Í gær var kveðinn upp dómur í máli sem höfðað var gegn Persónuvernd. Málið varðari heimildir Seðlabanka Íslands til vinnslu persónuupplýsinga í þágu gjaldeyriseftirlits. Af hálfu stefnda Persónuverndar var bent á að hún hafði ekki gefið út neitt leyfi til Seðlabanka Íslands heldur byggðist heimild bankans á ákvæðum settra laga. Auk þess ætti stefnandi ekki aðild þar sem hann hefði ekki sérstakra, verulegra og lögvarinna hagsmuna að gæta. Á það var fallist og málinu því vísað frá dómi. Var stefnanda gert að greiða málskostnað.
Persónuvernd hefur úrskurðað í máli einstaklings varðandi skoðun vinnuveitanda á tölvupósti. Taldi Persónuvernd að vinnuveitandanum hefði verið heimilt að skoða tölvupóstinn í þeim tilgangi að kanna hvort ólögmætir viðskiptahættir hafi átt sér stað. Þó var lagt fyrir hann að setja starfsreglur um meðferð tölvupósts við starfslok eða veita starfsfólki með öðrum hætti fræðslu til samræmis við ákvæði reglna um rafræna vöktun.
Lesa meiraPersónuvernd hefur úrskurðað í máli manns sem kvartaði yfir að tölvupóstur sem honum var sendur í vinnunni hafi verið lesinn af samstarfsmönnum. Nánar tiltekið var um að ræða rafræna verkbeiðni. Í vettvangsskoðun Persónuverndar kom ekkert fram sem benti til þess að umrædd verkbeiðni hefði misfarist vegna ákvarðana fyrirtæksins eða af ástæðum sem rekja mætti til mistaka eða vanrækslu. Persónuvernd taldi fyrirtækið ekki hafa brotið gegn ákvæðum laga um persónuvernd með þeim afleiðingum að verkbeiðnir misfórust í póskerfi fyrirtækisins.
Í janúar 2012 voru samtals veitt 14 leyfi í tengslum við rannsóknir og verkefni. Einnig bárust stofnuninni 50 tilkynningar um vinnslu persónuupplýsinga.
Lesa meiraEvrópski persónuverndardagurinn var haldinn 28. janúar síðastliðinn í sjötta skipti. Dagurinn er haldinn hátíðlegur þennan dag þar sem Evrópuráðssamningur um vernd einstaklinga varðandi vélræna vinnslu persónupplýsinga var gerður þennan dag árið 1981. Ætlunin með Persónuverndardeginum er að vekja athygli almennings á réttinum til persónuverndar og friðhelgi einkalífs. Í tilefni dagsins sótti forstjóri Persónuverndar ráðstefnu hjá dönsku persónuverndarstofnuninni. Þá gaf Persónuvernd einnig út leiðbeiningar um hvernig stjórna skuli friðhelgisstillingum á samfélagsvefsíðunni Facebook.
Persónuvernd hefur veitt umsögn um frumvarp til laga um breytingu á fjarskiptalögum. Í frumvarpinu er m.a. gert ráð fyrir að starfræktur verði starfshópur (CERT-ÍS) sem myndi hafa víðtækar heimildir til að skoða samskipti á Netinu án dómsúrskurðar. Persónuvernd telur að ávallt skuli afla dómsúrskurðar áður en slík skoðun fer fram. Þá telur hún of margt óljóst varðandi hina tæknilegu framkvæmd, og að í þeim efnum þarfnist frumvarpið frekari skoðunar.
Persónuvernd hefur veitt umsögn um heimild Fangelsismálastofnunar til að miðla upplýsingum um fangelsisvist einstaklinga vegna töku manntals hjá Hagstofu. Það er niðurstaða Persónuverndar að Hagstofa hafi heimild til að krefja Fangelsismálastofnun um persónuupplýsingar, sem nauðsynlegar eru vegna manntals, á grundvelli lagaheimildar.
Lesa meiraPersónuvernd hefur úrskurðað í máli manns varðandi heimild fjármálafyritækis til að krefjast undirskriftar á kvittun við gjaldeyriskaup. Af hálfu fyrirtækisins kom fram að ekki væri hægt að leita í kvittunum eftir nafni eða kennitölu. Persónuvernd taldi að fjármálafyrirtækið hefði af því lögmæta hagsmuni að gera kröfu um undirritun á kvittun við gjaldeyriskaup og því væri hún heimil, að teknu tilliti til þeirrar aðferðar sem viðhöfð var.
Persónuvernd barst kvörtun föður yfir markaðskönnun fyrirtækis, en hringt hafði verið í 12 ára dóttur hans að kvöldi til. Við rannsókn málsins kom ekki í ljós að fram hefði farið vinnsla persónuupplýsinga um barnið. Var málið þá fellt niður.
Í desember voru samtals veitt 3 leyfi í tengslum við rannsóknir og verkefni. Einnig bárust stofnuninni 31 tilkynning um vinnslu persónuupplýsinga.
Lesa meiraPersónuvernd hafa borist fyrirspurnir vegna fréttaumfjöllunar um gagnagrunn Fjármálaeftirlitsins um verðbréfaviðskipti. Hefur því verið haldið fram að hann hafi ekki komið að notum þar sem Persónuvernd hafi lagst gegn því að leitað yrði eftir kennitölum fyrirtækja. Af því tilefni vill Persónuvernd koma upplýsingum á framfæri.
Lesa meiraPersónuvernd barst kvörtun manns yfir því að starfsmenn LSH hefðu farið í sjúkraskrá hans í tengslum við rekstur dómsmáls milli mannsins og spítalans. Yfirstjórn LSH hafði lagt fyrir starfsmennina að skoða umræddar upplýsingar. Persónuvernd taldi LSH hafa verið þetta heimilt til að verjast í því máli sem maðurinn hafði höfðað gegn spítalanum.
Lesa meiraPersónuvernd bárust ábendingar vegna blaðagreinar sem bar með sér að sektarlistar lögreglu hefðu verið samkeyrðir við óskalista um hraðahindranir. Umferðarstofa kvað greinina hafa verið villandi. Samkeyrslan hafði aldrei farið fram. Málið var fellt niður.
Lesa meiraPersónuvernd hefur fjallað um lögmæti rafrænnar vöktunar í og við Hvalfjarðargöng á vegum Spalar ehf. Í kjölfar vettvangskönnunar, og eftir úrbætur sem fyrirtækið gerði á fræðslu til ökumanna, taldi stofnunin að vöktunin uppfyllti skilyrði 24. gr. laga nr. 77/2000.
Lesa meiraPersónuvernd hefur ákveðið að kalla eftir skýringum Landspítala - Háskólasjúkrahúss af tilefni ábendinga og kvartana yfir meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga um 158 einstaklinga í tengslum við rannsókn á ofbeldi í nánum samböndum. Mun upplýsingum um þá hafa verið miðað frá LSH og dreift með tölvupósti.
Persónuvernd hefur fjallað um birtingu niðurstaðna hjá endurskoðendaráði. Taldi stofnunin að almenn lagaheimild stæði til birtingar úrskurða og rökstuddra ákvarðana um að vísa málum til opinberrar rannsóknar, en slík heimild stæði ekki til að birta áminningar þess og tillögur.
Lesa meiraPersónuvernd hefur veitt umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindagæslu fatlaðra. Í drögunum var gert ráð fyrir rafrænni vöktun sem þvingunaraðgerð. Að mati stofnunarinnar fela drögin í sér umtalsverða íhlutun í stjórnarskrárvarin réttindi um friðhelgi einkalífs, auk þess sem þau gangi töluvert lengra heldur en samsvarandi ákvæði í norskum og dönskum lögum.
Lesa meiraPersónuvernd hefur svarað þremur erindum sem öll varða skýringu á valdmörkum Persónuverndar og lagaskilum persónuverndarlöggjafar.
- Í fyrsta tilvikinu var um að ræða miðlun persónuupplýsinga frá þýsku fyrirtæki til Seðlabanka Íslands. Persónuvernd vakti athygli þýsku stofnunarinnar á því.
- Í öðru tilviki var um að ræða birtingu upplýsinga tengdar ferðum skipa á grískri vefsíðu. Persónuvernd vakti athygli grísku stofnunarinnar á því.
- Þriðja málið varðaði söfnun persónuupplýsinga í gegnum tölvuleik á Netinu. Persónuvernd úrskýrði helstu sjónarmið, en tók ekki efnislega afstöðu til lögmætis vinnslunnar.
Lesa meiraÚrskurðað hefur verið í ágreiningsmáli um lögmæti ferilvöktunarkerfis hjá Strætó bs. Í úrskurði er litið til þess að starfsmenn aka vögnum fyrirtækisins eingöngu við vinnu en ekki við athafnir sem tilheyra heimilum þeirra eða einkalífi að öðru leyfi. Þá er litið til þeirra hagsmuna sem Strætó bs. hafði vísað til. Vöktunin var talin heimil, en annmarkar taldir hafa verið á fræðslu til starfsmanna.
Lesa meiraPersónuvernd barst kvörtun fanga vegna miðlunar persónuupplýsinga um hann frá Fangelsismálastofnun til Tryggingarstofnunar. Miðlunin fór fram í tengslum við ákvörðun um greiðslu vasapeninga. Að mati Persónuverndar var hún liður í því að Tryggingastofnun gæti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og þar með heimil.
Lesa meiraPersónuvernd fékk kvörtun frá manni sem hafði tekið þátt í tölvuleik á netinu. Hann kvartaði yfir því að CCP hefði flutt persónuupplýsingar um sig til landa sem ekki veittu þeim fullnægjandi vernd. Persónuvernd taldi að hvorki lægi fyrir samþykki kvartanda, né að umræddur flutningur hefði verið nauðsynlegur - í skilningi laganna - til að efna samning við hann. Því var flutningur upplýsinganna ekki talinn heimill.
Persónuvernd hefur fjallað um birtingu Kópavogsbæjar á teikningum af húsum og tengdum upplýsingum á vefsíðu bæjarins.
Persónuvernd hefur fjallað um verklagsreglur Símans um varðveislutíma fjarskiptaupplýsinga og talið þær ekki vera nægilega skýrar.
Lesa meiraPersónuvernd fékk kvörtun yfir birtingu kennitalna í fundargerðum byggingafulltrúa Reykjavíkurborgar. Fallið var frá slíkri birtingu og var málið þá fellt niður.
Lesa meiraPersónuvernd hefur fjallað um skráningu banka á persónuupplýsingum um einstaklinga í greiðsluaðlögun.Skráning úr Lögbirtingablaðinu, til innanhússnota, var talin vera heimil.
Lesa meiraPersónuvernd hefur talið vinnslu Creditinfo á upplýsingum um áhættumat á einstaklingum, geta samrýmst lögum um meðferð persónuupplýsinga.
Lesa meiraPersónuvernd hefur veitt Alcan leyfi til flutnings persónuupplýsinga úr landi, þ.e. til aðila (InTouch) í Bandaríkjunum og til Ástralíu, í tengslum við kerfi fyrir uppljóstrarnir frá starfsmönnum.
Lesa meiraA kvartaði yfir að verslun hafi gert það að skilyrði að kennitala dóttur hans, B, yrði skráð þegar hún skilaði vöru fyrir A. Varan var ógölluð. Persónuvernd taldi að versluninni hafi verið heimilt að skrá kennitölu B, en veitt var meiri þjónusta en lögskylt er.
A kvartaði yfir því að vinnuveitandi hafi skoðað tölvupósthólf hennar. Lögmaður hennar gerði þá kröfu að Persónuvernd tæki málið til efnislegrar meðferðar þótt að það væri til meðferðar hjá Póst- og fjarskiptastofnun (PFS). Var niðurstaða Persónuverndar sú að málið yrði ekki tekið til meðferðar meðan það væri hjá PFS, m.a. í ljósi skörunar á verksviðum þessara stofnana. Að lokinni umfjöllun PFS myndi Persónuvernd eftir atvikum taka það til úrskurðar.
Maður kvartaði yfir varðveislu fjarskiptafyrirtækis á persónuupplýsingum um fyrnda kröfu á hendur sér. Fyrir lá bréf frá Póst- og fjarskiptastofnun. Í fjarskiptalögum er ekki sérregla um bann við slíkri varðveislu. Persónuvernd leit m.a. til hagsmuna fyrirtækis af því að hafa yfirsýn yfir eigin fjármál og viðskiptasögu - og taldi hagsmuni hins skráða, af því að upplýsingunum yrði eytt, ekki vega þyngra. Ekki var tekin afstaða til þess hvernig fjarskiptafyrirtækið mætti nota upplýsingarnar.
Lesa meiraPersónuvernd hefur svarað fyrirspurn Reykjavíkurborgar um hvort henni sé heimilt að birta lista yfir hundaeigendur. Í svarinu kemur fram að ákvæði upplýsingalaga, um rétt almennings til aðgangs að gögnum hjá stjórnvöldum sem varða tiltekið mál, eigi ekki við um skrá yfir þá sem fengið hafa leyfi til hundahalds. Er Reykjavíkurborg leiðbeint um að meta hvort skilyrði 8. gr. pvl. séu uppfyllt.
Lesa meiraPersónuvernd svaraði fyrirspurn slitastjórnar varðandi efni og gildi tveggja ákvarðana tölvunefndar, þ.e. hvort þær hafi áhrif á heimildir Þjóðskrár Íslands og Umferðarstofu til að miðla tilteknum persónuupplýsingum til slitastjórnarinnar. Í svarinu segir að umræddar stofnanir hafi sömu heimildir til að miðla upplýsingum til slitastjórnar og þær hafa til að miðla upplýsingum til skiptastjóra samkvæmt gjaldþrotaskiptalögum.
Kona, sem hafði þegið atvinnuleysisbætur, kvartaði yfir söfnun viðkvæmra persónuupplýsinga á námskeiði Vinnumálastofnunar. Spurningalisti hafi verið lagður fyrir hana en hún hafi í raun ekki átt neitt val um að svara honum ekki. Persónuvernd taldi vinnsluna ekki hafa verið heimila.
Persónuvernd barst kvörtun A yfir því að maður dreifði í hús miðum sem á voru rituð ókvæðisorð í garð A, mynd af honum og hlekkur inn á dóm Hæstaréttar varðandi brot A. Fyrir lá að málið var þegar á borði lögreglu og því var ekki fjallað um það frekar.
Lesa meiraPersónuvernd hefur gefið umsögn um drög Stjórnlagaráðs að breyttum stjórnarskrárákvæðum um notkun upplýsinga. Að mati Persónuverndar þarf að ígrunda vandlega hvort að ákvæði 7. gr. í drögum ráðsins fái örugglega samrýmst tilskipun sem Ísland er bundið af eða sé of fortakslaus því frjáls söfnun persónuupplýsinga sé hvergi heimil í hinum vestræna heimi.
Lesa meiraPersónuvernd hefur svarað fyrirspurn Barnavistunar (félags dagforeldra) um það hvort Reykjavíkurborg megi vinna fjárhagsupplýsingar um dagforeldra. Persónuvernd telur Reykjavíkurborg vera heimilt að óska eftir kvittunum og reikningum frá dagforeldrum.
Lesa meiraÁrsskýrsla Persónuverndar fyrir árið 2010 er komin út. Þar eru birtar almennar upplýsingar um stofnunina og starfsemi hennar, helstu álit og úrskurðir, yfirlit yfir útgefin leyfi og úttektarverkefni, samantekt um erlent samstarf, lög og reglur og yfirlit yfir rekstrarreikning.
Lesa meiraInnanríkisráðherra hefur skipað Björgu Thorarensen, lagaprófessor við lagadeild Háskóla Íslands, nýjan formann stjórnar Persónuverndar. Verður hún þá annar formaður stjórnarinnar. Tekur hún við af Páli Hreinssyni, hæstaréttardómara, en hann hefur tekið við starfi dómara hjá EFTA-dómstólnum í Lúxemborg.
Lesa meiraMaður kvartaði yfir umslagi sem Orkubú Vestfjarða notaði fyrir áminningarbréf. Á umslaginu var áritun sem bar með sér að viðtakandi þess væri í vanskilum. Var það niðurstaða Persónuverndar að þetta fæli í sér miðlun upplýsinga sem ekki væri heimil.
Lesa meiraKona kvartaði til Persónuverndar yfir Tryggingastofnun ríkisins. Hún hafði sótt um að fá örorkuskírteini frá stofnuninni, en réttur til að fá slíkt skírteini ræðst af örorku og er óháður tekjum. Persónuvernd taldi að ekki hafi verið til staðar þörf hjá TR, og þar með heimild, til að gera kröfu um að fá fjárhagsupplýsingar um konuna.
Persónuvernd hefur úrskurðað um kvörtun konu yfir miðlun upplýsinga frá Barnavernd Reykjavíkur. Miðlunin var í þágu nemendaverkefnis við HÍ. Um var að ræða upplýsingar um félagsleg vandamál. Persónuvernd taldi miðlunina hafa verið óheimila, m.a. að virtum ákvæðum barnaverndarlaga.
Persónuvernd hefur fjallað um kvörtun manns yfir því að hringt var í hann vegna markaðssetningarstarfsemi. Í fjarskiptalögum er bann við því að við beina markaðssetningu sé hringt í menn án þeirra samþykkis. Það er ekki Persónuvernd sem hefur eftirlit með þeim lögum heldur Póst- og fjarskiptastofnun. Afskiptum Persónuverndar af málinu er lokið.
Lesa meiraPersónuvernd hefur fjallað um hnappa, sem sum stjórnvöld setja á vefsíður sínar, fyrir nafnlausar ábendingar um meint svik o.þ.h. Niðurstaða Persónuverndar er sú að það samrýmist ekki grundvallarreglum um vandaða vinnsluhætti að stjórnvöld hvetji menn með þeim hætti til að koma sín persónuupplýsingum í skjóli nafnleyndar.
Persónuvernd hefur gefið út álit varðandi miðlun landlæknis til Hagstofu Íslands á persónuupplýsingum úr fæðingarskrá. Var miðlunin talin heimil en lagt fyrir þessar stofnanir að senda Persónuvernd lýsingu á öryggisráðstöfunum sínum til að hindra aðgang óviðkomandi að upplýsingunum - og til að verja þær að öðru leyti.
Persónuvernd hefur úrskurðað um afhendingu nafnalista yfir félagsmenn VR til frambjóðenda í kjöri til formanns og stjórnar félagsins. Persónuvernd taldi að afhendingin væri heimil þar sem hún var liður í lögmætri starfsemi samtakanna og tók aðeins til félagsmanna.
Lesa meiraPersónuvernd barst umsókn um leyfi til aðgangs að sjúkraskrám vegna rannsóknarinnar „Stunguóhöpp og líkamsvessamengun hjá starfsfólki Landspítalans á árunum 1986-2011“. Svar Persónuverndar hefur að geyma leiðsögn um hvenær ekki þarf að sækja um slíkt leyfi - þótt um sjúkraupplýsingar sé að ræða - enda séu þær ekki sóttar í sjúkraskrár.
Lesa meiraPersónuvernd hefur gefið út álit varðandi heimild Þjóðskrár Íslands til að miðla kennitölum úr þjóðskrá símleiðis. Hvorki í lögum um þjóðskrá og almannaskráningu, né í reglum settum á grundvelli þeirra, er gert ráð fyrir slíkri miðlun.
Lesa meiraPersónuvernd hefur tekið ákvörðun í máli Icelandair varðandi birtingu farþegalista á netinu. Meðal annars var lagt fyrir Icelandair að gera breytingar á innritunarkerfi sínu þannig að upplýsingar um vegabréfsnúmer farþega birtist ekki öðrum farþegum í sama flugi, hvort sem þeir bóka ferð á sama bókunarnúmeri eða ekki.
Persónuvernd hefur veitt umsögn um reglugerð um upplýsingaskyldu framhaldsskóla um skólahald, aðra kerfisbundna skráningu og meðferð persónuupplýsinga um nemendur.
Lesa meiraÍ júlí voru gefin út alls 15 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraPersónuvernd hefur úrskurðað um lögmæti þess þegar grunnskóli færði í upplýsingakerfi sitt viðkvæmar persónuupplýsingar um nemanda við skólann. Lagði Persónuvernd fyrir grunnskólann að eyða færslunni.
Lesa meiraPersónuvernd hefur úrskurðað í máli manns varðandi skráningu kennitölu í banka við sölu á gjaldeyri. Var það niðurstaða Persónuverndar að bankanum væri óheimilt að skrá kennitölu kvartanda.
Persónuvernd hefur vísað frá máli konu varðandi miðlun viðkvæmra persónuupplýsinga frá læknastöð til móður hennar. Málið var látið niður falla þar sem ekki væri komin fram sönnun um miðlunina.
Lesa meiraPersónuvernd hefur afgreitt umsókn Creditinfo Lánstrausts um nýtt starfsleyfi til vinnslu upplýsinga um lögaðila. Eru breytingarnar í samræmi við nýútgefnar breytingar á einstaklingaleyfi.
Persónuvernd hefur synjað umsókn tveggja nema, Rannsóknarstöðvar í heilbrigðisfræði og Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum um leyfi til aðgangs að öllum sjúkraskrám Vogs.
Lesa meiraPersónuvernd hefur úrskurðað í máli manns sem kvartaði yfir miðlun lögreglu úr málaskrá til geðlæknis í tengslum við umsókn mannsins um endurnýjun skotvopnaleyfis. Var það niðurstaða Persónuverndar að lögreglu hafi verið óheimilt að miðla upplýsingunum til læknisins.
Kveðinn hefur verið upp úrskurður varðandi áframsendingu á tölvupósti starfsmanns eftir að hann lét af störfum hjá fyrirtæki. Var áframsendingin talin óheimil.
Lesa meiraPersónuvernd hefur úrskurðað í máli konu sem kvartaði yfir að skýrsla um greiningu á syni hennar hefði verið send með almennum pósti frá BUGL. Hún týndist í meðförum póstsins. Persónuvernd taldi að sending svo viðkvæmra upplýsinga með almennum pósti hafi verið óheimil.
Persónuvernd hefur fellt niður mál konu sem kvartaði yfir afhendingu Felix-skráar á Taekwondo-móti. Ástæðan var sú að það var ekki á valdi Persónuverndar að rannsaka málið frekar, s.s. með því að afla upplýsinga um eiganda ip-tölu.
Lesa meiraPersónuvernd hefur gefið út álit á viðmiðunarreglum Siglingastofnunar um bakgrunnsathugun á einstaklingum, þ.e. athugun sem fer fram samkvæmt lögum um siglingavernd. Persónuverd taldi að þar væri ekki nægilega skýrt afmörkuð heimild til upplýsingaöflunar úr skrám lögreglu. Lagt var fyrir Siglingastofnun að endurskoða reglurnar að þessu leyti.
Svarað hefur verið fyrirspurn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðsins um heimild þess til að miðla til þjónustuaðila lista yfir þá sem ekki hafa vatnsúðakerfi. Persónuvernd taldi að þar sem í raun væri um að ræða miðlun í þágu markaðssetningar yrði að gæta þess að sleppa nöfnum þeirra einstaklinga sem eru á bannskrá Þjóðskrár.
Lesa meiraPersónuvernd gerir ekki athugasemd við leit að upplýsingum hjá Þjóðskrá um látna einstaklinga, nánar tiltekið um fæðingardag, dánardag og fæðingarstað, í þágu heimasíðu í minningu látinna manna.
Lesa meiraM kvartaði til Persónuverndar yfir því að upplýsingar um gjaldþrot hans væru geymdar hjá Tekjubókhaldi ríkisins, en það ylli honum vandkvæðum á vinnustað. Fjársýsla ríkisins féllst á að eyða úr sínum bókum vanskilamerkingum vegna gjaldþrotsins. Var málið þá fellt niður.
Lesa meiraÍ apríl og maí voru gefin út alls 14 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraPersónuvernd hefur vísað frá kvörtun konu yfir að bréf sem henni var sent hafi verið opnað, ljósritað og skrifuð Fésbókarfærsla um efni þess.
Lesa meiraAð gefnu tilefni er vakin athygli á niðurstöðu Persónuverndar, dags. 14. nóvember 2008, um lyfjagagnagrunn landlæknis.
Lesa meiraPersónuvernd hefur afgreitt umsókn Creditinfo Lánstrausts um nýtt starfsleyfi til vinnslu upplýsinga um einstaklinga. Að hluta til var fallist á umbeðnar breytingar en að hluta til var þeim hafnað.
Lesa meiraPersónuvernd hefur tekið ákvörðun í máli manns sem taldi sig vera á lista undirskriftarsöfnunar á kjosum.is. Taldi stofnunin að dráttur á svari til málshefjanda um hvort hann væri á listanum stríddi gegn 14. gr., sbr. 18. gr. laga nr. 77/2000.
Persónuvernd hefur úrskurðað í máli manns sem kvartaði yfir því að þurfa að gefa upp kennitölu þegar hann beindi fyrirspurn til LÍN. Persónuvernd taldi LIN hafa verið heimilt að skrá kennitölu mannsins.
Þann 6. maí sl. voru birtar í B-deild Stjórnartíðinda reglur um breytingu á reglum nr. 837/2006 um rafræna vöktun, með síðari breytingum.
Lesa meiraMál vegna kvörtunar manns yfir því að þurfa að afhenda vinnuveitanda sínum upplýsingar um hlutafjáreign barna sinna og foreldra var fellt niður í kjölfar svars FME um að tilmæli þess nr. 1/2010 séu ekki skuldbindandi.
Lesa meiraKPMG hefur spurt um varðveislu persónuupplýsinga sem fyrirtækið safnar í ljósi tilmæla FME nr. 3/2010 um mat á hæfi lykilstarfsmanna. Það er svar Persónuverndar að upplýsingar úr skrám Creditinfo megi færa til bókar en hvorki megi varðveita þær, né afrit sakavottorða, lengur en nauðsyn krefur í þágu tilgangsins með öflun þeirra.
Lesa meiraPersónuvernd telur heimilt að yfirskattanefnd afhendi skattrannsóknarstjóra úrskurði sína svo hann geti nýtt þá vegna stjórnsýslu embættisins. Hún gerir ekki athugasemdir við sendingu á rafrænu formi en gera beri viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi upplýsinganna.
Lesa meiraSvarað hefur verið fyrirspurn Ferðamálastofu um birtingu á lista yfir þá aðila sem veita leyfisskylda þjónustu án þess að hafa tilskilin leyfi. Persónuvernd telur slíka birtingu ekki æskilega í ljósi almennra sjónarmiða um vandaða stjórnsýslu. Hún telur að í stað þess að stjórnvald auglýsi meinta lögbrjóta á vefsvæði sínu sé eðlilegra að beina málum þeirra til lögreglu.
Svarað hefur verið fyrirspurn Neytendasamtakanna um heimild verslunar til að skrá kennitölur þeirra sem skila gölluðum vörum. Persónuvernd telur að sé aðeins veitt sú skilaþjónusta sem lögskylt sé að veita eigi ekki að gera kröfu um kennitölu - nema sýnt sé fram á sérstakar aðstæður sem geri það nauðsynlegt.
Persónuvernd hefur tekið ákvörðun í máli starfsmanns sem kvartaði yfir rafrænni vöktun með eftirlitsmyndavél í bakaríi. Beindi stofnunin þeim fyrirmælum til forsvarsmanns bakarísins að veita starfsmönnum sínum fræðslu um þá rafrænu vöktun sem hann ber ábyrgð á og fram fer í bakaríi sem hann rekur.
Lesa meiraVísað hefur verið frá kvörtun flugmanns hjá Icelandair yfir því að þurfa að sýna vaktaskipulag sitt við kaup á gjaldeyri í banka. Krafa bankans byggðist á fyrirmælum Seðlabanka Íslands. Þar sem ekki var tekið afrit af vaktaskipulaginu í bankanum, né unnið með það á annan hátt, þótti ekki vera um vinnslu persónuupplýsinga að ræða í skilningi laganna.
Lesa meiraPersónuvernd hefur kært Miðlun til lögreglu vegna varðveislu á svörum þátttakenda í könnun á einelti meðal ríkisstarfsmanna. Upplýsingarnar voru varðveittar þótt þátttakendum hefði verið lofað öðru.
Í mars voru gefin út 26 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Persónuvernd hefur fjallað um miðlun á leiðishafaskrám frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma. Skránum er miðlað til nota við markaðssetningarstarfsemi. Niðurstaðan lýtur að því að áður en skrám er miðlað skuli þess gætt að gefa hinum skráðu (ættingum og vinum hinna látnu) kost á að andmæla því að fá markpóst.
Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn um grisjun og eyðingu röntgenfilma. Það var niðurstaða hennar að vinnslan, eins og henni var lýst, félli ekki undir eftirlit Persónuverndar. Engu að síður væri um sjúkraskrárupplýsingar að ræða og gera bæri ríkar kröfur til verndar þeirra.
Lesa meiraKveðinn hefur verið upp úrskurður varðandi áframsendingu á tölvupósti fyrrverandi starfsmanns hjá bæjarskrifstofu Seltjarnarnes í annað pósthólf. Þetta var gert eftir að starfsmaðurinn lét af störfum hjá bænum og án hans vitundar.
Lesa meiraPersónuvernd hefur úrskurðað í máli manns fyrir hönd tveggja sona sinna sem eru undir 10 ára aldri, er varðaði birtingu á myndbandi úr öryggismyndavél Bæjarbakarís Hafnarfjarðar á heimasíðunni www.youtube.com.
Lesa meiraTekin hefur verið sú ákvörðun að öflun Securitas á upplýsingum úr málaskrá lögreglu um alla starfsmenn í öryggisþjónustu samrýmist ekki kröfum 7. gr. laga nr. 77/2000 um sanngirni, meðalhóf og áreiðanleika við vinnslu persónuupplýsinga.
Fleiri mál en nokkurn tíma fyrr berast nú Persónuvernd. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2011 bárust alls 314 ný mál og sé litið á málafjölda fyrir sömu mánuði í fyrra, 2010, er aukning 29%. Sé hinsvegar litið á málafjölda fyrir sama tímabil árið 2002 þá er aukningin 240%.
Lesa meiraPersónuvernd hefur svarað athugasemdum sem VÍS gerði við ákvörðun hennar um svonefndan svikahnapp fyrir "nafnlausar" ábendingar.
Lesa meiraÍ janúar voru gefin út 13 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraÍtarlegar upplýsingar um viðskiptavini Hraðpeninga ehf. birtust á Netinu. Varðveisla þeirra hafði farið í bága við fyrirmæli Hraðpeninga. Hún var talin hafa verið ólögmæt.
Lesa meiraPersónuvernd hefur synjað beiðni Creditinfo Lánstrausts hf. um leyfi til vinnslu persónuupplýsinga um einstaklinga í greiðsluaðlögun.
Lesa meiraÍ desember voru gefin út 16 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraUmhverfisstofnun var óheimilt að afhenda persónuupplýsingar um veiðileyfishafa í þágu markaðssetningar, enda hafði leyfishafanum ekki verið veittur kostur á að andmæla því.
Lesa meiraPersónuvernd hefur synjað umsókn nokkurra sérfræðinga um leyfi til að nýta gagnagrunn með viðkvæmum persónuupplýsingum um geðsjúklinga sem fengu sína fyrstu geðgreiningu í sérfræðiþjónustu á Íslandi á árunum 1966-1967.
Lesa meiraÚrskurðað hefur verið í máli manns sem kvartaði yfir því að Frjálsi fjárfestingarbankinn afhenti upplýsingar um hann til Finna ehf. - sem hefði síðan hringt í hann og boðið honum ráðgjöf og kynningu á greiðsluvandaúrræðum.
Lesa meiraKveðinn hefur verið upp úrskurður um að Sjálfstæðisflokkurinn hafi brotið gegn reglum um markpóst með því að senda hann til einstaklinga sem voru með bannmerki í Þjóðskrá.
Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn um skyldu skattrannsóknarstjóra til að gefa mönnum kost á að vera viðstaddir þegar tölvupóstur þeirra er skoðaður.
Lesa meiraÍ nóvember voru gefin út 17 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraPersónuvernd hefur svarað spurningu vistheimilanefndar um hvort henni beri að verða við beiðni tengiliðs vistheimila um að fá aðgang að gögnum nefndarinnar.
Lesa meiraKveðinn hefur verið upp úrskurður í ágreiningsmáli um söfnun viðkvæmra persónupplýsinga um grunnskólabarn. Til úrlausnar var hvort foreldri hefði, með því að senda ekki inn sérstök andmæli, samþykkt söfnunina. Persónuvernd féllst ekki á það.
Lesa meiraPersónuvernd hefur afgreitt umsókn Creditinfo-Lánstrausts um nýtt starfsleyfi varðandi vinnslu upplýsinga vegna lögaðila. Fallist var á umbeðna breytingu.
Lesa meiraÍ október voru gefin út 8 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraPersónuvernd hefur farið yfir þær öryggisráðstafanir sem ætlunin er að gera við rekstur sameiginlegs sjúkraskrárkerfis heilbrigðisstofnana á Norðurlandi.
Lesa meiraÁ 77. fundi hins sk. 29. gr. starfshóps, sem Persónuvernd tók þátt í, var m.a. fjallað um öryggismál tengd flutningi farþegaupplýsinga til Bandríkjanna.
Lesa meiraKveðinn hefur verið upp úrskurður vegna kvörtunar K yfir afhendingu Mjólku á tölvu til Sláturfélags Suðurlands. Um var að ræða tölvu sem hann hafði haft afnot af við vinnu hjá Mjólku, en á tölvunni voru persónuupplýsingar um hann. Afhendingin var sögð nauðsynleg til að rannsaka meiðyrðamál, tengd tveimur heimasíðum.
Persónuvernd hefur úrskurðað um lögmæti þess þegar yfirmaður framsendi læknisvottorð manns til samstarfsmanna hans.
Kveðnir hafa verið upp tveir úrskurðir þar sem deilt var um að hvaða marki viðskiptavinum banka ber að sanna á sér deili.
Lesa meiraÍ júlí og ágústmánuði voru gefin út 16 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Persónuvernd hefur úrskurðað í máli varðandi vöktun sem fram fór með notkun ökurita í bifreiðum Würth á Íslandi. Vöktunin var talin heimil, enda færi hún aðeins fram á vinnutíma.
Lesa meiraPersónuvernd hefur afgreitt umsókn Creditinfo-Lánstrausts um nýtt starfsleyfi varðandi vinnslu upplýsinga vegna einstaklinga. Að hluta til var fallist á umbeðnar breytingar en að hluta til var þeim hafnað.
Lesa meiraEvrópskar persónuverndarstofnanir telja að ekki hafi verið farið að tilskipun um varðveislu fjarskiptaupplýsinga
Lesa meiraÍ júnímánuði voru gefin út 10 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraÍ maímánuði voru gefin út 11 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraÞann 17. maí sl., veitti Persónuvernd efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um rannsókn á fjárhagsstöðu skuldugra heimila.
Lesa meiraÍ aprílmánuði voru gefin út 12 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraÍ marsmánuði voru gefin út 20 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Persónuvernd hefur gert úttekt á öryggi aðgangsstýringa í Lögreglukerfi Ríkislögreglustjórans (LÖKE).
Maður kvartaði yfir því að nafn hans var á skrá sem seld var frá Já ehf. Hann var bannmerktur í símaskrá. Miðlun upplýsinga var ekki talin samrýmast lögum nr. 77/2000.
Lesa meiraPersónuvernd fjallaði um birtingu viðkvæmra persónuupplýsinga í fyrirlestri rannsóknarlögreglumanns á Læknadögum. Að fengnum svörum lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu var ákveðið að loka málinu.
Lesa meiraPersónuvernd hefur svarað almennri fyrirspurn um það hvort miðla megi upplýsingum úr sjúkraskrá barns aðeins með samþykki annars foreldris.
Í desembermánuði voru gefin út 18 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Persónuvernd hefur lokið máli í tengslum við athugun á (a) dulkóðun persónuauðkenna í gagnagrunnum Hjartaverndar og (b) rekjanleika uppflettinga og skráningar.
Lánstrausti (CreditInfo) hefur verið veitt nýtt leyfi til að vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust lögaðila.
Í nóvembermánuði voru gefin út 8 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Hafnað hefur verið beiðni um tafarlausa stöðvun á skoðun tölvupósta hjá Fjármálaeftirlitinu.
Lesa meira
Svarað hefur verið almennri fyrirspurn um hvort leyfi Persónuverndar þurfi til birtingar upplýsinga um eitt sjúkratilfelli í Læknablaðinu.
Lesa meiraÍ októbermánuði voru gefin út 23 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Persónuvernd hefur úrskurðað um að fella niður áður útgefið leyfi stofnunarinnar.
Lesa meiraPersónuvernd hefur svarað erindi LT um heimild fyrirtækisins til sölu áhættumatsupplýsinga um einstaklinga, þ.e. um líkur á því að þeir lendi í alvarlegum vanskilum. Erindi LT var hafnað.
Lesa meiraPersónuvernd telur að CreditInfo (Lánstraust) hafi ekki, skv. gildandi starfsleyfi, heimild til sölu upplýsinga um þá einstaklinga sem endurskipuleggja fjárhag sinn vegna greiðsluerfiðleika.
Í mánuðunum júlí, ágúst og september voru gefin út 19 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Í framhaldi af nokkrum erindum sem Persónuvernd hafa borist, og lúta að birtingu viðkvæmra persónuupplýsinga á heimasíðum, hefur hún sent dómsmálaherra bréf og kynnt hugmynd að tilteknu réttarúrræði.
Persónuvernd hefur svarað erindi Jóns Jósefs Bjarnasonar um leyfisskyldu vegna vinnslu upplýsinga um vensl einstaklinga og fyrirtækja.
Synjað var ósk um að endurupptaka mál sem tengdist kvörtun yfir vinnslu persónuupplýsinga við gerð sálfræðiskýrslu
Stjórnendur Fésbókarforritsins (Facebook) vilja einfalda stjórn notenda á persónuupplýsingum sínum við notkun Fésbókarinnar.
Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn um heimildir vinnuveitanda til að skoða tölvunotkun starfsmanna.
Lesa meiraBeiðni um endurupptöku máls hefur verið hafnað þar sem það er enn til meðferðar dómara.
Hinn 30. júní sl., veitti Persónuvernd forsætisráðuneytinu umsögn um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.
Í mánuðunum apríl, maí og júní voru gefin út 27 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni. Lesa meira
Persónuvernd telur skorta lagastoð til að heimila Ríkislögreglustjóra að miðla til Umferðarstofu upplýsingum um niðurstöður blóðrannsókna á ökumönnum.
Lesa meiraMál vegna kvörtunar yfir óheimilli miðlun á vinnustaðaskýrslu frá vinnuveitanda til Kennarasambands Íslands var fellt niður vegna óljósra málavaxta o.fl.
Lesa meiraPersónuvernd hefur úrskurðað að tilteknir sálfræðingar hafi ekki veitt fullnægjandi fræðslu við gerð vinnustaðaskýrslu.
Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn Reykjavíkurborgar varðandi öflun sakaskrárupplýsinga og fl. um umsækjendur um störf.
Lesa meiraPersónuvernd hafa borist fyrirspurnir um myndbirtingar á netinu, þ.e. myndir af dæmdum barnaníðingum, en myndbirting kann að raska friðhelgi barnsins.
Í mánuðunum janúar, febrúar og mars voru gefin út 60 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Persónuvernd hefur svarað fyrirspurn um það hvaða reglur gildi um birtingu upplýsinga um hlutabréfaeign einstaklinga og því hvort safna megi slíkum upplýsingum og birta á opinberum vettvangi. Einnig svaraði Persónuvernd því hvort munur væri á birtingu upplýsinga um eign einstaklinga í almennum hlutafélögum sem eru í Kauphöll Íslands og þeirra eigna sem eru í öðrum einkahlutafélögum.
Persónuvernd hefur úrskurðað í máli sem varðar öryggisbrest hjá heilsugæslustöð, en þar misfórst öryggisafritataka með þeim afleiðingum að sjúkraskrár glötuðust.
Lesa meiraÍ nóvember og desembermánuði voru gefin út 29 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Persónuvernd hefur svarað ósk um álit varðandi öflun Sjúkrasjóðs VR á heilsufarsupplýsingum við afgreiðslu umsókna um greiðslur úr sjóðnum.
Flugyfirvöld íhuga að taka í notkun líkamaskanna („body scan“) til eftirlits með flugfarþegum. Með honum er hægt að skima og sjá líkama farþeganna.
Lesa meiraPersónuvernd hefur synjað Lánstrausti hf. um leyfi til að safna og miðla persónuupplýsingum um greiðsluhegðun einstaklinga.
Lesa meiraPersónuvernd hefur veitt umsögn sína um frumvarp um bankarannsókn.
Lokið er athugun Persónuverndar á aðgangi að persónuupplýsingum í lyfjagagnagrunni landlæknis.
Lesa meiraÁ tímabilinu 1. júlí til 1. nóvember voru gefin út 40 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Persónuvernd hefur svarað embætti Lögreglu- og tollstjórans á Suðurnesjum um aðgang að svonefndu Star Check innritunarkerfi IGS (Icelandair Ground Services).
Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm, dags. 3. október 2008, sem staðfestir að enda þótt mörg stjórnvöld hafi víðtækar lagaheimildir til að afla persónuupplýsinga verða þau ávallt að virða meginreglur 7. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Lesa meiraHinn 17. júlí 2008 felldi Mannréttindadómstóll Evrópu dóm. Hann staðfestir að í ljósi eðlis upplýsinga í sjúkraskrám leggur grundvallarregla 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs, sbr. og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, á ríkisvaldið ríkar skyldur til að veita þeim sérstaka vernd.
Á fundi stjórnar Persónuverndar þann 18. ágúst sl. voru teknar tvær ákvarðanir um notkun persónuupplýsinga vegna verkefnis um greiðsluþátttöku almennings í heilbrigðiskerfinu.
Lesa meiraPersónuvernd hefur sent heilbrigðisnefnd Alþingis umbeðna umsögn um frumvarp til nýrra laga um sjúkraskrár.
Persónuvernd hefur sent heilbrigðisráðherra og formanni heilbrigðisnefndar Alþingis bréf með ábendingu um að ekki hafi verið byggt á réttum forsendum þegar lögum um varðveislutíma upplýsinga um lyfjaneyslu var breytt í vor.
Í júnímánuði voru gefin út 6 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Hinn 4. apríl sl., samþykkti ráðgjafarhópur skv. 29. gr. Evróputilskipunar um persónuvernd nýtt álit varðandi leitarvélar og einkalífsvernd.
Í maímánuði voru gefin út 10 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Til athugunar er hjá dómsmálaráðuneytinu að gera breytingar á lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga vegna ákvörðunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2008/49/EB, en hún varðar IMI-upplýsingakerfið.
Í aprílmánuði voru gefin út 18 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Vorfundur evrópskra persónuverndarstofnana var haldinn í Róm, Ítalíu dagana 17. og 18. apríl sl. Hann var sóttur af Sigrúnu Jóhannesdóttur forstjóra.
Hinn 18. febrúar sl. samþykkti hinn sk. 29. gr. starfshópurinn vinnuskjal um vernd persónuupplýsinga um börn. Hópurinn sinnir ráðgjafarhlutverki um persónuverndarmálefni í Evrópusambandinu og á m.a. að stuðla að samræmi í framkvæmd persónuverndarlöggjafar í Evrópu.
Persónuvernd hefur kveðið upp úrskurð í máli af tilefni kvörtunar manns yfir skráningu á heilsufarsupplýsingum um ólögráða dóttur hans, en hún er starfsmaður á Grund.
Í marsmánuði voru gefin út 21 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Persónuvernd hefur lagst gegn því að tekin verði ákvörðun um að geyma í 30 ár upplýsingar um lyfjanotkun hvers manns, þ.e. meðan ekki hefur farið fram athugun á því hve lengi þörf sé á því að varðveita upplýsingarnar.
Í febrúarmánuði voru gefin út 25 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Persónuvernd hefur gefið út álit varðandi lögmæti þess að Háskólinn á Bifröst og Listaháskóli Íslands afhendi menntamálaráðuneytinu upplýsingar um einstaklinga sem þar sækja um skólavist.
Með bréfi, dags. 1. febrúar sl., óskaði félags- og tryggingamálanefndar Alþingis eftir umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um atvinnuréttindi útlendinga o.fl., 338. mál, tegundir atvinnuleyfa, EES-reglur o.fl.
Lesa meiraMeð bréfi, dags. 29. janúar sl., óskaði allsherjarnefnd Alþingis eftir umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um útlendinga, 337. mál, flokkar dvalarleyfa, EES-reglur o.fl.
Lesa meiraPersónuvernd barst bréf frá heilbrigðisráðuneytinu, dags. 21. janúar sl., þar sem óskað var eftir umsögn stofnunarinnar um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum nr. 110/2000 um lífsýnasöfn.
Lesa meiraPersónuvernd hefur, með bréfi dags. 12. febrúar 2008, svarað erindi Hjartaverndar varðandi heimild til að fara í sjúkraskrár einstaklinga sem tóku þátt í „Öldrunarrannsókn“, safna úr þeim viðkvæmum persónuupplýsingum og varðveita í persónugreinanlegum gagnagrunni samtakanna.
Lesa meiraÞann 28. janúar sendi Persónuvernd allsherjarnefnd Alþingis umsögn sína um frumvarp til laga um meðferð sakamála. Þar gerir hún athugasemdir við ýmis atriði í frumvarpinu.
Lesa meira
Í desembermánuði voru gefin út 11 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Í nóvembermánuði voru gefin út 9 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Persónuvernd hefur lokið skoðun sinni á lífsýnasöfnum Krabbameinsfélags Íslands, en félagið rekur tvö söfn - annars vegar lífsýnasafn Frumurannsóknastofu leitarsviðs og hins vegar Lífsýnabanka KÍ (safn Rannsóknastofu í sameinda- og frumulíffræði).
Persónuvernd hefur hafnað ósk Lánstrausts um víðtæka heimild til vinnslu upplýsinga um greiðsluhegðun einstaklinga.
Lesa meiraHeilbrigðisnefnd Alþingis leitaði til Persónuverndar og óskaði umsagnar stofnunarinnar um frumvarp til breytinga á lögum nr. 55/1996 um tæknifrjóvganir.
Lesa meiraHinn 26. nóvember sl. komst Persónuvernd að niðurstöðu í máli er varðaði notkun fingrafaralesara við afgreiðslu máltíða í mötuneytum Víðistaðaskóla og Setbergsskóla.
Hinn 26. nóvember sl. komst Persónuvernd að niðurstöðu í máli er varðar miðlun upplýsinga úr félagaskrá Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) og notkun upplýsinganna við beina markaðssetningu Atlantsolíu.
Hinn 19. nóvember sl. veitti Persónuvernd viðskiptanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingarsamninga.
Í októbermánuði voru gefin út 3 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
62. fundur hins sk. 29. gr. starfshóps var haldinn í Brussel 9.-10. október síðastliðinn. Hann var sóttur af Sigrúnu Jóhannesdóttur, forstjóra.
Lesa meiraÍ septembermánuði voru gefin út 6 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Í ágústmánuði voru gefin út 5 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraÍ júlímánuði voru gefin út 3 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraÍ maímánuði 2007 voru gefin út 8 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni
Lesa meiraÁ fundi stjórnar Persónuverndar þann 3. maí sl. var fjallað um beiðni Lánstrausts hf. um ákveðnar breytingar á starfsleyfum sínum.
Lesa meiraÍ aprílmánuði 2007 voru gefin út 13 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni
Lesa meiraÞar sem senn líður að kosningum minnir Persónuvernd á álit sitt í máli nr. 2002/252 sem fjallaði um meðferð kjörskráa.
Lesa meiraÍ marsmánuði 2007 voru gefin út 18 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir og verkefni.
Lesa meiraÞað sem af er ári hefur 29. gr. starfshópurinn samþykkt þrjú álit, ein tilmæli og eitt vinnuskjal.
Lesa meiraHinn 4. mars sl. veitti Persónuvernd sjávarútvegsnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands.
Lesa meiraHinn 19. febrúar sl. fjallaði stjórn Persónuverndar um fyrirhugaðan rafrænan aðgang Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) að rannsóknarniðurstöðum innan Landspítala Háskólasjúkrahúss (LSH).
Lesa meiraHinn 19. febrúar 2007 tók stjórn Persónuverndar ákvörðun varðandi öryggi rafrænna sjúkraskráa innan Landspítala-Háskólasjúkrahúss og aðgang að þeim. Tekin var afstaða til lögmætis aðgangs lækna, hjúkrunardeildarstjóra og heilbrigðisstarfsmanna í skilgreindum teymum. Talið var að núverandi fyrirkomulag væri í samræmi við lög ef viðeigandi öryggisráðstasfanir yrðu viðhafðar.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið óskaði eftir áliti Persónuverndar á erindi tryggingafélagsins Sjóvár-Almennra trygginga um hugsanlegan aðgang tryggingafélaga að ökuferilsskrá.
Lesa meiraÍ janúarmánuði 2007 voru gefin út 6 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rannsóknir.
Lesa meiraHinn 22. janúar sl. kvað Persónuvernd upp úrskurð um lögmæti upplýsingamiðlunar vinnuveitanda til ráðgjafarþjónustu um uppsögn starfsmanns.
Lesa meiraEvrópskur persónuverndardagur er haldinn í fyrsta skipti í dag að frumkvæði Evrópuráðsins. 28. janúar varð fyrir valinu þar sem Evrópuráðssamningur um vernd einstaklinga varðandi vélræna vinnslu persónuupplýsinga var gerður þennan dag árið 1981.
Lesa meiraHinn 11. janúar sl. veitti Persónuvernd ríkissaksóknara álit sitt á túlkun 15. gr. reglugerðar um sakaskrá ríkisins, en sú grein fjallar um afhendingu upplýsinga úr sakaskrá til einkaaðila.
Lesa meiraÍ desembermánuði 2006 voru gefin út 12 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vísindarannsóknir.
Lesa meiraHinn 19. desember sl. kvað Persónuvernd upp úrskurð um lögmæti miðlunar Glitnis, áður Íslandsbanka, og SBV á persónuupplýsingum til annarra fjármálafyrirtækja í tengslum við atburði í Íslandsbanka hinn 19. janúar sl.
Lesa meiraÁ fundi stjórnar Persónuverndar þann 30. nóvember sl. var ákveðið að breyta 4. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglna nr. 698/2004 um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga.
Lesa meiraSíðustu daga hefur borið á því að tölvupóstur sendur Persónuvernd hafi ekki komist til skila. Svo virðist sem stillingar hjá þjónustuaðila stofnunarinnar hafi valdið því, en búið er að ráða bót á vandanum.
Lesa meiraHinn 30. nóvember sl. kvað Persónuvernd upp úrskurð í máli sem varðaði afhendingu skattframtala til lífeyrissjóðs.
Lesa meiraÍ nóvembermánuði 2006 voru gefin út 10 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vísindarannsóknir
Lesa meiraBorið hefur á því að fyrirtæki hafi haft samband við Persónuvernd vegna vinnslu fyrirtækisins Lánstrausts hf. á svokölluðu LT-skori sem metur líkur á ógjaldfærni íslenskra fyrirtækja.
Lesa meira28. alþjóðafundur forstjóra persónuverndarstofnana var haldinn í London 2. og 3. nóvember sl. og var hann sóttur af Sigrúnu Jóhannesdóttur, forstjóra Persónuverndar. Aðalefni fundarins var eftirlitsþjóðélagið.
Lesa meiraÍ októbermánuði 2006 voru gefin út 7 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vísindarannsóknir.
Lesa meiraHinn 23. október sl. komst Persónuvernd að niðurstöðu um eftirlit sýslumannsembættisins á Keflavíkurflugvelli með innflutningi flugliða á vörum inn í landið.
Lesa meiraVísað er til frétta í fjölmiðlum um málshöfðun Íslenskrar erfðagreiningar á hendur fimm fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins vegna meintra trúnaðarbrota og um aðferðir Íslenskrar erfðagreiningar við rannsókn málsins.
Hinn 23. september sl. tók gildi nýtt starfsleyfi fyrir Myndmark til að annast söfnun og skráningu upplýsinga sem varða fjárhagsmálefni og lánstraust einstaklinga, í því skyni að miðla þeim til annarra.
Lesa meiraÍ septembermánuði 2006 voru gefin út 6 leyfi til vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vísindarannsóknir.
Lesa meira29. gr. starfshópurinn, sem sinnir ráðgjafarhlutverki um persónuverndarmálefni í EB og hefur m.a. það hlutverk að stuðla að samræmingu í framkvæmd persónuverndarlöggjafar í Evrópu, hefur gefið út fjögur ný álit.
Lesa meiraMánudaginn 4. september sl. kom á fund Persónuverndar sérfræðingahópur frá Brussel, sem var staddur hér á landi í boði dómsmálaráðuneytisins í því skyni að kynna hugmyndir sínar um skipulag íslenskrar leyniþjónustu.
Lesa meiraNú þegar skólaárið er að hefjast berst Persónuvernd nokkuð af fyrirspurnum frá skólastjórnendum um það hvaða upplýsingar megi birta um börn á heimasíðum grunnskólanna.
Lesa meiraHinn 14. ágúst sl. kvað Persónuvernd upp úrskurð um meðferð upplýsinga um mætingar í grunnskóla.
Kvartað var yfir notkun á upplýsingum um mætingar í Grunnskóla Grindavíkur í tengslum við hátíð fyrir unglinga sem haldin var á vegum Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi, en B hafði ekki fengið miða á hátíðina þar sem hann hafði ekki sýnt ásættanlega skólamætingu.
Samkvæmt gildandi starfsleyfi Lánstrausts ber fyrirtækinu að tilkynna Persónuvernd ársfjórðungslega um hve margir hafi aðgang að skrám þess.
Lesa meiraPersónuvernd hefur lokið úttekt á öryggi persónuupplýsinga hjá Fangelsismálastofnun ríkisins.
Lesa meira30. maí sl. kvað Evrópudómstóllinn upp dóm í málum nr. C-317/04 og C-318/04. Dómurinn ógildir ákvarðanir Evrópustofnana sem varða miðlun farþegaupplýsinga til Bandaríkjanna
Lesa meiraPersónuvernd barst kvörtun yfir því að sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli hafi látið vinnuveitanda kvartanda, Icelandair, í té umbeðið afrit af lögregluskýrslu um atvik þar sem hann kom við sögu.
Lesa meiraB kvartaði yfir því að yfirmaður hans hefði skoðað tölvupóst hans. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að framkvæmd við skoðun tölvupóstsins hefði farið í bága við 7. gr. laga um persónuvernd og 5. gr. reglna um rafræna vöktun þar sem B var ekki skýrt frá skoðuninni eða veitt færi á að vera viðstaddur.
Lesa meiraStéttarfélag kvartaði yfir rafrænni vöktun á veitingastað fyrir hönd starfsmanns sem hafði verið sagt upp störfum eftir að tiltekin brot hans í starfi höfðu verið leidd í ljós við skoðun á myndbandsupptökum.
Lesa meiraHinn 27. febrúar sl. kvað stjórn Persónuverndar upp úrskurð í máli er varðaði aðgang læknis að sjúkraskrá í tengslum við vinnslu álitsgerðar vegna bótamáls. Varð niðurstaðan sú að ekki hefði legið fyrir upplýst samþykki fyrir aðgangi að sjúkraskránni í skilningi laga nr. 77/2000 og hefði lækninum því verið óheimilt að fara í hana í umrætt sinn. Í tilefni af málinu ákvað Persónuvernd að rita Læknafélagi Íslands, Lögmannafélags Íslands og Sambandi íslenskra tryggingafélaga bréf um upplýst samþykki til uppflettinga í sjúkraskrám.
Lesa meiraLánstraust hefur hlotið nýtt starfsleyfi til að safna og miðla upplýsingum um fjárhag lögaðila. Leyfið gildir til 1. september 2006.
Lesa meira3. apríl 2006 lauk Persónuvernd því verkefni að kanna lögmæti og öryggi vinnslu persónuupplýsinga hjá félagsþjónustum Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar, Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar. Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að vinnsla persónuupplýsinga hjá öllum þessum félagsþjónustum væri heimil að lögum. Þá taldi stofnunin öryggi vinnslunnar ekki ábótavant hjá öðrum félagsþjónustum en þeirri í Hafnarfirði. Var þó talið rétt að leiðbeina um tilteknar úrbætur á öryggiskerfi allra félagsþjónustnanna, en til félagsþjónustunnar í Hafnarfirði var auk þess beint fyrirmælum um tilteknar úrbætur.
Lesa meiraA kvartaði yfir því að læknirinn B hefði farið í sjúkraskrá hans án heimildar í tengslum við álitsgerð sem B vann að fyrir tryggingafélag. Lesa meira
Persónuvernd hafði til umfjöllunar skráningu öryggisdeildar fyrirtækis á upplýsingum um búðarhnupl í verslunum þess. Lesa meira
6. febrúar synjaði Persónuvernd Lánstrausti um breytingu á starfsleyfi félagsins.
Lesa meiraPersónuvernd barst ábending um lista yfir banaslys á Íslandi sem birtur var á heimasíðu á Netinu. Á listanum komu fram nöfn þeirra sem hafa látið lífið í slysum, aldur þeirra og hvernig slysin atvikuðust. Lesa meira
Persónuvernd fékk þann 8. desember 2005 erindi frá Urði, Verðandi, Skuld ehf. (UVS) og Íslenskri erfðagreiningu ehf. ÍE) um það með hvað hætti standa bæri að meðhöndlun persónuupplýsinga sem til hafa orðið í krabbameinsrannsóknum á vegum þessara aðila, ef til þess kæmi að ÍE myndi festa kaup á hlutfé UVS og félögin eftirleiðis hafa samvinnu um framkvæmd rannsóknanna.