Efst á baugi - Úrskurðir o.fl.
Úrskurður Persónuverndar í máli er varðar miðlun upplýsinga úr félagaskrá og notkun upplýsinganna við beina markaðssetningu
Hinn 26. nóvember sl. komst Persónuvernd að niðurstöðu í máli er varðar miðlun upplýsinga úr félagaskrá Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) og notkun upplýsinganna við beina markaðssetningu Atlantsolíu.
Tildrög málsins voru þau að 15. ágúst sl., barst Persónuvernd kvörtun frá félagsmanni yfir því að Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) hefði afhent Atlantsolíu félagaskrá sína og Atlantsolía því næst notað félagaskrána við beina markaðssetningu.
Í 5. mgr. 28. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga er að finna reglu um það hvenær heimilt sé að afhenda félaga-, starfsmanna- og viðskiptamannaskrár þriðja aðila til nota við markaðssetningu. Þar kemur m.a. að fram að áður en skrá er afhent til slíkra nota skuli hinum skráðu veittur kostur á að andmæla því, hverjum fyrir sitt leyti, að upplýsingar um þá birtist á hinni afhentu skrá.
Þar sem ekki var farið að þessu taldi Persónuvernd afhendingu upplýsinga um félagsmenn í FÍB til Atlantsolíu óheimila.
