Efst á baugi - Úrskurðir o.fl.

Umsögn Persónuverndar um breytingar á lögum um tekjuskatt

6.12.2007

Persónuvernd barst bréf efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, dags. 19. nóvember 2007, þar sem óskað var umsagnar stofnunarinnar um frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 (þskj. 36, 36. mál á 135. löggjafarþingi). Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 98. gr. laganna sem hafi það í för með sér að látið verði af opinberri birtingu og framlagningu álagningar- og skattskráa.

Frumvarp þetta hefur áður verið lagt fram, síðast á 132. löggjafarþingi. Var þá óskað umsagnar Persónuverndar um frumvarpið, þ.e. með bréfi, dags. 31. janúar 2006. Með bréfi, dags. 2. mars s.á., veitti stofnunin umbeðna umsögn. Með bréfi, dags. 3. desember 2007, vísaði Persónuvernd til þeirrar umsagnar.

Umsögn Persónuverndar 2. mars 2006.



 

 




RSS