Efst á baugi - Úrskurðir o.fl.

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á útlendingalögum

10.3.2008

Með bréfi, dags. 29. janúar sl., óskaði allsherjarnefnd Alþingis eftir umsögn Persónuverndar um frumvarp til laga um útlendinga, 337. mál, flokkar dvalarleyfa, EES-reglur o.fl.

Umsögnin var veitt með bréfi, dags. 29. febrúar sl. Helstu ábendingar Persónuverndar voru eftirfarandi:

  1.  Í frumvarpinu er lagt til að vegabréfsáritun verði ekki veitt ef grunur leikur á um að umsækjandi eða barn hans muni sæta misnotkun eða ofbeldi. Í athugasemdum í greinargerð með frumvarpinu er gert ráð fyrir að fram farin ákveðin vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga um annan einstakling en umsækjanda, með því að lögregla kanni sakaferil hans. Það kemur hins vegar ekki skýrlega fram í frumvarpsákvæðinu sjálfu. Persónuvernd lagði til að úr því yrði bætt.
  2. Í frumvarpinu er lagt til að dómsmálaráðherra geti ákveðið að dvalarleyfis- og búsetuskírteini skuli innihalda örflögu með fingraförum handhafa. Persónuvernd telur æskilegt að tekin verði skýrari afstaða til þess í lögum í hvaða tilgangi skrá megi fingraför og hvernig varðveislu fingrafaranna skuli háttað, en þar verði m.a. að líta til þess hvort eðlilegt sé, út frá jafnræðissjónarmiðum, að skrá fingraför allra útlendinga frá þriðju löndum í miðlæga skrá.
  3. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að Útlendingastofnun og lögreglu verði heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal þeirra sem viðkvæmar geta talist, að því marki sem slík vinnsla telst nauðsynleg við framkvæmd laganna. Persónuvernd telur þetta ákvæði of víðtækt og óskýrt og lagði til að annað hvort yrði ákvæðið fellt niður eða, ef reynslan hefði leitt í ljós að valdheimildir Útlendingastofnunar og lögreglu væru ófullnægjandi, að vegið yrði og metið hvaða tilteknu heimildir þeim væru nauðsynlegar og þær síðan færðar í lög með skýrari hætti.
  4. Í frumvarpinu er lagt til að, að því marki sem nauðsynlegt er til að tryggja að útlendingar dvelji og starfi löglega hér á landi, verði heimilt að samkeyra upplýsingar Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, lögreglu, skattyfirvalda og Þjóðskrár. Slíkar samkeyrslur skuli gerðar án þess að upplýsingar úr skrám einstakra stofnana verði sendar öðrum stofnunum umfram það sem nauðsynlegt sé til skoðunar á fyrirfram skilgreindu athugunarefni. Persónuvernd telur ákvæðið skýrara og í betri samræmi við meginreglur persónuupplýsingaréttarins en ákvæði gildandi laga, en benti þó á að taka mætti sérstaklega fram í ákvæðinu sjálfu að leit í skrám annarra stjórnvalda með samkeyrslu ætti einungis að skila jákvæðri eða neikvæðri niðurstöðu um það, hvort tiltekinn einstaklings sé að finna í skrám hins stjórnvaldsins, enda virðist það nægja til að ná markmiðum ákvæðisins.

 

Umsögn Persónuverndar



 

 




RSS