta- og menningarmálaráðuneytisins - 5.8.2011

Persónuvernd hefur veitt umsögn um reglugerð um upplýsingaskyldu framhaldsskóla um skólahald, aðra kerfisbundna skráningu og meðferð persónuupplýsinga um nemendur.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í júlí 2011 - 5.8.2011

Í júlí voru gefin út alls 15 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Skráning grunnskóla á viðkvæmum persónuupplýsingum um nemanda - 2.8.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað um lögmæti þess þegar grunnskóli færði í upplýsingakerfi sitt viðkvæmar persónuupplýsingar um nemanda við skólann. Lagði Persónuvernd fyrir grunnskólann að eyða færslunni.

Lesa meira
 

Miðlun RÚV á upplýsingum um umsækjanda um sumarstarf - 2.8.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli konu sem kvartaði yfir því að RÚV miðlaði persónuupplýsingum um að hún hefði sótt um sumarstarf. Persónuvernd taldi að miðlunin hafi verið heimil. Lesa meira
 

Fræðsla í tengslum við spurningakönnun á netinu - 2.8.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns sem taldi sig hafa fengið ófullnægjandi fræðslu þegar hann tók þátt í könnun á netinu. Persónuvernd taldi ekki að brotið hafi verið gegn reglum um fræðsluskyldu. Lesa meira
 

Skráning kennitölu hjá banka við sölu á gjaldeyri - 21.7.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns varðandi skráningu kennitölu í banka við sölu á gjaldeyri. Var það niðurstaða Persónuverndar að bankanum væri óheimilt að skrá kennitölu kvartanda.

Lesa meira
 

Miðlun viðkvæmra persónuupplýsinga frá læknastöð til móður - 21.7.2011

Persónuvernd hefur vísað frá máli konu varðandi miðlun viðkvæmra persónuupplýsinga frá læknastöð til móður hennar. Málið var látið niður falla þar sem ekki væri komin fram sönnun um miðlunina.

Lesa meira
 

Nýtt starfsleyfi fyrir Creditinfo-Lánstraust; lögaðilar - 21.7.2011

Persónuvernd hefur afgreitt umsókn Creditinfo Lánstrausts um nýtt starfsleyfi til vinnslu upplýsinga um lögaðila. Eru breytingarnar í samræmi við nýútgefnar breytingar á einstaklingaleyfi.

Lesa meira
 

Synjað um leyfi til aðgangs að sjúkraskrám Vogs - 18.7.2011

Persónuvernd hefur synjað umsókn tveggja nema, Rannsóknarstöðvar í heilbrigðisfræði og Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum um leyfi til aðgangs að öllum sjúkraskrám Vogs.

Lesa meira
 

Miðlun upplýsinga úr málaskrá lögreglu - 13.7.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns sem kvartaði yfir miðlun lögreglu úr málaskrá til geðlæknis í tengslum við umsókn mannsins um endurnýjun skotvopnaleyfis. Var það niðurstaða Persónuverndar að lögreglu hafi verið óheimilt að miðla upplýsingunum til læknisins.

Lesa meira
 

Óheimil framsending á tölvupósti - 13.7.2011

Kveðinn hefur verið upp úrskurður varðandi áframsendingu á tölvupósti starfsmanns eftir að hann lét af störfum hjá fyrirtæki. Var áframsendingin talin óheimil.

Lesa meira
 

Aðgangur fyrrverandi starfsmanns að tölvupósti - 13.7.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað um kvörtun fyrrverandi starfsmanns sveitarfélags yfir að geta ekki skoðað gamlan tölvupóst sinn á netþjóni einsamall. Lesa meira
 

Viðkvæmar persónuupplýsingar sendar í almennum pósti - 7.7.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli konu sem kvartaði yfir að skýrsla um greiningu á syni hennar hefði verið send með almennum pósti frá BUGL. Hún týndist í meðförum póstsins. Persónuvernd taldi að sending svo viðkvæmra upplýsinga með almennum pósti hafi verið óheimil.

Lesa meira
 

Afhending Felix-skráar á Taekwondo-móti - 7.7.2011

Persónuvernd hefur fellt niður mál konu sem kvartaði yfir afhendingu Felix-skráar á Taekwondo-móti. Ástæðan var sú að það var ekki á valdi Persónuverndar að rannsaka málið frekar, s.s. með því að afla upplýsinga um eiganda ip-tölu.

Lesa meira
 

Samanburður á stimpilklukku og ökurita - 7.7.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns sem kvartaði yfir þeirri framkvæmd vinnuveitanda síns að bera upplýsingar úr stimpilklukku saman við upplýsingar úr ökurita. Persónuvernd taldi að vinnsla vinnuveitandans hafi verið heimil. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í júní 2011 - 4.7.2011

Í júní voru gefin út alls 10 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni. Lesa meira
 

Bakgrunnsathugun Siglingastofnunar - 23.6.2011

Persónuvernd hefur gefið út álit á viðmiðunarreglum Siglingastofnunar um bakgrunnsathugun á einstaklingum, þ.e. athugun sem fer fram samkvæmt lögum um siglingavernd. Persónuverd taldi að þar væri ekki nægilega skýrt afmörkuð heimild til upplýsingaöflunar úr skrám lögreglu. Lagt var fyrir Siglingastofnun að endurskoða reglurnar að þessu leyti.

Lesa meira
 

Miðlun lista yfir þá sem ekki eru með vatnsúðakerfi - 23.6.2011

Svarað hefur verið fyrirspurn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðsins um heimild þess til að miðla til þjónustuaðila lista yfir þá sem ekki hafa vatnsúðakerfi. Persónuvernd taldi að þar sem í raun væri um að ræða miðlun í þágu markaðssetningar yrði að gæta þess að sleppa nöfnum þeirra einstaklinga sem eru á bannskrá Þjóðskrár.

Lesa meira
 

Kvörtun vegna synjunar um aðgang að tölvupósti vísað frá - 21.6.2011

Persónuvernd hefur vísað frá máli manns sem kvartaði yfir því að tölvuþjónustufyrirtæki afhenti honum ekki afrit af tölvupóstum hans. Sá aðili sem hann vann fyrir - og keypti þjónustu af fyrirtækinu - hafði orðið gjaldþrota og ekki greitt fyrir veitta þjónustu.
Lesa meira
 

Miðlun Þjóðskrár Íslands á upplýsingum um látna menn - 15.6.2011

Persónuvernd gerir ekki athugasemd við leit að upplýsingum hjá Þjóðskrá um látna einstaklinga, nánar tiltekið um fæðingardag, dánardag og fæðingarstað, í þágu heimasíðu í minningu látinna manna.

Lesa meira
 

Eyðing persónuupplýsinga um gjaldþrot manns - 10.6.2011

M kvartaði til Persónuverndar yfir því að upplýsingar um gjaldþrot hans væru geymdar hjá Tekjubókhaldi ríkisins, en það ylli honum vandkvæðum á vinnustað. Fjársýsla ríkisins féllst á að eyða úr sínum bókum vanskilamerkingum vegna gjaldþrotsins. Var málið þá fellt niður.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í apríl og maí 2011 - 3.6.2011

Í apríl og maí voru gefin út  alls 14 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Opnun bréfs, ljósritun og Fésbókarfærsla - 1.6.2011

Persónuvernd hefur vísað frá kvörtun konu yfir að bréf sem henni var sent hafi verið opnað, ljósritað og skrifuð Fésbókarfærsla um efni þess.

Lesa meira
 

Lyfjagagnagrunnur landlæknis - 31.5.2011

Að gefnu tilefni er vakin athygli á niðurstöðu Persónuverndar, dags. 14. nóvember 2008, um lyfjagagnagrunn landlæknis.

Lesa meira
 

Nýtt starfsleyfi CreditInfo-Lánstrausts; einstaklingar - 27.5.2011

Persónuvernd hefur afgreitt umsókn Creditinfo Lánstrausts um nýtt starfsleyfi til vinnslu upplýsinga um einstaklinga. Að hluta til var fallist á umbeðnar breytingar en að hluta til var þeim hafnað.

Lesa meira
 

Undirskriftasöfnun á Kjosum.is - 24.5.2011

Persónuvernd hefur tekið ákvörðun í máli manns sem taldi sig vera á lista undirskriftarsöfnunar á kjosum.is. Taldi stofnunin að dráttur á svari til málshefjanda um hvort hann væri á listanum stríddi gegn 14. gr., sbr. 18. gr. laga nr. 77/2000.

Lesa meira
 

Skráning kennitölu hjá BYKO heimil - 16.5.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns sem kvartaði yfir að þurfa að gefa upp kennitölu hjá byggingarvöruverslun þegar hann verslaði þar fyrir vinnuveitanda sinn. Skráning á kennitölu mannsins var talin hafa verið heimil.
Lesa meira
 

Skráning kennitölu hjá LÍN heimil - 16.5.2011

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns sem kvartaði yfir því að þurfa að gefa upp kennitölu þegar hann beindi fyrirspurn til LÍN. Persónuvernd taldi LIN hafa verið heimilt að skrá kennitölu mannsins.

Lesa meira
 

Breyting á reglum um rafræna vöktun - 11.5.2011

Þann 6. maí sl. voru birtar í B-deild Stjórnartíðinda reglur um breytingu á reglum nr. 837/2006 um rafræna vöktun, með síðari breytingum.

Lesa meira
 

Tilkynningarskylda til Persónuverndar um færslu sjúkraskráa - 10.5.2011

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn Landlæknisembættisins varðandi hvort sérhver heilbrigðisstarfsmaður, sem starfar við heilbrigðisþjónustu, sem er skylt að færa sjúkraskrá, þurfi að tilkynna það sérstaklega til Persónuverndar.
Lesa meira
 

Tilmæli FME nr. 1/2010 ekki skuldbindandi um vinnslu persónuupplýsinga - 4.5.2011

Mál vegna kvörtunar manns yfir því að þurfa að afhenda vinnuveitanda sínum upplýsingar um hlutafjáreign barna sinna og foreldra var fellt niður í kjölfar svars FME um að tilmæli þess nr. 1/2010 séu ekki skuldbindandi.

Lesa meira
 

Varðveisla upplýsinga sem safnað er skv. tilmælum FME nr. 3/2010 - 4.5.2011

KPMG hefur spurt um varðveislu persónuupplýsinga sem fyrirtækið safnar í ljósi tilmæla FME nr. 3/2010 um mat á hæfi lykilstarfsmanna. Það er svar Persónuverndar að upplýsingar úr skrám Creditinfo megi færa til bókar en hvorki megi varðveita þær, né afrit sakavottorða, lengur en nauðsyn krefur í þágu tilgangsins með öflun þeirra.

Lesa meira
 

Umsögn um frumvarp til laga um rannsókn á stöðu heimila - 28.4.2011

Persónuvernd hefur veitt efnahags- og skattanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um rannsókn á stöðu heimila. Lesa meira
 

Aðgangur skattrannsóknarstjóra að úrskurðum yfirskattanefndar - 28.4.2011

Persónuvernd telur heimilt að yfirskattanefnd afhendi skattrannsóknarstjóra úrskurði sína svo hann geti nýtt þá vegna stjórnsýslu embættisins. Hún gerir ekki athugasemdir við sendingu á  rafrænu formi en gera beri viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi upplýsinganna.

Lesa meira
 

Heilsufarsupplýsingar um starfsmenn hjá Reykjanesbæ - 26.4.2011

Persónuvernd hefur, að ábendingu SFR, veitt Reykjanesbæ leiðsögn um hvernig haga beri skráningu upplýsinga um veikindi starfsmanna bæjarins. Meðal annars er leiðbeint um hvernig fræða beri starfsmennina um meðferð persónuupplýsinga um þá. Lesa meira
 

Birting lista Ferðamálastofu yfir þá sem ekki hafa  tilskilin leyfi - 26.4.2011

Svarað hefur verið fyrirspurn Ferðamálastofu um birtingu á lista yfir þá aðila sem veita leyfisskylda þjónustu án þess að hafa tilskilin leyfi. Persónuvernd telur slíka birtingu ekki æskilega í ljósi almennra sjónarmiða um vandaða stjórnsýslu. Hún telur að í stað þess að stjórnvald auglýsi meinta lögbrjóta á vefsvæði sínu sé eðlilegra að beina málum þeirra til lögreglu.

Lesa meira
 

Heimild IKEA til að skrá kennitölur - 18.4.2011

Svarað hefur verið fyrirspurn Neytendasamtakanna um heimild verslunar til að skrá kennitölur þeirra sem skila gölluðum vörum. Persónuvernd telur að sé aðeins veitt sú skilaþjónusta sem lögskylt sé að veita eigi ekki að gera kröfu um kennitölu - nema sýnt sé fram á sérstakar aðstæður sem geri það nauðsynlegt.

Lesa meira
 

Fræðsla til starfsmanna sem sæta rafrænni vöktun hjá bakaríi - 18.4.2011

Persónuvernd hefur tekið ákvörðun í máli starfsmanns sem kvartaði yfir rafrænni vöktun með eftirlitsmyndavél í bakaríi. Beindi stofnunin þeim fyrirmælum til forsvarsmanns bakarísins að veita starfsmönnum sínum fræðslu um þá rafrænu vöktun sem hann ber ábyrgð á og fram fer í bakaríi sem hann rekur.

Lesa meira
 

Vinnsla SLFÍ á upplýsingum um laun félagsmanna - 13.4.2011

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn Sjúkraliðafélags Íslands um heimildir þess til að vinna upplýsingar um laun félagsmanna. Var niðustaðan sú að vinna mætti upplýsingar um launaflokka og föst kjör. Hins vegar þyrfti að fá samþykki félagsmanns ef félagið hygðist fá upplýsingar um heildarlaun hans, þ. á m. greiðslur fyrir yfirvinnu og ökutækjastyrk. Lesa meira
 

Frávísun kvörtunar varðandi framvísun vinnuskráa í þágu gjaldeyriseftirlits - 8.4.2011

Vísað hefur verið frá kvörtun flugmanns hjá Icelandair yfir því að þurfa að sýna vaktaskipulag sitt við kaup á gjaldeyri í banka. Krafa bankans byggðist á fyrirmælum Seðlabanka Íslands. Þar sem ekki var tekið afrit af vaktaskipulaginu í bankanum, né unnið með það á annan hátt, þótti ekki vera um vinnslu persónuupplýsinga að ræða í skilningi laganna.

Lesa meira
 

Varðveisla Miðlunar á persónugreinanlegum gögnum kærð til lögreglu - 6.4.2011

Persónuvernd hefur kært Miðlun til lögreglu vegna varðveislu á svörum þátttakenda í könnun á einelti meðal ríkisstarfsmanna. Upplýsingarnar voru varðveittar þótt þátttakendum hefði verið lofað öðru.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í mars 2011 - 6.4.2011

Í mars voru gefin út 26 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Notkun ljósmyndar við auglýsingu á bók - 29.3.2011

Persónuvernd hefur vísað frá erindi varðandi birtingu ljósmyndar í auglýsingum á bók þar sem úrlausn málsins falli undir dómstóla.
Lesa meira
 

Miðlun leiðishafaskráar til nota í tengslum við markaðssetningarstarfsemi - 29.3.2011

Persónuvernd hefur fjallað um miðlun á leiðishafaskrám frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma. Skránum er miðlað til nota við markaðssetningarstarfsemi. Niðurstaðan lýtur að því að áður en skrám er miðlað skuli þess gætt  að  gefa hinum skráðu (ættingum og vinum hinna látnu) kost á að andmæla því að fá markpóst.

Lesa meira
 

Eftirlitsmyndavél í orlofshúsi - 22.3.2011

Persónuvernd hefur fyrirskipað að eftirlitsmyndavél í orlofshúsi skuli fjarlægð fyrir 1. apríl 2011.
Lesa meira
 

Röntgenfilmur frá Landspítala til Guam - 22.3.2011

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn um grisjun og eyðingu röntgenfilma. Það var niðurstaða hennar að vinnslan, eins og henni var lýst, félli ekki undir eftirlit Persónuverndar. Engu að síður væri um sjúkraskrárupplýsingar að ræða og gera bæri ríkar kröfur til verndar þeirra.

Lesa meira
 

Óheimil framsending á tölvupósti - 17.3.2011

Kveðinn hefur verið upp úrskurður varðandi áframsendingu á tölvupósti fyrrverandi starfsmanns hjá bæjarskrifstofu Seltjarnarnes í annað pósthólf. Þetta var gert eftir að starfsmaðurinn lét af störfum hjá bænum og án hans vitundar.

Lesa meira
 

Meðferð myndefnis úr eftirlitsmyndavél í bakaríi - 16.3.2011

 Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns fyrir hönd tveggja sona sinna sem eru undir 10 ára aldri, er varðaði birtingu á myndbandi úr öryggismyndavél Bæjarbakarís Hafnarfjarðar á heimasíðunni www.youtube.com.

Lesa meira
 

Vinnsla Seðlabankans vegna gjaldeyriseftirlits - 10.3.2011

Persónuvernd hefur ákvarðað að vinnsla Seðlabankans á persónuupplýsingum í þágu gjaldeyriseftirlits eigi sér lagastoð og að stefnt skuli að öryggisúttekt.
Lesa meira
 

Notkun Securitas á málaskrárupplýsingum lögreglu - 8.3.2011

Tekin hefur verið sú ákvörðun að öflun Securitas á upplýsingum úr málaskrá lögreglu um alla starfsmenn í öryggisþjónustu samrýmist ekki kröfum 7. gr. laga nr. 77/2000 um sanngirni, meðalhóf og áreiðanleika við vinnslu persónuupplýsinga.

Lesa meira
 

Aukning mála hjá Persónuvernd milli ára - 2.3.2011

Fleiri mál en nokkurn tíma fyrr berast nú Persónuvernd.  Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2011 bárust alls 314 ný mál og sé litið á málafjölda fyrir sömu mánuði í fyrra, 2010, er aukning 29%. Sé hinsvegar litið á málafjölda fyrir sama tímabil árið 2002 þá er aukningin 240%.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í febrúar 2011 - 1.3.2011

Í febrúar voru gefin út 7 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni
Lesa meira
 

Svar við athugasemdum VÍS - 18.2.2011

Persónuvernd hefur svarað athugasemdum sem VÍS gerði við ákvörðun hennar um svonefndan svikahnapp fyrir "nafnlausar" ábendingar.

Lesa meira
 

Fjármálaráðuneytið veitti ranga fræðslu í eineltiskönnun - 16.2.2011

Fjármálaráðuneytið braut gegn lögum um persónuvernd við gerð könnunar á einelti meðal ríkissstarfsmanna. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í janúar 2011 - 15.2.2011

Í janúar voru gefin út 13 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Lögmæt vöktun Ragnars og Ásgeirs ehf. en annmarkar á fræðslu - 7.2.2011

Úrskurðað hefur verið í ágreiningsmáli um lögmæti rafrænnar akstursdagbókar hjá Ragnari og Ásgeiri ehf. í vöruflutningabifreiðum fyrirtækisins. Lesa meira
 

Upplýsingar um viðskiptavini Hraðpeninga ehf. á Netinu - 1.2.2011

Ítarlegar upplýsingar um viðskiptavini Hraðpeninga ehf. birtust á Netinu. Varðveisla þeirra hafði farið í bága við fyrirmæli Hraðpeninga. Hún var talin hafa verið ólögmæt.

Lesa meira
 

Creditinfo Lánstrausti hf. synjað um leyfi - 31.1.2011

Persónuvernd hefur synjað beiðni Creditinfo Lánstrausts hf. um leyfi til vinnslu persónuupplýsinga um einstaklinga í greiðsluaðlögun.

Lesa meira
 

Aðgerð Símans kærð til lögreglu - 20.1.2011

Persónuvernd hefur kært til lögreglu þá aðgerð Símans hf. að nota án heimildar persónuupplýsingar um þúsundir einstaklinga, sem ekki voru viðskiptavinir fyrirtækisins. Lesa meira
 

Kvörtun yfir þingmanni frávísað - 20.1.2011

Lögreglumaður kvartaði yfir því að þingmaður sendi lögreglustjóra afrit af bréfi lögreglumannsins til þingmannsins. Persónuvernd taldi kjarna úrlausnarefnis lúta að því hvort þingmaðurinn hafi farið út fyrir ramma 73. gr. stjórnarskrárinnar um tjáningarfrelsi. Lesa meira
 

Kennitöluskráning Dominos - 20.1.2011

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn Dominos um hvort skráning á kennitölum viðskiptavina samrýmist 10. gr. laganna. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í desember 2010 - 5.1.2011

Í desember voru gefin út 16 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Óheimil miðlun skráar frá Umhverfisstofnun - 28.12.2010

Umhverfisstofnun var óheimilt að afhenda persónuupplýsingar um veiðileyfishafa í þágu markaðssetningar, enda hafði leyfishafanum ekki verið veittur kostur á að andmæla því.

Lesa meira
 

Miðlun mynda úr eftirlitsmyndavélum talin óheimil - 21.12.2010

Úrskurðað hefur verið í tveimur málum um miðlun mynda af meintum búðaþjófum. Annað er um miðlun Haga hf. á slíkum myndum en hitt um miðlun Norvíkur hf. Lesa meira
 

Synjað um leyfi til að nýta gagnagrunn um geðsjúka - 14.12.2010

Persónuvernd hefur synjað umsókn nokkurra sérfræðinga um leyfi til að nýta gagnagrunn með viðkvæmum persónuupplýsingum um geðsjúklinga sem fengu sína fyrstu geðgreiningu í sérfræðiþjónustu á Íslandi á árunum 1966-1967.

Lesa meira
 

Úthringingar á vegum Frjálsa fjárfestingarbankans - 10.12.2010

Úrskurðað hefur verið í máli manns sem kvartaði yfir því að Frjálsi fjárfestingarbankinn afhenti upplýsingar um hann til Finna ehf. - sem hefði síðan hringt í hann og boðið honum ráðgjöf og kynningu á greiðsluvandaúrræðum.

Lesa meira
 

Markpóstur frá Sjálfstæðisflokknum - 9.12.2010

Kveðinn hefur verið upp úrskurður um að Sjálfstæðisflokkurinn hafi brotið gegn reglum um markpóst með því að senda hann til einstaklinga sem voru með bannmerki í Þjóðskrá.


Lesa meira
 

Tölvupóstskoðun Skattrannsóknarstjóra - 9.12.2010

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn um skyldu skattrannsóknarstjóra til að gefa mönnum kost á að vera viðstaddir þegar tölvupóstur þeirra er skoðaður.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í nóvember 2010 - 1.12.2010

Í nóvember voru gefin út 17 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Miðlun frá vistheimilanefnd til tengiliðar vistheimila - 29.11.2010

Persónuvernd hefur svarað spurningu vistheimilanefndar um hvort henni beri að verða við beiðni tengiliðs vistheimila um að fá aðgang að gögnum nefndarinnar.

Lesa meira
 

Könnun í grunnskóla; söfnun viðkvæmra persónuupplýsinga - 19.11.2010

Kveðinn hefur verið upp úrskurður í ágreiningsmáli um söfnun viðkvæmra persónupplýsinga um grunnskólabarn. Til úrlausnar var hvort foreldri hefði, með því að senda ekki inn sérstök andmæli, samþykkt söfnunina. Persónuvernd féllst ekki á það. 

Lesa meira
 

Svikahnappur VÍS - 12.11.2010

Fyrir liggur álit Persónuverndar á svokölluðum svikahnappi á vefsíðu Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS). Hnappurinn er fyrir þá sem vilja tilkynna um meint vátryggingasvik annarra án þess að koma fram undir nafni. Lesa meira
 

Ökuritar í bílum og tækjum Áhaldahúss Kópavogs - 12.11.2010

Úrskurðað hefur verið í ágreiningsmáli um lögmæti ökurita hjá Áhaldahúsi Kópavogs, annars vegar í snjóruðningstækjum og hins vegar í flokkabílum. Lesa meira
 

Nýtt starfsleyfi Creditinfo-Lánstrausts; lögaðilar - 12.11.2010

Persónuvernd hefur afgreitt umsókn Creditinfo-Lánstrausts um nýtt starfsleyfi varðandi vinnslu upplýsinga vegna lögaðila. Fallist var á umbeðna breytingu.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í október 2010 - 11.11.2010

Í október voru gefin út 8 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Upplýsingar sem SÍ vinnur með teljast viðkvæmar að hluta - 1.11.2010

Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu að vinnsla Seðlabanka Íslands vegna eftirlits með gjaldeyrisviðskiptum einstaklinga lúti, a.m.k. að hluta til, að viðkvæmum persónuupplýsingum. Lesa meira
 

Kennitölur á framhliðum vinnustaðaskírteina - 1.11.2010

Persónuvernd tók til skoðunar notkun vinnustaðaskírteina. Hún telur að þurfi starfsmenn alltaf að hafa skírteinin sýnileg sé eðlilegt að hafa kennitölu aðeins á bakhlið korts, en ekki framhlið. Lesa meira
 

Umsögn um drög að frumvarpi til laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði - 22.10.2010

Þann 19. október sl. veitti Persónuvernd heilbrigðisráðuneytinu umsögn um drög að frumvarpi til laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði. Lesa meira
 

Ákvörðun um sameiginlegt sjúkraskrárkerfi á Norðurlandi - 22.10.2010

Persónuvernd hefur farið yfir þær öryggisráðstafanir sem ætlunin er að gera við rekstur sameiginlegs sjúkraskrárkerfis heilbrigðisstofnana á Norðurlandi.

Lesa meira
 

Um 77. fund starfshóps samkvæmt 29. gr. tilskipunar 95/46/EB - 22.10.2010

Á 77. fundi hins sk. 29. gr. starfshóps, sem Persónuvernd tók þátt í, var m.a. fjallað um öryggismál tengd flutningi farþegaupplýsinga til Bandríkjanna.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í september 2010 - 14.10.2010

Í septembermánuði voru gefin út 2 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni. Lesa meira
 

Miðlun upplýsinga sem tengjast augnskanna World Class - 4.10.2010

Persónuvernd hefur úrskurðað að World Class hafi verið heimilt að miðla upplýsingum til manns sem varð fyrir tjóni á bílastæði við líkamsræktarstöðina. Lesa meira
 

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 15/2005, um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað - 28.9.2010

Þann 14. september sl., veitti Persónuvernd allsherjarnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 15/2005, um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað Lesa meira
 

Afhending á tölvu talin heimil - 27.9.2010

Kveðinn hefur verið upp úrskurður vegna kvörtunar K yfir afhendingu Mjólku á tölvu til Sláturfélags Suðurlands. Um var að ræða tölvu sem hann hafði haft afnot af við vinnu hjá Mjólku, en á tölvunni voru persónuupplýsingar um hann. Afhendingin var sögð nauðsynleg til að rannsaka meiðyrðamál, tengd tveimur heimasíðum.

Lesa meira

 

Kvörtun yfir myndum Bílastæðasjóðs af stöðubroti - 21.9.2010

Tekin hefur verið ákvörðun vegna kvörtunar manns yfir ljósmyndum sem starfsmaður Bílastæðasjóðs Reykjavíkur tók af bifreið til að sanna stöðubrot. Lesa meira
 

Framsending yfirmanns á læknisvottorði starfsmanns - 21.9.2010

Persónuvernd hefur úrskurðað um lögmæti þess þegar yfirmaður framsendi læknisvottorð manns til samstarfsmanna hans.

Lesa meira

 

Úrskurðir varðandi skráningu banka á auðkennum viðskiptavina - 16.9.2010

Kveðnir hafa verið upp tveir úrskurðir þar sem deilt var um að hvaða marki viðskiptavinum banka ber að sanna á sér deili.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í júlí og ágúst 2010 - 7.9.2010

Í júlí og ágústmánuði voru gefin út 16 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Flutningur farþegaupplýsinga til Bandaríkjanna - 1.9.2010

Gert hefur verið samkomulag milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda um flutning upplýsinga um flugfarþega til Bandaríkjanna. Samkomulagið er um að upplýsingarnar njóti sömu verndar og upplýsingar um flugfarþega sem miðlað er til Bandaríkjanna frá ríkjum Evrópusambandsins. Lesa meira
 

Ökuritar í bifreiðum Würth - 13.8.2010

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli varðandi vöktun sem fram fór með notkun ökurita í bifreiðum Würth á Íslandi. Vöktunin var talin heimil, enda færi hún aðeins fram á vinnutíma.

Lesa meira
 

Nýtt starfsleyfi Creditinfo-Lánstrausts; einstaklingar - 9.8.2010

Persónuvernd hefur afgreitt umsókn Creditinfo-Lánstrausts um nýtt starfsleyfi varðandi vinnslu upplýsinga vegna einstaklinga. Að hluta til var fallist á umbeðnar breytingar en að hluta til var þeim hafnað.

Lesa meira
 

Útreikningur Creditinfo-Lánstrausts á lánshæfi - 6.8.2010

Fyrir liggur niðurstaða um að Creditinfo-Lánstrausti hafi verið óheimilt að reikna út og selja mat á lánshæfi manns án hans samþykkis. Lesa meira
 

Miðlun upplýsinga um uppsögn til allra starfsmanna - 27.7.2010

Persónuvernd hefur fjallað um kvörtun starfsmanns yfir því að skólastjóri Kársnesskóla greindi frá uppsögn hans í tölvupósti til allra annarra starfsmanna skólans. Lesa meira
 

Ákvörðun varðandi öryggi sjúkraskráa á LSH - 27.7.2010

Persónuvernd hefur beint tilmælum til LSH varðandi bann við notkun raunverulegra og persónugreinanlegra sjúkraskráa þegar almenn kennsla á upplýsingakerfi spítalans fer fram. Segir að stuðst skuli við gervigögn, s.s. skrár sem ekki hafa að geyma raunveruleg persónuauðkenni (nöfn, heimilisföng, kennitölur o.fl.) Lesa meira
 

Ályktun um varðveislutíma fjarskiptaupplýsinga innan ESB - 15.7.2010

Evrópskar persónuverndarstofnanir telja að ekki hafi verið farið að tilskipun um varðveislu fjarskiptaupplýsinga

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í júní 2010 - 13.7.2010

Í júnímánuði voru gefin út 10 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Birting úrskurða siðanefndar Hundaræktarfélag Íslands - 13.7.2010

Svarað hefur verið fyrirspurn um heimild Hundaræktarfélags Íslands til að birta úrskurði siðanefndar þess í félagsblaðinu Sámi og á vefsíðu HRFÍ. Birting úrskurðar, þ.e. með nafni viðkomandi félagsmanns, var talin háð samþykki. Lesa meira
 

Kennitöluskráning í Intersporti - 1.7.2010

Kvartað var yfir skráningu Intersports á kennitölu þegar keypt var vara með afslætti. Lesa meira
 

Kennitöluskráning í IKEA - 1.7.2010

Kvartað var yfir kennitöluskráningu í IKEA við vöruskil. Lesa meira
 

Myndavélavöktun hjá Snælands video - 29.6.2010

Kvartað var yfir vöktun á vinnustað, m.a. í kaffistofuaðstöðu. Lesa meira
 

Óumbeðin fjarskipti, IP-tölur - 29.6.2010

Kvartandi vildi fá aðgang að IP-tölu til að komast að því hver hefði skráð hann á póstlista óumbeðið. Lesa meira
 

Viðkvæmar persónuuppýsingar á heimasíðu ríkissaksóknara - 24.6.2010

Úrskurðað hefur verið um birtingu ríkissaksóknara á viðkvæmum persónuupplýsingum, sem koma fram í ákvörðun hans. Hann birti upplýsingarnar á heimasíðu embættisins. Lesa meira
 

Framsending á tölvupósti - 24.6.2010

Úrskurðað hefur verið í ágreiningsmáli varðandi áframsendingu á tölvupósti starfsmanns eftir að hann lét af störfum. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í maí 2010 - 16.6.2010

Í maímánuði voru gefin út 11 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Umsögn um frumvarp til laga um rannsókn á fjárhagsstöðu skuldugra heimila - 1.6.2010

Þann 17. maí sl., veitti Persónuvernd efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um rannsókn á fjárhagsstöðu skuldugra heimila.

Lesa meira
 

Breyting á reglum nr. 712/2008 um tilkynningar- og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga - 18.5.2010

Gerð hefur verið breyting á reglum nr. 712/2008 um tilkynningar- og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í apríl 2010 - 17.5.2010

Í aprílmánuði voru gefin út 12 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Heimild vinnuveitanda til að leita í skápum starfsmanna - 11.5.2010

Persónuvernd hefur svarað almennri fyrirspurn um heimildir vinnuveitanda til að fara í skápa starfsmanna án vitundar þeirra. Lesa meira
 

Vinnsla persónuupplýsinga um framhaldsskólanemendur. Miðlun frá skóla til menntamálaráðuneytis - 7.5.2010

Fjölbrautaskólinn í Ármúla óskaði eftir afstöðu Persónuverndar til þess að upplýsingum um nemendur væri miðlað til menntamálaráðuneytisins. Lesa meira
 

Símaónæði í tengslum við markaðssetningu - 3.5.2010

Persónuvernd taldi óheimilt að nota nafn sem bannmerkt hafði verið í tengslum við markaðssetningu. Lesa meira
 

Öryggi persónuupplýsinga hjá ríkissaksóknara - 27.4.2010

Persónuvernd hefur lagt fyrir ríkissaksóknara að uppfylla reglur varðandi öryggi persónuupplýsinga. Lesa meira
 

Ferðamálastofu ekki heimilt að birta lista yfir þá sem ekki hafa leyfi - 21.4.2010

Persónuvernd telur Ferðamálastofu ekki hafa lagaheimild til að birta á heimasíðu stofunnar lista yfir aðila sem án heimildar stunda starfsemi samkvæmt lögum um skipan ferðamála. Lesa meira
 

Fiskistofu heimilt að veita LÍÚ aðgang að upplýsingum - 20.4.2010

Persónuvernd gerir ekki athugasemdir við að Fiskistofa veiti Landssambandi íslenskra útvegsmanna aðgang að fiskiskipaskrá og skrá um aflaheimildir, afla og ráðstöfun aflaheimilda einstakra fiskiskipa. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í mars 2010 - 19.4.2010

Í marsmánuði voru gefin út 20 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Leiðbeiningar Evrópska persónuverndarfulltrúans um myndavélaeftirlit - 30.3.2010

Evrópski persónuverndarfulltrúinn (EDPS) hefur gefið út leiðbeiningar um vöktun með eftirlitsmyndavélum. Lesa meira
 

Ný auglýsing um flutning persónuupplýsinga til annarra landa - 25.3.2010

Birt hefur verið ný auglýsing um flutning persónuupplýsinga til annarra landa. Auglýsingin hefur fengið stjórnartíðindanúmerið 228/2010. Lesa meira
 

Aðgangsstýringar hjá lögreglunni - 25.3.2010

Persónuvernd hefur gert úttekt á öryggi aðgangsstýringa í Lögreglukerfi Ríkislögreglustjórans (LÖKE).

Lesa meira

 

Nýr dómur Evrópudómstólsins - Sjálfstæði persónuverndarstofnana - 22.3.2010

Hinn 9. mars 2010 felldi Evrópudómstóllinn dóm í máli sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins höfðaði gegn Þýskalandi varðandi fyrirkomulag persónuverndarstofnana þar í landi. Lesa meira
 

Nafni miðlað þrátt fyrir bannmerkingu í símaskrá - 19.3.2010

Maður kvartaði yfir því að nafn hans var á skrá sem seld var frá Já ehf. Hann var bannmerktur í símaskrá. Miðlun upplýsinga var ekki talin samrýmast lögum nr. 77/2000.

Lesa meira
 

Upplýsingar um viðveru og kennitölu birtar á innra vef - 12.3.2010

Kvartað var til Persónuverndar yfir birtingu persónuupplýsinga á innra vef Landspítala háskólasjúkrahúss. Lesa meira
 

Myndbirting á vinnustað - 5.3.2010

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns sem kvartaði yfir því að mynd af honum var hengd upp á vinnustað hans, á sama stað og myndir af öðrum starfsmönnum. Myndbirtingin var ekki talin brjóta í bága við lög nr. 77/2000. Lesa meira
 

Erindi á Læknadögum - 5.3.2010

Persónuvernd fjallaði um birtingu viðkvæmra persónuupplýsinga í fyrirlestri rannsóknarlögreglumanns á Læknadögum. Að fengnum svörum lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu var ákveðið að loka málinu.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í janúar og febrúar 2010 - 1.3.2010

Í janúar og febrúarmánuðum voru gefin út 35 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni. Lesa meira
 

Fyrirspurn um friðhelgi einkalífs og tjáningarfrelsi á Netinu - 11.2.2010

Persónuvernd hefur svarað almennri fyrirspurn um friðhelgi einkalífs og tjáningarfrelsi á Netinu vegna Facebook samskiptavefsins. Lesa meira
 

Úrskurður um skoðun á tölvupósti fyrrum starfsmanns Morgunblaðsins - 1.2.2010

Persónuvernd hefur kveðið upp úrskurð um skoðun Morgunblaðsins á tölvupósti fyrrum starfsmanns. Lesa meira
 

Kvörtun yfir stjörnugjöf banka - 1.2.2010

Persónuvernd barst kvörtun manns yfir því að nafn hans væri merkt með stjörnum og annars konar athugasemdum hjá tveimur viðskiptabönkum hans. Lesa meira
 

Miðlun upplýsinga frá Læknisfræðilegri Myndgreiningu til Sjúkratrygginga Íslands - 28.1.2010

Persónuvernd telur að fyrirtækið Læknisfræðileg Myndgreining megi miðla til Sjúkratrygginga Íslands upplýsingum um greiðslur til fyrir heilbrigðisþjónustu. Lesa meira
 

Miðlun sjúkraskrárupplýsinga barns. Þarf samþykki beggja foreldra? - 19.1.2010

Persónuvernd hefur svarað almennri fyrirspurn um það hvort miðla megi upplýsingum úr sjúkraskrá barns aðeins með samþykki annars foreldris.

Lesa meira

 

Leyfisveitingar í desember 2009 - 12.1.2010

Í desembermánuði voru gefin út 18 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Hjartavernd - Athugun á öryggi, dulkóðun o.þ.h. - 6.1.2010

Persónuvernd hefur lokið máli í tengslum við athugun á (a) dulkóðun persónuauðkenna í gagnagrunnum Hjartaverndar og (b) rekjanleika uppflettinga og skráningar.

Lesa meira

 

Samkeyrsla upplýsinga um lögmenn við sakaskrá o.fl. - 4.1.2010

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn frá Lögmannafélagi Íslands um heimildir til samkeyrslu upplýsinga um lögmenn við m.a. upplýsingar um refsidóma og gjaldþrot. Lesa meira
 

Skoðun Vinnumálastofnunar á IP-tölum úr rafrænum tilkynningum - 22.12.2009

Persónuvernd gerir ekki athugasemd við skoðun Vinnumálastofnunar á þeim hluta IP-tölu sem hefur að geyma auðkenni þess lands sem IP-talan stafar frá, þ.e. í rafrænni tilkynningu til stofnunarinnar um atvinnuleysi. Lesa meira
 

Upplýsingar um fjárhagsmálefni lögaðila. Nýtt leyfi fyrir Lánstraust - 21.12.2009

Lánstrausti (CreditInfo) hefur verið veitt nýtt leyfi til að vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust lögaðila.

Lesa meira

 

Leyfisveitingar í nóvember 2009 - 16.12.2009

Í nóvembermánuði voru gefin út 8 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Vátryggingafélög. Öflun upplýsinga um heilsufar ættingja - 9.12.2009

Svar við almennri fyrirspurn um heimildir vátryggingafélags til að afla upplýsinga um heilsufar ættingja umsækjenda um sjúkdómatryggingu. Lesa meira
 

Auðkenning þjónustusýna hjá Frumurannsóknastofu Leitarstöðvar KÍ - 30.11.2009

Persónuvernd hefur svarað erindi Krabbameinsfélags Íslands varðandi auðkenningu svokallaðra þjónustusýna. Lesa meira
 

Notkun ríkisskattstjóra á myndum úr efirlitsmyndavélum á bensínstöðvum - 20.11.2009

Svar um notkun RSK á myndum bensínstöðva vegna eftirlits með lögum nr, 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald. Lesa meira
 

Almenn fyrirspurn um birtingu dóma á Netinu - 16.11.2009

Svarað hefur verið almennri fyrirspurn um heimildir til að setja héraðsdóma í refsimálum á Netið. Lesa meira
 

Ákvörðun Persónuverndar um að vísa frá beiðni um tafarlausa stöðvun vinnslu - 10.11.2009

Hafnað hefur verið beiðni um tafarlausa stöðvun á skoðun tölvupósta hjá Fjármálaeftirlitinu.

Lesa meira
 

Almennt svar varðandi birtingu sjúkratilfellis í Læknablaðinu - 10.11.2009

Svarað hefur verið almennri fyrirspurn um hvort leyfi Persónuverndar þurfi til birtingar upplýsinga um eitt sjúkratilfelli í Læknablaðinu.

Lesa meira
 

Almenn fyrirspurn um eftirlitsmyndavélar lögreglu - 10.11.2009

Persónuvernd hefur svarað almennri fyrirspurn um eftirlitsmyndavélar lögreglu. Lesa meira
 

Birting upplýsinga um skattálagningu - 2.11.2009

Persónuvernd hefur svarað almennri fyrirspurn um birtingu upplýsinga um tekjur fólks. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í október 2009 - 2.11.2009

Í októbermánuði voru gefin út 23 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Úrskurður um niðurfellingu leyfis Persónuverndar. - 27.10.2009

Persónuvernd hefur úrskurðað um að fella niður áður útgefið leyfi stofnunarinnar.

Lesa meira
 

Réttur viðskiptamanna fjármálafyrirtækja til vitneskju - 22.10.2009

Svarað hefur verið fyrirspurn viðskiptaráðherra um rétt manna til að vita hvaða starfsmenn fjármálafyrirtækja hafi skoðað fjárhagsupplýsingar þeirra. Lesa meira
 

Creditinfo (LT) - áhættumatsupplýsingar um einstaklinga - 16.10.2009

Persónuvernd hefur svarað erindi LT um heimild fyrirtækisins til sölu áhættumatsupplýsinga um einstaklinga, þ.e. um líkur á því að þeir lendi í alvarlegum vanskilum. Erindi LT var hafnað.

Lesa meira
 

Creditinfo (LT) - upplýsingar um greiðsluaðlögun fyrir einstaklinga - 16.10.2009

Persónuvernd telur að CreditInfo (Lánstraust) hafi ekki, skv. gildandi starfsleyfi, heimild til sölu upplýsinga um þá einstaklinga sem endurskipuleggja fjárhag sinn vegna greiðsluerfiðleika.

Lesa meira

 

Persónuvernd endurnýjar leyfi fyrir Lokanaskrá - 16.10.2009

Ákveðið hefur verið að endurnýja starfsleyfi banka og sparisjóða til að halda eigin Lokanaskrá. Lesa meira
 

Eftirlitsmyndavélar í leigubifreiðum - 6.10.2009

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn um eftirlitsbúnað í leigubifreiðum. Lesa meira
 

Miðlun upplýsinga úr nemendaskrá Háskóla Íslands til Vinnumálastofnunar - 6.10.2009

Persónuvernd telur að eftir breytingu sem gerð var á lögum um atvinnuleysistryggingar sé Háskóla Íslands heimilt að veita Vinnumálastofnun skrá yfir þá sem sækja lánshæft nám við skólann. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í júlí, ágúst og september 2009 - 30.9.2009

Í mánuðunum júlí, ágúst og september voru gefin út 19 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Upplýsingar um fjárhagsmálefni lögaðila. Nýtt leyfi fyrir Lánstraust - 25.9.2009

Lánstrausti hf. (Creditinfo) hefur verið veitt nýtt leyfi varðandi upplýsingar um fjárhagsmálefni lögaðila. Fallist var á eina breytingu. Hún er a-lið greinar 3.1 Lesa meira
 

Viðkvæmar persónuupplýsingar á heimasíðum. Bréf til dómsmálaráðherra - 23.9.2009

Í framhaldi af nokkrum erindum sem Persónuvernd hafa borist, og lúta að birtingu viðkvæmra persónuupplýsinga á heimasíðum, hefur hún sent dómsmálaherra bréf og kynnt hugmynd að tilteknu réttarúrræði.

Lesa meira

 

Svar varðandi upplýsingakerfið rel8 - 18.9.2009

Persónuvernd hefur svarað erindi Jóns Jósefs Bjarnasonar um leyfisskyldu vegna vinnslu upplýsinga um vensl einstaklinga og fyrirtækja.

Lesa meira

 

Ósk um endurupptöku synjað - 17.9.2009

Synjað var ósk um að endurupptaka mál sem tengdist kvörtun yfir vinnslu persónuupplýsinga við gerð sálfræðiskýrslu

Lesa meira

 

Meðferð á máli REl-8, vinnsla Jóns Jósefs Bjarnasonar - 16.9.2009

Persónuvernd hefur til meðferðar umsókn Jóns Jósefs Bjarnasonar um leyfi til vinnslu persónuupplýsinga. Lesa meira
 

Rel-8.com; vinnsla Jóns Jósefs Bjarnasonar - 15.9.2009

Vegna frétta um að Persónuvernd hafi stöðvað vinnslu Jóns Jósefs Bjarnasonar á upplýsingum um tengsl manna í viðskiptalífinu o.fl. er tekið fram að þetta er ekki rétt. Lesa meira
 

Nafnlausar ábendingar til stjórnvalda - 7.9.2009

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn varðandi móttöku stjórnvalda á nafnlausum ábendingum um ætluð lögbrot Lesa meira
 

Fésbókin lofar betri persónuvernd - 4.9.2009

Stjórnendur Fésbókarforritsins (Facebook) vilja einfalda stjórn notenda á persónuupplýsingum sínum við notkun Fésbókarinnar.

Lesa meira

 

Eyðublöð fjármálastofnana fyrir stofnun bankareikninga - 26.8.2009

Persónuvernd hefur beint tilmælum til FME og fjármálafyrirtækja varðandi upplýsingavinnslu um þá sem stofna bankareikninga á Netinu Lesa meira
 

Heimild vinnuveitanda til að skoða tölvugögn starfsmanns - 24.8.2009

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn um heimildir vinnuveitanda til að skoða tölvunotkun starfsmanna.

Lesa meira
 

Miðlun persónuupplýsinga við sölu bankaútibús. - 19.8.2009

Úrskurðað hefur verið í máli vegna kvörtunar yfir miðlun Glitnis banka hf. á persónuupplýsingum um viðskiptamann til Sparisjóðs Siglufjarðar. Lesa meira
 

Vinnsla upplýsinga um gesti skemmtistaða; skönnun skilríkja o.fl. - 19.8.2009

Persónuvernd hefur hafnað umsókn TerrSecurity um leyfi til vinnslu persónuupplýsinga um gesti skemmtistaða á Íslandi. Lesa meira
 

Ársskýrsla Persónuverndar komin út - 6.8.2009

Ársskýrsla Persónuverndar fyrir árið 2008 er komin út. Lesa meira
 

Nafnlausar ábendingar til Fiskistofu - 21.7.2009

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn frá Fiskistofu um móttöku nafnlausra ábendinga beint af heimasíðu stofunnar. Lesa meira
 

Endurupptökubeiðni synjað - 21.7.2009

Beiðni um endurupptöku máls hefur verið hafnað þar sem það er enn til meðferðar dómara.

Lesa meira

 

Umsögn um breytt drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda þeirra og um upplýsingaskyldu þeirra - 15.7.2009

Þann 1. júlí sl., veitti Persónuvernd forsætisráðuneytinu umsögn um breytt drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda þeirra og um upplýsingaskyldu þeirra. Lesa meira
 

Umsögn um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálaflokka og um upplýsingaskyldu þeirra - 14.7.2009

Hinn 30. júní sl., veitti Persónuvernd forsætisráðuneytinu umsögn um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.

Lesa meira

 

Leyfisveitingar í apríl, maí og júní 2009 - 9.7.2009

Í mánuðunum apríl, maí og júní voru gefin út 27 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni. Lesa meira

 

Miðlun upplýsinga um ölvunarakstur - 2.7.2009

Persónuvernd telur skorta lagastoð til að heimila Ríkislögreglustjóra að miðla til Umferðarstofu upplýsingum um niðurstöður blóðrannsókna á ökumönnum.

Lesa meira
 

Rannsóknarnefnd umferðarslysa heimilt að birta skýrslu - 26.6.2009

Persónuvernd hefur tekið ákvörðun vegna kvörtunar yfir opinberri birtingu á skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa. Í henni voru hvorki birt nöfn né aðrar slíkar upplýsingar. Lesa meira
 

Mál um miðlun vinnustaðaskýrslu fellt niður - 23.6.2009

Mál vegna kvörtunar yfir óheimilli miðlun á vinnustaðaskýrslu frá vinnuveitanda til Kennarasambands Íslands var fellt niður vegna óljósra málavaxta o.fl.

Lesa meira
 

Ófullnægjandi fræðsla við gerð vinnustaðaskýrslu - 23.6.2009

Persónuvernd hefur úrskurðað að tilteknir sálfræðingar hafi ekki veitt fullnægjandi fræðslu við gerð vinnustaðaskýrslu.

Lesa meira

 

Notkun sjúkraskrárupplýsinga; frávísun - 12.6.2009

Persónuvernd vísaði frá máli manns sem kvartaði yfir notkun sjúkraskrárupplýsinga í ágreiningsmáli milli hans og LSH. Lesa meira
 

Svar við fyrirspurn um öflun sakavottorða og upplýsinga um ökuréttindi og ökuferil - 11.6.2009

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn Reykjavíkurborgar varðandi öflun sakaskrárupplýsinga og fl. um umsækjendur um störf.

Lesa meira
 

Skráning HIV-smitaðra hjá aðilum í Svíþjóð - 9.6.2009

Persónuvernd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við að Landspítali skrái upplýsingar um HIV-smitaða í gagnagrunninn InfCare á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í Svíþjóð. Lesa meira
 

"Staða heimilanna" Leyfi til vinnslu fjárhagsupplýsinga; III. áfangi - 20.5.2009

Þann 11. maí sl. veitti Persónuvernd Seðlabanka Íslands og Vinnumálastofnun leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í þágu III. áfanga könnunar á stöðu heimilanna. Lesa meira
 

Lyfjagagnagrunnur landlæknis; óheimil miðlun - 15.5.2009

Persónuvernd hefur úrskurðað um að tiltekin miðlun landlæknis á upplýsingum hafi verið óheimil. Lesa meira
 

"Staða heimilanna" Leyfi til vinnslu fjárhagsupplýsinga; II. áfangi - 6.5.2009

Þann 7. apríl sl. veitti Persónuvernd Seðlabanka Íslands og Ríkisskattstjóra leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í þágu II. áfanga könnunar á stöðu heimilanna. Lesa meira
 

Lánstraust; rökstuðningur fyrir synjun - 30.4.2009

Lánstrausti hf. (Credit-Info) var synjað um tiltekna vinnslu persónuupplýsinga þegar því var síðast veitt starfsleyfi. Hefur sú ákv. nú verið rökstudd sérstaklega. Lesa meira
 

Birting mynda af dæmdum barnaníðingum á netinu - 24.4.2009

Persónuvernd hafa borist fyrirspurnir um myndbirtingar á netinu, þ.e. myndir af dæmdum barnaníðingum, en myndbirting kann að raska friðhelgi barnsins.

Lesa meira

 

Leyfisveitingar í janúar, febrúar og mars 2009 - 16.4.2009

Í mánuðunum janúar, febrúar og mars voru gefin út 60 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Aðgangur að samanburðarmati sálfræðings. Frávísun - 8.4.2009

Persónuvernd hefur vísað frá máli varðandi aðgang að gögnum sem unnin voru í tengslum við ákvörðun um ráðningu í starf hjá Landhelgisgæslunni. Lesa meira
 

Birting upplýsinga um hlutabréfaeign einstaklinga - 30.3.2009

Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn um það hvaða reglur gildi um birtingu upplýsinga um hlutabréfaeign einstaklinga og því hvort safna megi slíkum upplýsingum og birta á opinberum vettvangi. Einnig svaraði Persónuvernd því hvort munur væri á birtingu upplýsinga um eign einstaklinga í almennum hlutafélögum sem eru í Kauphöll Íslands og þeirra eigna sem eru í öðrum einkahlutafélögum.

Lesa meira

 

Heimild fjármálastofnana til að krefjast kennitalna - 24.3.2009

Úrskurðað hefur verið í máli vegna kvörtunar manns, sem hugðist greiða gíróseðla í Landsbankanum, en var krafinn um kennitölu. Lesa meira
 

Nýtt starfsleyfi fyrir Lánstraust hf. - 19.3.2009

Þann 11. mars 2009 gaf Persónuvernd Lánstrausti hf. (LT) nýtt leyfi til vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni einstaklinga. Lesa meira
 

Öryggisbrestir hjá heilsugæslustöð - 11.3.2009

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli sem varðar öryggisbrest hjá heilsugæslustöð, en þar misfórst öryggisafritataka með þeim afleiðingum að sjúkraskrár glötuðust.

Lesa meira
 

Fingrafaraskannar á Keflavíkurflugvelli - 6.3.2009

Úrskurðað hefur verið í málum tveggja kvartenda vegna fingrafaraskönnunar við starfsmannainnganga á Keflavíkurflugvelli. Lesa meira
 

Óheimil meðferð á vinnustaðaskýrslu sálfræðings - 27.2.2009

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli konu sem kvartaði yfir meðferð á persónuupplýsingum í vinnustaðaskýrslu sálfræðings. Lesa meira
 

Upplýsingar um mætingareinkunnir nemenda við Verslunarskólann - 24.2.2009

Kveðnir hafa verið upp úrskurðir í málum vegna kvartana nemenda yfir því að skólinn sendi foreldrum þeirra upplýsingar um mætingareinkunnir. Lesa meira
 

"Staða heimilanna" Leyfi til vinnslu fjárhagsupplýsinga; I. áfangi - 13.2.2009

Persónuvernd hefur veitt Seðlabanka og fjármálastofnunum leyfi til vinnslu persónuupplýsinga til mats á áhrifum kreppu á efnahag einstaklinga. Lesa meira
 

Sjúkraupplýsingar LSH um hjartasjúklinga varðveittar í Svíþjóð - 3.2.2009

Persónuvernd gerir ekki athugasemdir við að persónuupplýsingar um fólk með hjartasjúkdóma verði varðveittar í sjúkrahúsi í Uppsala. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í nóvember og desember 2008 - 29.1.2009

Í nóvember og desembermánuði voru gefin út 29 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Öflun Sjúkrasjóðs VR á heilsufarsupplýsingum - 15.1.2009

Persónuvernd hefur svarað ósk um álit varðandi öflun Sjúkrasjóðs VR á heilsufarsupplýsingum við afgreiðslu umsókna um greiðslur úr sjóðnum.

Lesa meira

 

Yfir 1.000 mál hjá Persónuvernd - 12.1.2009

Á árinu 2008 voru alls skráð 988 ný mál. Óafgreidd erindi frá fyrra ári voru 297 þannig að alls hafði stofnunin til meðferðar 1.285 mál á árinu sem var að líða og höfðu 1.072 mál verið afgreidd fyrir lok ársins. Lesa meira
 

Um nýlegan dóm Mannréttindadómstóls Evrópu - 9.1.2009

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fellt dóm um varðveislu breskra stjórnvalda á fingraförum, lífsýnum og arfgerðarupplýsingum Lesa meira
 

Skimunarbúnaður - 29.12.2008

Flugyfirvöld íhuga að taka í notkun líkamaskanna („body scan“) til eftirlits með flugfarþegum. Með honum er hægt að skima og sjá líkama farþeganna.

Lesa meira
 

Greiðsla kostnaðar vegna tilsjónarmanns - 29.12.2008

Persónuvernd hefur ákveðið að heilbrigðisráðherra beri að greiða kostnað vegna eftirlits með vinnslu sem hann fékk leyfi fyrir. Lesa meira
 

Synjað um leyfi til vinnslu upplýsinga um greiðsluhegðun einstaklinga - 18.12.2008

Persónuvernd hefur synjað Lánstrausti hf. um leyfi til að safna og miðla persónuupplýsingum um greiðsluhegðun einstaklinga.

Lesa meira
 

Umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um rannsókn á falli íslensku bankanna og tengdum atburðum - 11.12.2008

Persónuvernd hefur veitt umsögn sína um frumvarp um bankarannsókn.

Lesa meira

 

Reglur um meðferð persónuupplýsinga við framkvæmd erfðarannsókna - 4.12.2008

Persónuvernd hefur sett reglur um meðferð persónuupplýsinga við framkvæmd erfðarannsókna. Lesa meira
 

Kvörtun vegna Reykjavíkurborgar. - 27.11.2008

Kona, sem sótt hafði um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg, kvartaði við Persónuvernd. Hún kvartaði einkum yfir beiðni borgarinnar um upplýsingar um hvernig hún hefði varið eigin fé. Lesa meira
 

Ágreiningur um líftryggingu. Frávísun - 21.11.2008

Vísað hefur verið frá máli K sem óskaði líf- og sjúkdómatryggingar en var synjað vegna sögu um arfgenga heilablæðingu. Lesa meira
 

Lyfjagagnagrunnur landlæknis - 19.11.2008

Lokið er athugun Persónuverndar á aðgangi að persónuupplýsingum í lyfjagagnagrunni landlæknis.

Lesa meira
 

Aðgangur ættingja að tölvupósti látins manns - 11.11.2008

Maður, sem hafði tölvupóstfang hjá x, lést og óskuðu ættingjar eftir að fá aðgang að tölvupóstinum hans. Lesa meira
 

Leyfisveitingar frá júlí til nóvember 2008 - 7.11.2008

Á tímabilinu 1. júlí til 1. nóvember voru gefin út 40 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Nýjar reglur um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga taka gildi - 4.11.2008

Nýjar reglur um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga nr. 712/2008 tóku gildi 1. nóvember sl. Lesa meira
 

Hljóðritun símtala við fjármálafyrirtæki - 30.10.2008

Póst- og fjarskiptastofnun, sem hefur eftirlit með hljóðritunum símtala við fjármálafyrirtæki, hefur gefið út álit sitt. Lesa meira
 

Sala Fasteignamats ríkisins á upplýsingum um eignarhald - 28.10.2008

Persónuvernd hefur gefið Fasteignamatinu (FMR) svar um heimildir þess til að bjóða útlánafyrirtækjum þá þjónustu að vakta eignarhald fasteigna hjá þeim sem hafa gengist í sjálfskuldarábyrgð vegna lána hjá viðkomandi fyrirtæki Lesa meira
 

Aðgangur Lögreglu- og tollstjórans að Star Check innritunarkerfi IGS - 23.10.2008

Persónuvernd hefur svarað embætti Lögreglu- og tollstjórans á Suðurnesjum um aðgang að svonefndu Star Check innritunarkerfi IGS (Icelandair Ground Services).

Lesa meira

 

Leyfi veitt Íslenskri erfðagreiningu ehf. (ÍE) og samstarfslæknum - 20.10.2008

Íslenskri erfðagreiningu ehf. (ÍE) og samstarfslæknum hafa verið veitt leyfi til að afla upplýsinga úr sjúkraskrám í þágu 6 rannsókna. Lesa meira
 

Miðlun mynda úr hraðamyndavélum lögreglu til eigenda eða umráðamanna viðkomandi ökutækja. - 14.10.2008

Persónuvernd hefur svarað Ríkislögreglustjóra um lögmæti þess að miðla myndum úr hraðamyndavélum. Lesa meira
 

Verkefni Samtaka atvinnulífsins: „Endurheimt verðmæta“ - 13.10.2008

Persónuvernd hefur tjáð SA afstöðu sína til verkefnis sem þau nefna Endurheimt verðmæta. Hún telur lögmæti þess orka tvímælis. Lesa meira
 

Dómur Hæstaréttar 514/2008. Niðurstaða m.a. byggð á lögum nr. 77/2000. - 6.10.2008

Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm, dags. 3. október 2008, sem staðfestir að enda þótt mörg stjórnvöld hafi víðtækar lagaheimildir til að afla persónuupplýsinga verða þau ávallt að virða meginreglur 7. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Lesa meira
 

Túlkun á B-samþykkisyfirlýsingum fólks sem hefur tekið þátt í rannsóknum Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE). - 1.10.2008

Persónuvernd hefur tekið ákvörðun um að hvaða marki tilteknir þátttakendur í rannsóknum ÍE hafa leyft að fyrirtækið fái aðgang að sínum sjúkraskrám. Lesa meira
 

Öflun Tollstjóra á upplýsingum úr málaskrám - 1.10.2008

Persónuvernd hefur gefið út álit á öflun Tollstjórans í Reykjavík á upplýsingum úr málaskrám lögreglu og tollgæslu um umsækjendur um störf hjá embættinu.   Lesa meira
 

Nýr dómur Mannréttindadómstóls Evrópu - 22.9.2008

Hinn 17. júlí 2008 felldi Mannréttindadómstóll Evrópu dóm. Hann staðfestir að í ljósi eðlis upplýsinga í sjúkraskrám leggur grundvallarregla 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs, sbr. og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, á ríkisvaldið ríkar skyldur til að veita þeim sérstaka vernd.

Lesa meira

 

Meðferð persónuupplýsinga hjá starfsmannaheilsugæslu Alcoa Fjarðaráls - 18.9.2008

Persónuvernd hefur, að ósk heilbrigðisráðuneytisins, haft til athugunar öryggi persónuupplýsinga hjá starfsmannaheilsugæslu Alcoa Fjarðaáls Lesa meira
 

Skýringar á útgáfu nýrra reglna um tilkynningar- og leyfisskyldu - 15.9.2008

Persónuvernd hefur veitt landlækni umbeðnar skýringar á forsendum nýrra reglna nr. 712/2008 um tilkynninga- og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga. Lesa meira
 

Úrskurður um markhópalista Lánstrausts hf. (LT) - 2.9.2008

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli varðandi kvörtun manns yfir því að nafn hans var á seldum lista frá Lánstrausti (LT). Maðurinn taldi LT ekki hafa leyfi til slíks. Lesa meira
 

Úrskurður um upplýsingarétt - 2.9.2008

Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns sem sótti um starf hjá umboðsmanni barna. Lesa meira
 

Tvær ákvarðanir tengdar verkefni um greiðsluþátttöku almennings í heilbrigðiskerfinu - 19.8.2008

Á fundi stjórnar Persónuverndar þann 18. ágúst sl. voru teknar tvær ákvarðanir um notkun persónuupplýsinga vegna verkefnis um greiðsluþátttöku almennings í heilbrigðiskerfinu.

Lesa meira
 

Frumvarp til laga um sjúkraskrár - 19.8.2008

Persónuvernd hefur sent heilbrigðisnefnd Alþingis umbeðna umsögn um frumvarp til nýrra laga um sjúkraskrár.

Lesa meira

 

Drög að reglum um erfðarannsóknir - 18.8.2008

Persónuvernd hefur samið drög að reglum um framkvæmd erfðarannsókna. Þau eru birt hér. Er öllum sem þess óska heimilt að koma á framfæri athugasemdum við drögin. Umsagnarfrestur er til 1. október 2008. Lesa meira
 

Ekki réttar forsendur við breytingu á varðveislutíma upplýsinga um lyfjaneyslu - 5.8.2008

Persónuvernd hefur sent heilbrigðisráðherra og formanni heilbrigðisnefndar Alþingis bréf með ábendingu um að ekki hafi verið byggt á réttum forsendum þegar lögum um varðveislutíma upplýsinga um lyfjaneyslu var breytt í vor.

Lesa meira

 

Notkun á lyfjagagnagrunni Landlæknis; umboðsmaður Alþingis - 5.8.2008

Persónuvernd hefur borist afrit af bréfi umboðsmanns Alþingis, dags. 17. júlí 2008, til landlæknis varðandi kvörtun yfir úrskurðarnefnd almannatrygginga. Lesa meira
 

Nýjar reglur um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga - 22.7.2008

Á fundi stjórnar Persónuverndar þann 30. júní voru samþykktar nýjar reglur um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í júní 2008 - 17.7.2008

Í júnímánuði voru gefin út 6 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Póst- og fjarskiptastofnun setur nýjar reglur um númerabirtingar - 11.7.2008

Póst- og fjarskiptastofnun hefur gefið út nýjar reglur um fyrirkomulag númerabirtingar, nr. 629/2008. Lesa meira
 

Fjarvistaupplýsingum eytt í framhaldi af úrskurði Persónuverndar - 8.7.2008

Í framhaldi af úrskurði Persónuverndar, sem kveðinn var upp í apríl sl., um skráningu fjarvistaupplýsinga hefur Heilsuverndarstöðin (Inpro) nú eytt upplýsingum úr gagnagrunni sínum. Lesa meira
 

Álit 29. gr. starfshópsins um leitarvélar - 4.7.2008

Hinn 4. apríl sl., samþykkti ráðgjafarhópur skv. 29. gr. Evróputilskipunar um persónuvernd nýtt álit varðandi leitarvélar og einkalífsvernd.

Lesa meira

 

Leyfisveitingar í maí 2008 - 30.6.2008

Í maímánuði voru gefin út 10 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Umsögn Persónuverndar vegna ákvörðunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2008/49/EB - 23.6.2008

Til athugunar er hjá dómsmálaráðuneytinu að gera breytingar á lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga vegna ákvörðunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2008/49/EB, en hún varðar IMI-upplýsingakerfið.

Lesa meira

 

Endurskoðun tilskipunar um persónuvernd í fjarskiptum - 19.6.2008

Hinn 15. maí sl., samþykkti ráðgjafarhópur álit nr. 2/2008 um endurskoðun tilskipunar nr. 2002/58/EB um persónuvernd í fjarskiptum. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í apríl 2008 - 23.5.2008

Í aprílmánuði voru gefin út 18 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Óheimil miðlun upplýsinga frá FSA til Capacent Gallup - 23.5.2008

Þann 19. maí úrskurðaði stjórn Persónuverndar í máli af tilefni kvörtunar frá manni yfir miðlun upplýsinga frá FSA. Lesa meira
 

Lengri varðveislutími upplýsinga um lyfjasölu - 22.5.2008

Á fundi stjórnar Persónuverndar 19. maí 2008 var ákveðið að heimila lyfjabúðum að varðveita í 24 mánuði rafrænar upplýsingar um lyfseðla. Lesa meira
 

Nýtt starfsleyfi fyrir Lánstraust hf. - 15.5.2008

Þann 8. maí 2008 gaf Persónuvernd Lánstrausti hf. (LT) nýtt leyfi til vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni lögaðila. Lesa meira
 

Vorfundur evrópskra persónuverndarstofnana - 8.5.2008

Vorfundur evrópskra persónuverndarstofnana var haldinn í Róm, Ítalíu dagana 17. og 18. apríl sl. Hann var sóttur af Sigrúnu Jóhannesdóttur forstjóra.

Lesa meira

 

Meðferð persónuupplýsinga um börn - 28.4.2008

Hinn 18. febrúar sl. samþykkti hinn sk. 29. gr. starfshópurinn vinnuskjal um vernd persónuupplýsinga um börn. Hópurinn sinnir ráðgjafarhlutverki um persónuverndarmálefni í Evrópusambandinu og á m.a. að stuðla að samræmi í framkvæmd persónuverndarlöggjafar í Evrópu.

Lesa meira

 

Kortaskilmálar Kaupþings - 22.4.2008

Í mars síðastliðnum barst Persónuvernd kvörtun einstaklings vegna kortaskilmála Kaupþings sem taka áttu gildi 10. þess mánaðar. Jafnframt barst erindi frá Neytendasamtökunum. Kortaskilmálarnir sem um ræðir sneru m.a. að gerð persónusniða og sendingu sms-skilaboða til korthafa. Lesa meira
 

Skráning á upplýsingum um fjarvistir og veikindi starfmanns - 16.4.2008

Persónuvernd hefur kveðið upp úrskurð í máli af tilefni kvörtunar manns yfir skráningu á heilsufarsupplýsingum um ólögráða dóttur hans, en hún er starfsmaður á Grund.

Lesa meira

 

Leyfisveitingar í mars 2008 - 10.4.2008

Í marsmánuði voru gefin út 21 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Varðveislutími upplýsinga um lyfjaneyslu - 7.4.2008

Persónuvernd hefur lagst gegn því að tekin verði ákvörðun um að geyma í 30 ár upplýsingar um lyfjanotkun hvers manns, þ.e. meðan ekki hefur farið fram athugun á því hve lengi þörf sé á því að varðveita upplýsingarnar.

Lesa meira

 

Leyfisveitingar í febrúar 2008 - 19.3.2008

Í febrúarmánuði voru gefin út 25 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Miðlun upplýsinga til menntamálaráðuneytisins - 18.3.2008

Persónuvernd hefur gefið út álit varðandi lögmæti þess að Háskólinn á Bifröst og Listaháskóli Íslands afhendi menntamálaráðuneytinu upplýsingar um einstaklinga sem þar sækja um skólavist.

Lesa meira

 

Niðurstaða Úrskurðarnefndar um upplýsingamál - 17.3.2008

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur komist að niðurstöðu í máli er varðar ákvörðun Persónuverndar um að birta á heimasíðu sinni úrlausn í máli nr. 2007/497. Lesa meira
 

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga - 10.3.2008

Með bréfi, dags. 1. febrúar sl., óskaði félags- og tryggingamálanefndar Alþingis eftir umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um atvinnuréttindi útlendinga o.fl., 338. mál, tegundir atvinnuleyfa, EES-reglur o.fl.

Lesa meira
 

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á útlendingalögum - 10.3.2008

Með bréfi, dags. 29. janúar sl., óskaði allsherjarnefnd Alþingis eftir umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um útlendinga, 337. mál, flokkar dvalarleyfa, EES-reglur o.fl.

Lesa meira
 

Umsögn um frumvarp til laga um útlendinga og réttarstöðu þeirra - 7.3.2008

Persónuvernd veitti nýverið umsögn um frumvarp til laga um útlendinga og réttarstöðu þeirra. Lesa meira
 

Umsögn um drög að frumvarpi til breytingar á lögum um lífsýnasöfn - 27.2.2008

Persónuvernd barst bréf frá heilbrigðisráðuneytinu, dags. 21. janúar sl., þar sem óskað var eftir umsögn stofnunarinnar um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum nr. 110/2000 um lífsýnasöfn.

Lesa meira
 

Notkun vistunarmatsgagna og RAI-matsgagna - 26.2.2008

Persónuvernd hefur, með bréfi dags. 12. febrúar 2008, svarað erindi Hjartaverndar varðandi heimild til að fara í sjúkraskrár einstaklinga sem tóku þátt í „Öldrunarrannsókn“, safna úr þeim viðkvæmum persónuupplýsingum og varðveita í persónugreinanlegum gagnagrunni samtakanna.

Lesa meira
 

Starfsleyfi banka og sparisjóða til að halda Lokanaskrá og miðla upplýsingum úr henni - 25.2.2008

Persónuvernd hefur endurnýjað starfsleyfi vegna Lokanaskrár. Leyfishafar eru Samband íslenskra sparisjóða, Landsbankinn, Glitnir og Kaupþing. Lesa meira
 

Persónuvernd leggst gegn því að varðveislutími gagna í lyfjagagnagrunni landlæknis verði lengdur úr 3 árum í 30 ár - 12.2.2008

Persónuvernd hefur veitt heilbrigðisráðuneytinu umsögn sína um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lyfjalögum. Lesa meira
 

Úttekt á öryggiskerfi persónuupplýsinga hjá Neyðarlínunni hf. - 11.2.2008

Persónuvernd hefur unnið úttekt á öryggi hjá Neyðarlínunni hf. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í janúar 2008 - 7.2.2008

janúarmánuði voru gefin út 15 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni. Lesa meira
 

Umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um meðferð sakamála - 4.2.2008

Þann 28. janúar sendi Persónuvernd allsherjarnefnd Alþingis umsögn sína um frumvarp til laga um meðferð sakamála. Þar gerir hún athugasemdir við ýmis atriði í frumvarpinu.

Lesa meira
 

Umsagnir um frumvörp til laga um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla - 22.1.2008

Persónuvernd hefur komið á framfæri við menntamálanefnd umsögnum um frumvörp til laga um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í desember 2007 - 17.1.2008

Í desembermánuði voru gefin út 11 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Leyfisveitingar í nóvember 2007 - 17.1.2008

Í nóvembermánuði voru gefin út 9 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Nýtt starfsleyfi fyrir Lánstraust hf. - 10.1.2008

Þann 20. desember 2007 gaf Persónuvernd Lánstrausti hf. nýtt leyfi til vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni einstaklinga. Lesa meira
 

Úttekt Persónuverndar á lífsýnasöfnum Krabbameinsfélags Íslands - 20.12.2007

Persónuvernd hefur lokið skoðun sinni á lífsýnasöfnum Krabbameinsfélags Íslands, en félagið rekur tvö söfn - annars vegar lífsýnasafn Frumurannsóknastofu leitarsviðs og hins vegar Lífsýnabanka KÍ (safn Rannsóknastofu í sameinda- og frumulíffræði).

Lesa meira

 

Beiðni Lánstrausts synjað - 19.12.2007

Persónuvernd hefur hafnað ósk Lánstrausts um víðtæka heimild til vinnslu upplýsinga um greiðsluhegðun einstaklinga.

Lesa meira
 

Umsögn vegna auðkenningar viðskiptavina fjármálafyrirtækja - 17.12.2007

Óskað var eftir afstöðu Persónuverndar vegna heimildar viðskiptaráðherra til þess að setja í reglugerð ákvæði um að tilkynningar fjármálafyrirtækja á grundvelli 30. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti skuli innihalda upplýsingar um auðkenni viðskiptavina fjármálafyrirtækja. Lesa meira
 

Persónuvernd synjar ÍE um leyfi - 12.12.2007

Þann 26. nóvember 2007 ákvað Persónuvernd að hafna beiðni Íslenskrar erfðagreiningar ehf. (ÍE) um heimild vegna verkefnis sem nefnt var „Víðtæk erfðamengisleit orsaka sjúkdóma og einkenna þeim tengdum á grundvelli B-samþykkja og gagna í lífsýnasafni ÍE". Lesa meira
 

Úrskurður Persónuverndar felldur úr gildi - 7.12.2007

Í gær var kveðinn upp dómur Hæstaréttar í máli sem læknir höfðaði á hendur Persónuvernd til ógildingar úrskurði stofnunarinnar frá 27. febrúar 2006. Lesa meira
 

Umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um samræmda neyðarsvörun - 6.12.2007

Óskað var eftir umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um samræmda neyðarsvörun. Lesa meira
 

Umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um breytingar á almennum hegningarlögum - 6.12.2007

Óskað var umsagnar Persónuverndar um frumvarp til laga um breytingar á almennum hegningarlögum. Lesa meira
 

Umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um almannavarnir - 6.12.2007

Óskað var eftir umsögn Perónuverndar um frumvarp til laga um almannavarnir. Lesa meira
 

Umsögn Persónuverndar um breytingar á lögum um tekjuskatt - 6.12.2007

Persónuvernd vísar til eldri umsagnar vegna frumvarps til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt Lesa meira
 

Umsögn Persónuverndar um frumvarp til breytinga á lögum um tæknifrjóvganir - 6.12.2007

Heilbrigðisnefnd Alþingis leitaði til Persónuverndar og óskaði umsagnar stofnunarinnar um frumvarp til breytinga á lögum nr. 55/1996 um tæknifrjóvganir.

Lesa meira
 

Athugasemdir Persónuverndar við frumvarp til laga um Hagstofu Íslands - 5.12.2007

Föstudaginn 23. nóvember 2007 var mætt af hálfu Persónuverndar á fund allsherjarnefndar Alþingis til að fara yfir afstöðu stofnunarinnar til frumvarps til laga um Hagstofu Íslands. Lesa meira
 

Álit Persónuverndar vegna notkunar fingrafaralesara við afgreiðslu máltíða í mötuneytum - 3.12.2007

Hinn 26. nóvember sl. komst Persónuvernd að niðurstöðu í máli er varðaði notkun fingrafaralesara við afgreiðslu máltíða í mötuneytum Víðistaðaskóla og Setbergsskóla.

Lesa meira

 

Úrskurður Persónuverndar í máli er varðar miðlun upplýsinga úr félagaskrá og notkun upplýsinganna við beina markaðssetningu - 3.12.2007

Hinn 26. nóvember sl. komst Persónuvernd að niðurstöðu í máli er varðar miðlun upplýsinga úr félagaskrá Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) og notkun upplýsinganna við beina markaðssetningu Atlantsolíu.

Lesa meira

 

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingarsamninga - 28.11.2007

Hinn 19. nóvember sl. veitti Persónuvernd viðskiptanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingarsamninga.

Lesa meira

 

Samevrópskt neyðarnúmer - 27.11.2007

29. greinar starfshópurinn, sem hefur m.a. það hlutverk að stuðla að samræmingu í framkvæmd persónuverndarlöggjafar í Evrópu, hefur sent frá sér vinnuskjal um persónuvernd varðandi fyrirhugað samevrópskt neyðarnúmer. Lesa meira
 

Eftirlitsmyndavélar í lögreglubifreiðum - 26.11.2007

Persónuvernd hefur borist nokkuð af fyrirspurnum um heimildir lögreglu til þess að beina myndavélum að fólki úr lögreglubifreiðum. Lesa meira
 

Greiðslukvittanir frá Tryggingastofnun ríkisins vegna fylgdar í sjúkraflutningum - 14.11.2007

Hinn 8. nóvember 2007 lauk máli varðandi greiðslukvittanir frá Tryggingastofnun ríkisins til fylgdarmanna við sjúkraflutninga. Lesa meira
 

Ný starfsleyfi fyrir Lánstraust hf. - 8.11.2007

Þann 1. nóvember sl. tóku gildi ný starfsleyfi fyrir fyrirtækið Lánstraust hf. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í október 2007 - 8.11.2007

Í októbermánuði voru gefin út 3 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Birting TR á upplýsingum um verð hjá tannlæknum - 2.11.2007

Hinn 8. október 2007 barst Persónuvernd bréf frá Tryggingastofnun ríkisins (TR) þar sem greint er frá fyrirætlunum um að birta upplýsingar um m.a. verð hjá einstökum tannlæknum á heimasíðu stofnunarinnar. Lesa meira
 

62. fundur 29. gr. starfshópsins - 23.10.2007

62. fundur hins sk. 29. gr. starfshóps var haldinn í Brussel 9.-10. október síðastliðinn. Hann var sóttur af Sigrúnu Jóhannesdóttur, forstjóra.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í september 2007 - 11.10.2007

Í septembermánuði voru gefin út 6 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira

 

Úrskurður Persónuverndar í máli er varðar vinnslu persónuupplýsinga vegna könnunar Alcan á Íslandi - 10.10.2007

Hinn 5. október sl. komst Persónuvernd að niðurstöðu í máli er varðar vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við könnun Alcan á Íslandi hf. á afstöðu Hafnfirðinga til stækkunar álversins í Straumsvík. Lesa meira
 

Ákvörðun varðandi umsóknareyðublöð hjá Menntaskólanum Hraðbraut - 9.10.2007

Hinn 5. október 2007 tók stjórn Persónuverndar ákvörðun varðandi umsóknareyðublað sem Menntaskólinn Hraðbraut hefur lagt fyrir umsækjendur um skólavist sem orðnir eru 18 ára eða eldri Lesa meira
 

Norrænn forstjórafundur 27.-29. ágúst 2007 - 8.10.2007

Dagana 27.-29. ágúst 2007 var fundur forstjóra hjá norrænum persónuverndarstofnunum, þ.e. á Íslandi, í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, haldinn á Hótel Búðum á Snæfellsnesi. Lesa meira
 

29. alþjóðafundur forstjóra persónuverndarstofnana - 2.10.2007

26., 27. og 28. september sl. var haldinn 29. alþjóðafundur forstjóra persónuverndarstofnana í Montreal Lesa meira
 

Leyfisveitingar í ágúst 2007 - 21.9.2007

Í ágústmánuði voru gefin út 5 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í júlí 2007 - 21.9.2007

Í júlímánuði voru gefin út 3 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Til varnar friðhelgi einkalífsins - 4.7.2007

25 ára afmæli persónuverndar á Íslandi Lesa meira
 

Synjað um aðgang að upplýsingum úr fæðingaskrá og gögnum um fóstureyðingar - 4.7.2007

Hinn 26. júní sl. hafnaði Persónuvernd beiðni landlæknis um leyfi til að veita aðgang að upplýsingum úr fæðingaskrá, sem og gögnum um fóstureyðingar, sem safnast hafa hjá embættinu, í þágu rannsóknarinnar „Langtímaáhrif ráðgjafar um getnaðarvarnir á óráðgerða þungun og notkun getnaðarvarna meðal kvenna sem farið hafa í fóstureyðingu.“ Lesa meira
 

Leyfisveitingar í júní 2007 - 4.7.2007

Í júnímánuði 2007 voru gefin út 4 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni Lesa meira
 

Alcan á Íslandi telst vera ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem söfnuðust við upplýsingaöflun félagsins í tengslum við kosningar um stækkun álversins í Straumsvík - 2.7.2007

Hinn 26. júní sl. kvað Persónuvernd upp úrskurð um hvort Alcan á Íslandi hf. teldist ábyrgðaraðili persónuupplýsinga sem söfnuðust við upplýsingaöflun félagsins í tengslum við kosningar um fyrirhugaða stækkun álversins í Straumsvík. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í maí 2007 - 11.6.2007

Í maímánuði 2007 voru gefin út 8 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni

Lesa meira
 

Miðlun farþegaupplýsinga til bandarískra stjórnvalda - 8.6.2007

Hinn 3. maí veitti Persónuvernd Icelandair ehf. leyfi til að miðla ýmsum persónuupplýsingum farþega sinna til heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna. Heimildin er veitt tímabundið og gildir til 31. júlí 2007. Hún er veitt á grundvelli sjónarmiða um brýna almannahagsmuni, þar sem fyrir liggur að Icelandair hefur á hættu að verða neitað um lendingarleyfi í Bandaríkjunum, fái þarlend stjórnvöld ekki aðgang að upplýsingunum.
Lesa meira
 

Ný starfsleyfi fyrir Lánstraust hf. - 31.5.2007

Á fundi stjórnar Persónuverndar þann 3. maí sl. var fjallað um beiðni Lánstrausts hf. um ákveðnar breytingar á starfsleyfum sínum.

Lesa meira
 

Vorfundur evrópskra persónuverndarstofnana - 25.5.2007

Vorfundur evrópskra persónuverndarstofnana var haldinn á Kýpur dagana 10. og 11. maí sl. Hann var sóttur af Sigrúnu Jóhannesdóttur forstjóra sem hélt erindi um sjúkraskrár og internetið. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í apríl 2007 - 22.5.2007

Í aprílmánuði 2007 voru gefin út 13 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni

Lesa meira
 

Meðferð kjörskráa - 20.4.2007

Þar sem senn líður að kosningum minnir Persónuvernd á álit sitt í máli nr. 2002/252 sem fjallaði um meðferð kjörskráa.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í marsmánuði 2007 - 30.3.2007

Í marsmánuði 2007 voru gefin út 18 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.

Lesa meira
 

Nýleg skjöl frá 29. gr. starfshópnum - 26.3.2007

Það sem af er ári hefur 29. gr. starfshópurinn samþykkt þrjú álit, ein tilmæli og eitt vinnuskjal.

Lesa meira
 

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna o.fl. - 4.3.2007

Hinn 4. mars sl. veitti Persónuvernd sjávarútvegsnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna o.fl. Lesa meira
 

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands - 4.3.2007

Hinn 4. mars sl. veitti Persónuvernd sjávarútvegsnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Lesa meira
 

Aðgangur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að rannsóknaniðurstöðum á Landspítala Háskólasjúkrahúsi - 3.3.2007

Hinn 19. febrúar sl. fjallaði stjórn Persónuverndar um fyrirhugaðan rafrænan aðgang Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) að rannsóknarniðurstöðum innan Landspítala Háskólasjúkrahúss (LSH).

Lesa meira
 

Bréf Persónuverndar til efnahags- og viðskiptanefndar vegna frumvarps til laga um breyting á lögum um vátryggingarsamninga - 2.3.2007

Bréf Persónuverndar til efnahags- og viðskiptanefndar um breytingu á lögum um vátryggingarsamninga, að því er varðar upplýsingaöflun tryggingafélaga. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í febrúar 2007 - 1.3.2007

Í febrúarmánuði 2007 voru gefin út 15 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni. Lesa meira
 

Aðgangur læknanema að rafrænum sjúkraskrám á Landspítala Háskólasjúkrahúsi - 27.2.2007

Á fundi stjórnar Persónuverndar hinn 19. febrúar síðastliðinn var fjallað um erindi Landspítala Háskólasjúkrahúss um aðgang læknanema að rafrænum sjúkraskrám. Lesa meira
 

Ákvörðun varðandi öryggi rafrænna sjúkraskráa innan LSH og lögmæti aðgangs að þeim - 22.2.2007

Hinn 19. febrúar 2007 tók stjórn Persónuverndar ákvörðun varðandi öryggi rafrænna sjúkraskráa innan Landspítala-Háskólasjúkrahúss og aðgang að þeim. Tekin var afstaða til lögmætis aðgangs lækna, hjúkrunardeildarstjóra og heilbrigðisstarfsmanna í skilgreindum teymum. Talið var að núverandi fyrirkomulag væri í samræmi við lög ef viðeigandi öryggisráðstasfanir yrðu viðhafðar.

Lesa meira
 

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla og meðferð einkamála - 19.2.2007

Hinn 6. febrúar sl. veitti Persónuvernd allsherjarnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á dómstólalögum. Lesa meira
 

Frumvarp til laga um breyting á lögum um vátryggingarsamninga - 19.2.2007

Hinn 12. febrúar sl. veitti Persónuvernd efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingarsamninga. Lesa meira
 

Álit á hugmyndum um aðgang tryggingafélaga að upplýsingum um umferðarlagabrot - 29.1.2007

Samgönguráðuneytið óskaði eftir áliti Persónuverndar á erindi tryggingafélagsins Sjóvár-Almennra trygginga um hugsanlegan aðgang tryggingafélaga að ökuferilsskrá.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í janúarmánuði 2007 - 29.1.2007

Í janúarmánuði 2007 voru gefin út 6 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir.

Lesa meira
 

Upplýsingum um uppsögn miðlað til ráðgjafarþjónustu án ótvíræðs samþykkis - 29.1.2007

Hinn 22. janúar sl. kvað Persónuvernd upp úrskurð um lögmæti upplýsingamiðlunar vinnuveitanda til ráðgjafarþjónustu um uppsögn starfsmanns.

Lesa meira
 

Evrópski persónuverndardagurinn er í dag - 28.1.2007

Evrópskur persónuverndardagur er haldinn í fyrsta skipti í dag að frumkvæði Evrópuráðsins. 28. janúar varð fyrir valinu þar sem Evrópuráðssamningur um vernd einstaklinga varðandi vélræna vinnslu persónuupplýsinga var gerður þennan dag árið 1981.

Lesa meira
 

Álit á túlkun 15. gr. reglugerðar nr. 569/1999 um sakaskrá ríkisins - 16.1.2007

Hinn 11. janúar sl. veitti Persónuvernd ríkissaksóknara álit sitt á túlkun 15. gr. reglugerðar um sakaskrá ríkisins, en sú grein fjallar um afhendingu upplýsinga úr sakaskrá til einkaaðila.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í desembermánuði 2006 - 2.1.2007

Í desembermánuði 2006 voru gefin út 12 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vísindarannsóknir.

Lesa meira
 

Sýslumanni bar ekki að sjá til þess að upplýsingar um greiðslu skuldar bærust Lánstrausti - 27.12.2006

Hinn 19. desember sl. gaf Persónuvernd frá sér álit í máli er varðaði meðferð sýslumannsins í Reykjavík á upplýsingum í tengslum við kröfu sem varð tilefni árangurslauss fjárnáms. Lesa meira
 

Miðlun upplýsinga til fjármálafyrirtækja um framvísun falsaðrar bankaábyrgðar og handtöku - 22.12.2006

Hinn 19. desember sl. kvað Persónuvernd upp úrskurð um lögmæti miðlunar Glitnis, áður Íslandsbanka, og SBV á persónuupplýsingum til annarra fjármálafyrirtækja í tengslum við atburði í Íslandsbanka hinn 19. janúar sl.

Lesa meira
 

Persónuvernd sýknuð af kröfu um ógildingu úrskurðar - 21.12.2006

Í morgun var kveðinn upp dómur í máli sem læknir höfðaði á hendur Persónuvernd til ógildingar úrskurði stofnunarinnar frá 27. febrúar sl. í máli nr. 2005/479. Lesa meira
 

Ársskýrsla Persónuverndar er komin út - 19.12.2006

Ársskýrsla Persónuverndar fyrir árið 2005 er komin út. Lesa meira
 

Breyting á reglum nr. 698/2004 um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga - 18.12.2006

Á fundi stjórnar Persónuverndar þann 30. nóvember sl. var ákveðið að breyta 4. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglna nr. 698/2004 um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga.

Lesa meira
 

Tölvupóstsendingar til Persónuverndar - 13.12.2006

Síðustu daga hefur borið á því að tölvupóstur sendur Persónuvernd hafi ekki komist til skila. Svo virðist sem stillingar hjá þjónustuaðila stofnunarinnar hafi valdið því, en búið er að ráða bót á vandanum.

Lesa meira
 

Afhending skattframtala til lífeyrissjóðs - 8.12.2006

Hinn 30. nóvember sl. kvað Persónuvernd upp úrskurð í máli sem varðaði afhendingu skattframtala til lífeyrissjóðs.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í nóvembermánuði 2006 - 1.12.2006

Í nóvembermánuði 2006 voru gefin út 10 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vísindarannsóknir

Lesa meira
 

Mat á líkum á ógjaldfærni íslenskra fyrirtækja - 24.11.2006

Borið hefur á því að fyrirtæki hafi haft samband við Persónuvernd vegna vinnslu fyrirtækisins Lánstrausts hf. á svokölluðu LT-skori sem metur líkur á ógjaldfærni íslenskra fyrirtækja.

Lesa meira
 

28. alþjóðafundur forstjóra persónuverndarstofnana - 10.11.2006

28. alþjóðafundur forstjóra persónuverndarstofnana var haldinn í London 2. og 3. nóvember sl. og var hann sóttur af Sigrúnu Jóhannesdóttur, forstjóra Persónuverndar. Aðalefni fundarins var eftirlitsþjóðélagið.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í októbermánuði 2006 - 3.11.2006

Í októbermánuði 2006 voru gefin út 7 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vísindarannsóknir.

Lesa meira
 

Eftirlit sýslumannsembættisins á Keflavíkurflugvelli með innflutningi flugliða á vörum inn í landið - 3.11.2006

Hinn 23. október sl. komst Persónuvernd að niðurstöðu um eftirlit sýslumannsembættisins á Keflavíkurflugvelli með innflutningi flugliða á vörum inn í landið.

Lesa meira
 

Um málshöfðun Íslenskrar erfðagreiningar vegna meintra trúnaðarbrota og um aðferðir Íslenskrar erfðagreiningar við rannsókn málsins - 31.10.2006

Vísað er til frétta í fjölmiðlum um málshöfðun Íslenskrar erfðagreiningar á hendur fimm fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins vegna meintra trúnaðarbrota og um aðferðir Íslenskrar erfðagreiningar við rannsókn málsins.

Lesa meira

 

Bráðabirgðastarfsleyfi veitt vegna lokanaskrár - 24.10.2006

Hinn 20. október sl. veitti Persónuvernd Sambandi íslenskra sparisjóða, Landsbankanum, Glitni banka og KB banka leyfi til að annast söfnun upplýsinga í svokallaða „lokanaskrá.“ Lesa meira
 

Úttektum á læknastöðvum lokið - 13.10.2006

Hinn 29. ágúst 2006 lauk Persónuvernd úttektum á öryggi vinnslu persónuupplýsinga hjá Læknastöðinni ehf., Læknasetrinu ehf. og Stoðkerfi ehf. Lesa meira
 

Verklag við sendingu læknabréfa - 6.10.2006

Á vormánuðum barst Persónuvernd erindi vegna meðhöndlunar á læknabréfi. Lesa meira
 

Nýjar reglur um rafræna vöktun og breyting á reglum um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu - 5.10.2006

Í dag voru birtar í B-deild Stjórnartíðinda nýjar reglur um rafræna vöktun og reglur um breytingu á reglum nr. 698/2004 um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga. Lesa meira
 

Nýtt starfsleyfi Myndmarks - 4.10.2006

Hinn 23. september sl. tók gildi nýtt starfsleyfi fyrir Myndmark til að annast söfnun og skráningu upplýsinga sem varða fjárhagsmálefni og lánstraust einstaklinga, í því skyni að miðla þeim til annarra.

Lesa meira
 

Leyfisveitingar í septembermánuði 2006 - 4.10.2006

Í septembermánuði 2006 voru gefin út 6 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vísindarannsóknir.

Lesa meira
 

Ný álit frá 29. gr. starfshópnum - 3.10.2006

29. gr. starfshópurinn, sem sinnir ráðgjafarhlutverki um persónuverndarmálefni í EB og hefur m.a. það hlutverk að stuðla að samræmingu í framkvæmd persónuverndarlöggjafar í Evrópu, hefur gefið út fjögur ný álit.

Lesa meira
 

Fréttatilkynning 29. gr. starfshópsins um SWIFT-málið - 27.9.2006

Í gær fjallaði 29. gr. starfshópurinn um sk. SWIFT-mál og hefur af því tilefni sent frá sér fréttatilkynningu. Lesa meira
 

Trúnaður og einkalífsvernd í heilbrigðisþjónustu - 26.9.2006

Persónuvernd hefur látið þýða EuroSOCAP staðal um trúnað og einkalífsvernd í heilbrigðisþjónustu. Lesa meira
 

Meðferð persónuupplýsinga - Réttur þinn - 19.9.2006

Út er kominn bæklingurinn "Meðferð persónuupplýsinga - Réttur þinn". Lesa meira
 

Kynning á hugmyndum að skipulagi íslenskrar leyniþjónustu - 14.9.2006

Mánudaginn 4. september sl. kom á fund Persónuverndar sérfræðingahópur frá Brussel, sem var staddur hér á landi í boði dómsmálaráðuneytisins í því skyni að kynna hugmyndir sínar um skipulag íslenskrar leyniþjónustu.

Lesa meira
 

Upplýsingar á heimasíðum grunnskólanna - 7.9.2006

Nú þegar skólaárið er að hefjast berst Persónuvernd nokkuð af fyrirspurnum frá skólastjórnendum um það hvaða upplýsingar megi birta um börn á heimasíðum grunnskólanna.

Lesa meira
 

Ný starfsleyfi Lánstrausts hf. - 1.9.2006

Í dag taka gildi ný starfsleyfi Lánstrausts hf. til að annast söfnun og skráningu upplýsinga sem varða fjárhagsmálefni og lánstraust, í því skyni að miðla þeim til annarra. Lesa meira
 

Leyfisveitingar í ágústmánuði 2006 - 31.8.2006

Í ágústmánuði 2006 voru gefin út 7 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga. Lesa meira
 

Skýrsla um starfsemi JSA - 29.8.2006

Komin er út skýrsla um starfsemi JSA á árunum 2004-2005. Lesa meira
 

Meðferð upplýsinga um mætingar í grunnskóla - 21.8.2006

Hinn 14. ágúst sl. kvað Persónuvernd upp úrskurð um meðferð upplýsinga um mætingar í grunnskóla.

Kvartað var yfir notkun á upplýsingum um mætingar í Grunnskóla Grindavíkur í tengslum við hátíð fyrir unglinga sem haldin var á vegum Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi, en B hafði ekki fengið miða á hátíðina þar sem hann hafði ekki sýnt ásættanlega skólamætingu.

Lesa meira

 

Ný heimasíða Persónuverndar - 14.8.2006

Í dag hefur verið opnuð ný útgáfa af heimasíðu Persónuverndar. Lesa meira
 

Fjöldi skráninga í vanskilaskrá Lánstrausts - 31.7.2006

Samkvæmt gildandi starfsleyfi Lánstrausts ber fyrirtækinu að tilkynna Persónuvernd ársfjórðungslega um hve margir hafi aðgang að skrám þess.

Lesa meira
 

Úttekt á öryggi persónuupplýsinga hjá Fangelsismálastofnun ríkisins lokið - 31.7.2006

Persónuvernd hefur lokið úttekt á öryggi persónuupplýsinga hjá Fangelsismálastofnun ríkisins.

Lesa meira
 

Dómur Evrópudómstólsins í málum nr. C/317/04 og C-318/04 - 25.7.2006

30. maí sl. kvað Evrópudómstóllinn upp dóm í málum nr. C-317/04 og C-318/04. Dómurinn ógildir ákvarðanir Evrópustofnana sem varða miðlun farþegaupplýsinga til Bandaríkjanna

Lesa meira
 

Sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli óheimilt að miðla persónuupplýsingum úr lögregluskýrslu - 20.6.2006

Persónuvernd barst kvörtun yfir því að sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli hafi látið vinnuveitanda kvartanda, Icelandair, í té umbeðið afrit af lögregluskýrslu um atvik þar sem hann kom við sögu.

Lesa meira
 

Tölvupóstur starfsmanns skoðaður - 20.6.2006

B kvartaði yfir því að yfirmaður hans hefði skoðað tölvupóst hans. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að framkvæmd við skoðun tölvupóstsins hefði farið í bága við 7. gr. laga um persónuvernd og 5. gr. reglna um rafræna vöktun þar sem B var ekki skýrt frá skoðuninni eða veitt færi á að vera viðstaddur.

Lesa meira
 

Rafræn vöktun á veitingastað - 20.6.2006

Stéttarfélag kvartaði yfir rafrænni vöktun á veitingastað fyrir hönd starfsmanns sem hafði verið sagt upp störfum eftir að tiltekin brot hans í starfi höfðu verið leidd í ljós við skoðun á myndbandsupptökum.

Lesa meira
 

Úttektum á ráðningarþjónustum lokið - 16.6.2006

Persónuvernd hefur lokið úttekt á vinnslu persónuupplýsinga hjá þremur ráðningarþjónustum. Lesa meira
 

Ný álit frá 29. gr. starfshópnum - 14.6.2006

29. gr. starfshópurinn, sem hefur m.a. það hlutverk að stuðla að samræmingu í framkvæmd persónuverndarlöggjafar í Evrópu, hefur gefið út tvö ný álit. Lesa meira
 

Rafræn skrá yfir hnupl í verslunum - 22.5.2006

Persónuvernd barst erindi öryggisdeildar fyrirtækis sem hyggst halda rafræna skrá um hnupl í verslunum sínum, í því skyni að halda utan um málin í tengslum við samskipti við lögreglu og vegna hugsanlegra málaferla.
Lesa meira
 

Aukinn aðgangur að persónuupplýsingum um skjólstæðinga Reykjavíkurborgar - 19.5.2006

Að undanförnu hafa fjölmiðlar fjallað um aukinn aðgang að persónuupplýsingum um skjólstæðinga Reykjavíkurborgar. M.a. sagði í fréttum RÚV 17. maí sl. að Persónuvernd hefði lagst gegn honum, en í fréttum RÚV í dag, 19. maí, var rætt við starfsmann Reykjavíkuborgar sem sagði hins vegar að Reykjavíkurborg hefði leitað álits Persónuverndar og hún veitt "ansi víðar heimildir."
Lesa meira
 

Um upplýst samþykki til aðgangs að sjúkraskrám - 8.5.2006

Hinn 27. febrúar sl. kvað stjórn Persónuverndar upp úrskurð í máli er varðaði aðgang læknis að sjúkraskrá í tengslum við vinnslu álitsgerðar vegna bótamáls. Varð niðurstaðan sú að ekki hefði legið fyrir upplýst samþykki fyrir aðgangi að sjúkraskránni í skilningi laga nr. 77/2000 og hefði lækninum því verið óheimilt að fara í hana í umrætt sinn. Í tilefni af málinu ákvað Persónuvernd að rita Læknafélagi Íslands, Lögmannafélags Íslands og Sambandi íslenskra tryggingafélaga bréf um upplýst samþykki til uppflettinga í sjúkraskrám.

Lesa meira
 

Ný tilskipun um varðveislu fjarskiptaupplýsinga - 1.5.2006

Ný tilskipun um varðveislu fjarskiptaupplýsinga hefur nú verið birt í Stjórnartíðindum EB. Lesa meira
 

Nýtt starfsleyfi Lánstrausts; Lögaðilar - 8.4.2006

Lánstraust hefur hlotið nýtt starfsleyfi til að safna og miðla upplýsingum um fjárhag lögaðila. Leyfið gildir til 1. september 2006.

Lesa meira
 

Nýtt starfsleyfi Lánstrausts; Upplýsingar um fjárhag einstaklinga - 8.4.2006

Lánstraust hefur hlotið nýtt leyfi til að safna og miðla fjárhagsupplýsingum um einstaklinga. Leyfið gildir til 1. september 2006. Lesa meira
 

Gjaldeyriskaup og kennitölur - 7.4.2006

Bréf Persónuverndar til Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja varðandi öflun kennitalna í tengslum við gjaldeyriskaup Lesa meira
 

Úttektir hjá félagsþjónustum á höfuðborgarsvæðinu - 3.4.2006

3. apríl 2006 lauk Persónuvernd því verkefni að kanna lögmæti og öryggi vinnslu persónuupplýsinga hjá félagsþjónustum Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar, Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar. Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að vinnsla persónuupplýsinga hjá öllum þessum félagsþjónustum væri heimil að lögum. Þá taldi stofnunin öryggi vinnslunnar ekki ábótavant hjá öðrum félagsþjónustum en þeirri í Hafnarfirði. Var þó talið rétt að leiðbeina um tilteknar úrbætur á öryggiskerfi allra félagsþjónustnanna, en til félagsþjónustunnar í Hafnarfirði var auk þess beint fyrirmælum um tilteknar úrbætur.

Lesa meira
 

Heimildir tryggingafélaga - 23.3.2006

Vegna mikillar umræðu í fjölmiðlum að undanförnu um afstöðu Persónuverndar varðandi heimildir tryggingafélaga til að afla upplýsinga um ættgenga sjúkdóma umsækjenda, skal eftirfarandi tekið fram: Lesa meira
 

Kvörtun vegna umfjöllunar fjölmiðils vísað frá - 13.3.2006

Persónuvernd barst kvörtun vegna umfjöllunar fjölmiðils, en vísaði henni frá á grundvelli þess að það væri hlutverk dómstóla að sker úr um mörk tjáningarfrelsis og friðhelgi einkalífs. Lesa meira
 

Öflun kennitölu í gjaldeyrisviðskiptum - 13.3.2006

Hinn 13. mars 2006 gaf stjórn Persónuverndar út álit um öflun kennitölu í gjaldeyrisviðskiptum. Tilefni álitsins var kvörtun frá einstaklingi sem reynt hafði að skipta peningum í gjaldeyri í tveimur bönkum en var þá beðinn um kennitölu sína. Lesa meira
 

Uppfletting í sjúkraskrá ólögmæt - 27.2.2006

A kvartaði yfir því að læknirinn B hefði farið í sjúkraskrá hans án heimildar í tengslum við álitsgerð sem B vann að fyrir tryggingafélag. Lesa meira

 

Uppfletting í vanskilaskrá Lánstrausts ólögmæt - 27.2.2006

Úrskurður Persónuverndar um lögmæti uppflettingar í vanskilaskrá Lánstrausts.
Lesa meira
 

Skráning á upplýsingum um hnupl - 7.2.2006

Persónuvernd hafði til umfjöllunar skráningu öryggisdeildar fyrirtækis á upplýsingum um búðarhnupl í verslunum þess. Lesa meira

 

Synjun um breytingu á starfsleyfi Lánstrausts - 6.2.2006

6. febrúar synjaði Persónuvernd Lánstrausti um breytingu á starfsleyfi félagsins.

Lesa meira
 

Rafræn vöktun á heimavist - 25.1.2006

Ákvörðun um lögmæti rafrænnar vöktunar á heimavist Lesa meira
 

Um meðferð tölvupósts - 23.1.2006

Í tilefni af erindi stéttarfélags veitti Persónuvernd leiðbeiningar um meðferð tölvupósts. Bréfið er birt hér að neðan. Lesa meira
 

Heimildir þjónustuaðila til að afhenda vinnuveitendum upplýsingar um tölvunotkun starfsmanna - 19.1.2006

Persónuvernd barst fyrirspurn um heimildir A til að afhenda B, sem félagið rekur upplýsingakerfi fyrir, upplýsingar um tölvunotkun starfsmanns hjá B. Tekið skal fram að upplýsingarnar höfðu ekki verið afhentar. Af erindinu var talið mega ætla að A hefði stöðu vinnsluaðila, í skilningi laga um persónuvernd, gagnvart B sem hins vegar hefði stöðu ábyrgðaraðila.
Lesa meira
 

Listi yfir banaslys á Netinu - 19.1.2006

Persónuvernd barst ábending um lista yfir banaslys á Íslandi sem birtur var á heimasíðu á Netinu. Á listanum komu fram nöfn þeirra sem hafa látið lífið í slysum, aldur þeirra og hvernig slysin atvikuðust. Lesa meira

 

Útgáfa leyfa í tengslum við kaup ÍE á hlutafé í UVS - 11.1.2006

Persónuvernd fékk þann 8. desember 2005 erindi frá Urði, Verðandi, Skuld ehf. (UVS) og Íslenskri erfðagreiningu ehf. ÍE) um það með hvað hætti standa bæri að meðhöndlun persónuupplýsinga sem til hafa orðið í krabbameinsrannsóknum á vegum þessara aðila, ef til þess kæmi að ÍE myndi festa kaup á hlutfé UVS og félögin eftirleiðis hafa samvinnu um framkvæmd rannsóknanna.

Lesa meira
 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica