Efst á baugi - Úrskurðir o.fl.

Lyfjagagnagrunnur landlæknis

19.11.2008

Lokið er athugun Persónuverndar á aðgangi að persónuupplýsingum í lyfjagagnagrunni landlæknis. Var talið að aðgangi væri hagað í samræmi við lög. Þó mætti gera tilteknar öryggisúrbætur, m.a. að því er varðar aðgerðaskrár (log skrár) svo tryggt sé að ávallt sé vitað hverjir hafa skoðað persónuupplýsingar í lyfjagagnagrunninum og til hvers. Einnig var leiðbeint um ráðstafanir til að nauðsynlegar upplýsingar um kostnað einstaklinga vegna lyfjakaupa verði skráðar í gagnagrunninn – þ.e. upplýsingar sem þarf til að hann nýtist í raun fyrir endurgreiðslur til sjúklinga vegna lyfjakostnaðar.

Ákvörðun Persónuverndar.