Efst á baugi - Úrskurðir o.fl.
Sýslumanni bar ekki að sjá til þess að upplýsingar um greiðslu skuldar bærust Lánstrausti
Hinn 19. desember sl. gaf Persónuvernd frá sér álit í máli er varðaði meðferð sýslumannsins í Reykjavík á upplýsingum í tengslum við kröfu sem varð tilefni árangurslauss fjárnáms.
Málavextir voru þeir að hinn 20. september sl. gerði sýslumaðurinn í Reykjavík árangurslaust fjárnám í fyrirtækinu B. Krafan var greidd hinn 21. september en þó barst A bréf frá Lánstrausti hf., dags. næsta dag, með tilkynningu um að upplýsingar um fjárnámið yrðu færðar á vanskilaskrá að 14 dögum liðnum. Lánstraust hefur aðgang að upplýsingum um fjárnám í gegnum Tölvumiðstöð dómsmálaráðuneytisins.
A taldi að sýslumannsembættinu hefði borið að koma upplýsingum um greiðslu kröfunnar til Lánstrausts og kvartaði til Persónuverndar.
Í áliti Persónuverndar kemur fram að samkvæmt starfsleyfi Lánstrausts skuli fyrirtækið láta hinn skráða vita með 14 daga fyrirvara ef til stendur að færa upplýsingar um hann á vanskilaskrá. Þessi regla hafi þann tilgang að gera honum kleift að gæta hagsmuna sinna, s.s. greina frá því ef krafan er greidd, en þá er skráning upplýsinga um hana óheimil. Þannig sé byggt á því að hinn skráði geri sjálfur reka að því að gæta hagsmuna sinna í aðdraganda þess að upplýsingar eru færðar á vanskilaskrá.
Persónuvernd taldi því að það væri hvorki hlutverk stjórnvalds, sem gert hefði aðför hjá hinum skráða vegna vanskila á kröfu, né á þess færi að sjá til þess að upplýsingar væru ekki færðar á skrána þar eð krafan hefði verið greidd og taldi ekki tilefni til athugasemda við vinnslu sýslumannsembættisins í Reykjavík á upplýsingum í tengslum við kröfu á hendur B.
Álitið er birt í heild sinni hér.
Það athugast að niðurstaða þessi ræðst af því að upplýsingarnar sem um ræðir voru ekki fengnar frá kröfuhafa heldur úr opinberum gögnum. Kröfuhöfum sem óska eftir því að upplýsingar verði færðar á vanskilaskrá ber að tilkynna Lánstrausti um niðurfall skuldar þegar í stað.
