Efst á baugi - Úrskurðir o.fl.
Ákvörðun varðandi öryggi sjúkraskráa á LSH
Persónuvernd barst ábending um að við kennslu á LSH, þ.e. kennslu tæknimanna á möguleikum og virkni upplýsingakerfa, hafi verið notuð raungögn. Þá lá fyrir að við kennslu höfðu tæknimenn skráð sig inn á tölvur með sínu aðgangsorði en notað aðgangsorð tiltekinna heilbrigðisstarfsmanna til að komast inn á viðkvæmar skrár.
Persónuvernd hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að óheimilt sé að nota raunverulegar og persónugreinanlegar sjúkraskrár þegar almenn kennsla á upplýsingakerfi spítalans fer fram. Þess í stað skuli stuðst við gervigögn, s.s. skrár sem ekki hafa að geyma raunveruleg persónuauðkenni (nöfn, heimilisföng, kennitölur o.fl.). Þá kemur fram í ákvörðun stofnunarinnar að fari fram kennsla á upplýsingakerfi spítalans sé starfsmönnum óheimilt að nota önnur aðgangsorð en sín eigin, nema að sá starfsmaður sem hefur umrætt aðgangsorð sé viðstaddur.
Ákvörðun Persónuverndar.
